Landsmót íslenskra harmonikufélaga

Landsmót íslenskra harmonikufélaga 15. Landsmót Sambands íslenskra harmonikuunnenda verður haldið á Reyðarfirði 3.-6. Júlí 2025.

Félag harmonikuunnenda á Norðfirði vinnur að undirbúningi þess sem er komin vel á veg.

Samband íslenskra harmonikuunnenda óskar félagsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegrar páskahátíðar.
05/04/2026

Samband íslenskra harmonikuunnenda óskar félagsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegrar páskahátíðar.

26/03/2026

Hér er áhugaverð grein eftir Pétur Bjarnason um sögu harmonikunnar.

Hér er grein sem Hilmar Hjartarson skrifaði um harmonikuna. Harmonikan a sér sérstakan stað í hjörtum margra, minningar ...
21/03/2026

Hér er grein sem Hilmar Hjartarson skrifaði um harmonikuna. Harmonikan a sér sérstakan stað í hjörtum margra, minningar um gleði og menningu sem mikilvægt er að varðveita.

Harmonikan – hljóðfæri gleði og dansmenningar Frá lokum 19. aldar og fram yfir miðja 20. öld átti harmonikan sitt blómaskeið í dansmenningu landans. Þrátt fyrir meiri fjölbreytni í hljóðfæraskipan og dansmenningu nú á tímum lifir harmonikan góðu lífi meðal þeirra sem unna...

31/12/2025
🪗 FHUR og HR voru með dans og gleði á opnu húsi. 🪗Í gær var FHUR félag harmonikuunnenda í Reykjavík með síðustu æfingu f...
27/11/2025

🪗 FHUR og HR voru með dans og gleði á opnu húsi. 🪗

Í gær var FHUR félag harmonikuunnenda í Reykjavík með síðustu æfingu fyrir jólafrí og af því tilefni var opið hús í æfingasal félagsins í Árskógum. Ákveðið var að endurgjalda boð HR Harmonikufélag Reykjavíkur frá í vor þar sem að FHUR var boðið að taka þátt í tónleikahaldi með HR í Ráðhúsinu í Reykjavík og bjóða HR á opið hús hjá FHUR.

Kvöldið hófst með leik FHUR, síðan tók HR við og að lokum spiluðu báðar sveitirnar saman sem í voru um og yfir tuttugu hljóðfæraleikarar. Stemmingin var frábær, mikið dansað og allir nutu gleðinnar vel.
Kvöldið sýndi vel hvað samstarf félaganna getur skapað til framtíðar.

Þakka skal stjórnendunum Hannesi og Einari vel fyrir góðan undirbúning, samvinnu og þátttöku. 🪗

Mynd: FA

🪗 HARMONIKUBLAÐIÐ 🪗Fyrsta tölublað tímaritsins “Harmonikan” kom út árið 1986.Frumkvöðlar að útgáfu blaðsins voru þeir fé...
11/10/2025

🪗 HARMONIKUBLAÐIÐ 🪗

Fyrsta tölublað tímaritsins “Harmonikan” kom út árið 1986.
Frumkvöðlar að útgáfu blaðsins voru þeir félagar Hilmar Hjartarson og Þorsteinn Þorsteinsson og var markmiðið að efla tengsl á milli harmonikufélagana í landinu.

Árið 2002 tók samband íslenskra harmonikuunnenda við útgáfunni og hóf að gefa út tímaritið “Harmonikublaðið” í staðinn og hefur það verið gefið út reglulega síðan.

Í blaðinu birtast, viðtöl, greinar, vísur, viðburðir og margt fleira.
Ef þú lesandi góður hefur áhuga á að fá blaðið sent heim og verða þar með áskrifandi þá er árgjaldið 3.900 kr. og koma út 3. tölublöð á ári.
Umsjón með áskrift hefur Sigrún B Halldórsdóttir [email protected] S-8615998

Deilið sem víðast. 🪗

27/09/2025

Hotel Smyrlabjorg

27/09/2025

Upphitun fyrir ball á Smyrlabjörgum.

24/09/2025

Samband íslenskra harmonikufélaga leitar að áhugasömu fólki í stjórn sambandsins.

Samband íslenskra harmonikuunnenda var stofnað 1981 af áhugafólki um harmonikkuleik, voru markmiðin að efla og kynna starf harmonikkufélaganna vítt og breytt um landið.
Vilt þú styðja við menningu og viðhalda félagsskapnum ? þá er
Þetta frábært tækifæri til að hafa áhrif á tónlist, menningu, styðja við félagsstarf á landsvísu. Þú þarft ekki að vera harmonikuleikari. Það skiptir mestu máli að þú hafir áhuga og viljir leggja þitt að mörkum til að efla harmonikuna.
Stjórnin heldur fundi eftir aðstæðum í netspjalli og hittist svo einu sinni á ári á aðalfundi.

Ef þú hefur áhuga og vilt vita meira þá endilega hafðu samband við okkur.
Formaður, Haraldur Konráðsson 8934578
Varaformaður, Guðbjartur Björvinsson 8943366
Meðstjórnandi, Gyða Guðmundsdóttir 8999965

11/09/2025

Address

Stykkishólmur

Telephone

8999965

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landsmót íslenskra harmonikufélaga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share