23/07/2026
Skyndiákvörðun!🤩
Við ætlum að henda í improv sýningu á föstudaginn kl. 20:00, æðislegt ekki satt?!
Bráðskemmtileg kvöldstund sem allir ættu að hafa gaman af!🎉
Þið þekkið þetta:
🎟️ FRÍTT INN
🎭Húsið opnar kl. 19:30 og sýning byrjar um kl. 20:00
🍻Barinn er að sjálfsögðu opinn (og er opinn allan tímann á meðan sýningu stendur😏)
💵ATH. að það eingöngu posi á barnum
☺️Skylda að mæta í góðu skapi með bros á vör
Veistu ekki hvað improv er?
Í stuttu máli 👉🏻 Fólk á sviðinu reynir að vera fyndið.
Í aðeins lengra máli 👉🏻 Improv, einnig kallað spuni, eru sýningar þar sem ekkert er æft eða skrifað fyrirfram. Allt er búið til á staðnum, t.d. sögurnar, persónurnar og samtölin, og oftar en ekki sjá áhorfendur um að koma með hugmyndir.🤭
Sjáumst á föstudaginn😉