19/01/2026
GOSLOKAHÁTÍÐ 2026 🌋
2.–5. júlí í Vestmannaeyjum
Goslokahátíðin er lífleg fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá sem höfðar til allra aldurshópa. Boðið er upp á tónleikar, listasýningar, ratleiki, fræðsluviðburði, markaði og ýmsa viðburði sem endurspegla sögu, menningu og lífsgleði Eyjamanna.
Goslokahátíð sameinar minningu og von – og minnir á styrk samfélags sem stendur saman þegar mest á reynir.
ERTU MEÐ GÓÐA HUGMYND?
Hvað langar þig að sjá á Goslokahátíðinni í ár?
Dagskráratriði, viðburð, sýningu eða eitthvað alveg nýtt?
Sendu okkur hugmynd – við viljum heyra í þér!
TÓNLISTAR- OG LISTAFÓLK
Við hvetjum tónlistarfólk og listafólk frá Eyjum og alla sem vilja leggja hátíðinni lið – til að hafa samband á [email protected]
Þetta er frábær vettvangur til að koma sér á framfæri og taka þátt í einstökum viðburði.
ERTU MEÐ VIÐBURÐ?
Við hvetjum fyrirtæki og einstaklinga frá Vestmannaeyjum til að taka þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti svo sem með:
-Sýningar
-Matar- og vörusala
-Nýstárleg verkefni eða viðburðir tengdir Eyjum
Ef þú vilt vera hluti af hátíðinni – láttu okkur vita!
Nú er bara að telja niður dagana þar til við hittumst á Goslokahátíð 2026.
Við hlökkum til að fagna með ykkur öllum í sumar – í hjarta Vestmannaeyja.
Goslokanefnd
[email protected]