09/01/2026
Gleðilegan Þrettánda!
Nokkrir punktar fyrir daginn:
🎅 Hátíðin hefst kl. 19:00 þegar kveikt er á ÍBV kertunum á Molda
🎅 Gengið verður Hlíðarveg, upp Illugagötu, niður Höfðaveg og þaðan á Malarvöllinn
🎅 Þau sem að eiga bíla á gönguleiðinni vinsamlegast færið þá af götunum
🎅 Ekki er leyfilegt að vera með skotelda í göngunni og uppi á Malarvelli
🎅 Öll tröll sem eru á vegum ÍBV Íþróttafélags eru innan girðingar upp á velli
🎅 Brýnum fyrir unga fólkinu að tröllin eru mörg hver mjög stór og því getur verið mjög hættulegt að hrella þau
🎅 Hvetjum þau sem eiga Þrettánda fána að flagga þeim, eigum til nokkra í Týsheimilinu fyrir þau sem vantar.
Hlökkum til að sjá ykkur í göngunni á eftir,
Starfsmenn og sjálfboðaliðar ÍBV íþróttafélags