11/07/2024
SiglóSöngvar – Verslunarmannahelgin 2024 – Kaffi Rauðka
Söngskemmtunin SiglóSöngvar fagnar tveggja ára afmæli sínu um Verslunarmannahelgina með fimmtu uppsetningu tónleikaraðarinnar á Kaffi Rauðku. Að vanda kemur eingöngu tónlistarfólk úr héraði að SiglóSöngvum, ungstirni jafn sem eldri rokkhundar, en í ár telur hópurinn 17 manns. Það er hljómsveitin Landabandið ber hitann og þungann af skemmtuninni en á tónleikunum verða fluttir eingöngu hittarar, þ.e. lög sem toppað hafa vinsældalista um allan heim síðustu ár og áratugi. Sérstakir gestir SiglóSöngva um Verslunarmannahelgina er hin fornfræga Siglfirska unglingahljómsveit Hugrakka brauðristin Max og er kynnir kvöldsins hinn óviðjafnanlegi Kolbeinn Óttarsson Proppé.
Húsið opnar kl. 20:00 en skemmtunin hefst kl. 21:00. Eftir SiglóSöngva hefst dúndur dansleikur með Landabandinu, sem mun spila fram á nótt, og er dansleikurinn innifalinn í verðinu.
Stuðið verður á Sigló um Verslunarmannahelgina!!