by Dúna Design

by Dúna Design Hér deili ég málverkum, prentum og sköpunarferlinu á bakvið verkin mín🤍

Sérpantanir og samstörf fara fram í gegnum skilaboð💌

by Ásgeirsdóttir

GJAFALEIKUR X FJALLMÁNAÐARINS Mælifell er fjall september mánaðar💛Það stendur milli svartra sanda og grófs landslags og ...
09/24/2026

GJAFALEIKUR X FJALLMÁNAÐARINS

Mælifell er fjall september mánaðar💛

Það stendur milli svartra sanda og grófs landslags og breytir um svip eftir birtunni. Mér finnst eitthvað ótrúlega fallegt við hvað það stendur eitt og sér í miðjum risastórum sandkassa en samt þakið gróðri 🧘🏻‍♀️

Þið þekkið þessar helstu leikreglur:
🤎 Fylgja mér by Dúna
🤎 Likea þennan póst
🤎 Tagga þann sem má ekki missa af þessu

🤎 EKKI skylda en ég kann virkilega að meta það þegar þið deilið þessu áfram eða repostið🫶🏻

Okei love you bæ 😘

Staðirnir sem ég hef málað á Íslandi vol. II🇮🇸
09/20/2026

Staðirnir sem ég hef málað á Íslandi vol. II🇮🇸

09/13/2026

Undirbúningur fyrir næsta verk 👀

Ég ákvað um daginn að skoða alla staðina sem ég hef málað á korti og fannst svo gaman að sjá þetta allt saman að ég varð...
09/10/2026

Ég ákvað um daginn að skoða alla staðina sem ég hef málað á korti og fannst svo gaman að sjá þetta allt saman að ég varð að skjalfesta það og deila með ykkur! 🤎

Þetta málningarferðalag mitt hefur ekki bara kennt mér meira um Ísland og landfræði þess, heldur líka kynnt fyrir mér staði sem ég hef aldrei komið á (og eru nú komnir á listann yfir staði sem mig langar að heimsækja)🤍

Þetta er fyrsti hlutinn af mörgum þar sem ég ætla að sýna ykkur hvaða staði ég hef málað. Og það eru SVO margir fleiri staðir sem eiga eftir að bætast við! 👀

Ég er eiginlega með aðeins of margar spennandi hugmyndir og verkefni í vinnslu og það er svo margt skemmtilegt og óvænt væntanlegt!🫢

09/08/2026

Ég kom sjálfri mér virkilega á óvart með þessari áskorun! 🥹

Ég hafði 45 mínútur áður en ég þurfti að sækja á leikskólann, en langaði rosalega að mála smá. Þannig að ég ákvað bara að sjá hvað ég gæti gert á svona stuttum tíma og þetta er útkoman😍

Og til að gera þetta aðeins meira krefjandi var ég bara með 4 liti heima og 2 pensla til að vinna með😂

Engin fyrirmynd, ekkert plan. Ég leyfði bara ímyndunaraflinu algjörlega að ráða.

Ég bætti svo við nokkrum smáatriðum eftir að ég kom heim aftur en langstærsti hluti verksins varð til á þessum 45 mínútum.

Kannski þarf maður stundum bara að hætta að hugsa of mikið og byrja að mála🤍

GJAFALEIKUR X FJALLMÁNAÐARINS ⛰️Hekla í vetrarbúning 🩵❄️Þetta verk sat lengi hálfklárað því ég var einfaldlega ekki viss...
08/30/2026

GJAFALEIKUR X FJALLMÁNAÐARINS ⛰️

Hekla í vetrarbúning 🩵❄️

Þetta verk sat lengi hálfklárað því ég var einfaldlega ekki viss með það. Þangað til það allt í einu small og ég er svo sátt með hvernig það kom út🥹

Hekla er svo tignarleg og sterk í þessum vetrargalla. Þó ég sé ekki alveg tilbúin í snjóinn enn þá verð ég að viðurkenna að mér finnst ótrúlega gaman að mála og teikna skuggana í snjónum🤍

Ég trúi varla að það séu bara 4 mánuðir eftir af þessari seríu! Og aðeins 4 vinningar eftir af árinu?! 🥹

Takk, takk, takk allir sem hafið stutt mig í gegnum þetta. Ég átti alls ekki von á því þegar ég fór af stað með í janúar hvað þetta myndi vaxa mikið. Það er svo ótrúlega gaman að sjá hvað þið eruð mörg sem fylgist með, takið þátt hvern einasta mánuð og styðjið mig🩵

Til þess að taka þátt:
🩵 Like-aðu færsluna
🩵 Taggaðu vin sem vill EKKI missa af þessu!

🩵 Repost eða deila er alls ekki skylda — en þið vitið hvað ég kann mikið að meta það🤎

Okei lovejú bæ! 🫶🏻

08/21/2026
08/19/2026

Blue lagoon shoop?

Rætur minninga🤎 Virkilega þýðingarmikið verk fyrir mig og eigandann sem er góð vinkona🫶🏻 Um það bil 10+ lög af litum til...
08/18/2026

Rætur minninga🤎

Virkilega þýðingarmikið verk fyrir mig og eigandann sem er góð vinkona🫶🏻 Um það bil 10+ lög af litum til þess að ná dýpt og hreyfingu án þess að það sé of mikið!

Það var erfitt að ná mynd af raunverulegum litum verksins þar sem það breytir um lit eftir birtu. Takk elsku Þóranna Finnbogadóttir fyrir að treysta mér fyrir þessu og hafa svona mikla trú á mér🤎

70 x 100 cm • Blönduð tækni á striga • Sérpöntun

Address

Skólavörðustígur 3
Rockport, MA
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when by Dúna Design posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to by Dúna Design:

Shortcuts

Share