Heima í Hólmi

Heima í Hólmi Heima í Hólmi er tónlistarhátíð í Stykkishólmi sem haldin er í þriðja sinn dagana 10. - 11. júlí 2026.

Stofnandi og skipuleggjandi hátíðarinnar er Hjördís Pálsdóttir.

Viltu vera gestgjafi á Heima í Hólmi 2026?Við leitum að tónleikastöðum fyrir hátíðina sem fer fram dagana 10. og 11. júl...
30/04/2026

Viltu vera gestgjafi á Heima í Hólmi 2026?
Við leitum að tónleikastöðum fyrir hátíðina sem fer fram dagana 10. og 11. júlí, t.d. heimahús, garðar (ef veður leyfir) eða óvenjulegir tónleikastaðir.
Áhugasamir geta haft samband við Hjördísi í s. 847-5640 eða [email protected] 🎤🎼

13/07/2025

Takk kærlega fyrir meiriháttar helgi!
Við áttum svo sannarlega inni þetta geggjaða veður☀️

Risa þakkir og knús til allra sem komu að hátíðinni á einn eða annan hátt, takk elsku bestu gestgjafar sem buðu fram tónleikastaði, takk allt frábæra listafólk sem kom fram og takk styrktaraðilar fyrir að hægt var að gera þetta að veruleika ❤️

Síðast en ekki síst, takk allir sem mættu, það var virkilega gaman að sjá hvað breiður aldurshópur kom á tónleikana, nákvæmlega svona er þessi hátíð hugsuð - fyrir allt samfélagið 🥰

Sjáumst á Heima í Hólmi 10. og 11. júlí 2026 🎵🎵

ATH! Breytt staðsetning á tónleikunum með Soffíu. Þeir verða á torginu við Norska húsið kl. 15:00, endilega látið berast...
12/07/2025

ATH! Breytt staðsetning á tónleikunum með Soffíu. Þeir verða á torginu við Norska húsið kl. 15:00, endilega látið berast 💚💜

Soffía kemur fram á Heima í Hólmi laugardaginn 12. júlí 💚💜

Soffía er borgfirsk tónlistarkona, laga- og textahöfundur, gítarleikari, söngkona og tónsmiður.

Hún hefur stundað tónlistarnám í Söngskólanum í Reykjavík, FÍH og Listaháskóla Íslands.

Soffía var einn meðlima í bluegrass hljómsveitinni Brother Grass sem var mikið starfandi á árunum 2010 - 2014 og spilaði sveitin um allt land á þeim tíma.

Á sama tíma hóf sólóferill Soffíu að taka á sig mynd og hefur hún gefið út tvær plötur í fullri lengd ‘Soffía Björg’ og ‘The Company You Keep’, og er með þá þriðju í bígerð. Nokkrir singlar hafa verið gefnir út tengdir og ótengdir plötunum eins og t.d. endurgerð á laginu ‘Það er draumur að vera með dáta’ sem amma hennar söng. Soffía gerði nýjan texta við lagið sem heitir ‘Draumur að fara í bæinn’.

Einnig söng hún með Krumma Björgvins lagið ‘Bonafide’ sem var flutt í sjónvarpsþættinum Hljómskálinn.

Nýjasta útgáfa er lag af komandi plötu. Lagið heitir Redwing, samið af Soffíu og Pétri Ben.

Hún hefur tekið að sé allskonar verkefni, samdi t.a.m. Kórverk fyrir Dómkórinn í Reykjavík og leikhústónlist fyrir barnaleikritið Tindátarnir, í uppsetningu Kómedíuleikhússins.

Soffía hefur spila mikið hérlendis, ein með gítarinn og með hljómsveit.

T.d. seinasta sumar fór hún í tónleikaferð með hljómsveit í kringum landið.

Hljómsveitarmeðlimir eru Pétur Ben, Fríða Dís, og Magnús Trygvason Eliassen.

Einnig hefur hún farið í tónleikaferðalög erlendis og spilað á tónlistarhátíðum víða í Bandaríkjunum og Evrópu.

📌 Hafnargata 5, á torginu við Norska húsið.
🗓️ Laugardaginn 12. júlí kl. 15:00.

Address

Stykkishólmur
340

Telephone

+3548475640

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heima í Hólmi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Heima í Hólmi:

Share

Category