Smávinir

Smávinir Handunnir hlutir úr íslensku birki
Handmade from Icelandic birch Lára Gunnarsdóttir er Reykvíkingur en býr og starfar í Stykkishólmi.

Hún lauk einu ári í arkitektúr við Portsmouth Polytecnic í Englandi en hóf að því loknu nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þaðan lauk hún prófi frá grafíkdeild 1983. Næsta áratuginn sýndi hún verk sín ýmist ein eða á samsýningum. Lára venti sínu kvæði í kross um líkt leyti og verkefnið Handverk og hönnun hóf göngu sína. Fyrir tilviljun tók hún sér birkigrein í hönd og tálgaði fyrstu fígúr

una með gömlu grafíkjárnunum sínum. Síðan hefur íslenska birkið verið hennar aðalefniviður.

Árið 1998 hlaut Lára fyrstu verðlaun í samkeppni sem Handverk og hönnun stóð að í samvinnu við Átak til atvinnusköpunar. Nokkrum árum seinna hlaut hún verðlaun í samkeppni um minjagrip sem Norska húsið í Stykkishólmi hélt. Lára hefur tekið þátt í flestum sýningum Handverks og hönnunar; ýmist sóst eftir því eða verið boðið sérstaklega. Má þar nefna sýninguna „Einu sinni er“ sem sett var upp víðsvegar um landið. Lára var þátttakandi í Kirsuberjatrénu í Reykjavík 2007-2009. Verk eftir Láru eru til sölu í Norska húsinu í Stykkishólmi, Þjóðminjasafni Íslands, Kirkjuhúsinu við Laugaveg og Epal design í Leifsstöð. Einnig er tekið við pöntunum á [email protected]

Address

Stykkishólmur
340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Smávinir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Smávinir:

Share

Category