26/08/2025
TORFDAGURINN 🍀 TURFSDAY
30. ágúst, 2025
🌞
Torfdagurinn er hugsaður sem árleg hátíð og samráðsvettvangur áhugafólks á öllum aldri um aldagamlan íslenskan byggingararf og jafnframt vettvangur til að kveikja áhuga og nýsköpun á þessu svið; sem hefur óþrjótandi möguleika.
Megináhersla Torfdagins árið 2025 er sem fyrr handverk, fagurfræði og djúpar rætur sem lúta að sérstöðu og menningararfi sem þrátt fyrir firringu og jaðarsetningu býr yfir óþrjótandi möguleikum, þar sem aflvakinn er hugmyndaflug, einlægur áhugi, áunninn skilningur, nýtt samhengi, nærvera, bein snerting, virðing og agi. Á dagskrá verðu stunga á Eyjafjallasniddu og rista á kringlutorfi sem lagt verður á kofaþak. Fyrirlestur verður um stærsta uppistandandi torf- og grjót vegg á Íslandi. Hefðbundin verkfæri og torfhnausar verða til sýnis og handbók um hleðsutækni liggur frammi til skoðunar. Síðast en ekki síst verður leikandi teiknilist og myndræn skilgreining á einstakri formfræði í aldgamalli matarmenningu höfð í frammi.
Megin áherslan á Torfdeginum þetta árið verður náfrændi mýraratorfsins, í rauninnini eitt mikilvægasta eldsneytið að baki árangursríkri torfristu og veggjarhleðslu, herti þroskhausinn. Ekki er seinna vænna að kalla herta þorskhausinn fram á sviðið og gera honum skil í orðum, formfræði, handverki og sem fulltrúa háþróaðrar matarmenningar og lífsstíls. Þann 30. ágúst eru allir þeir sem haft hafa kynni af, eða vilja kynnast, bjöllunni, koddanum, bóginum, kellingasvuntunni, skollaskyrpunni, krummafiskinum, kjaftafiskinum, kinnfisknum, undirfisknum, baulunni og auganu, boðnir velkomnir á Torfdaginn í safnahúsi Íslenska bæjarins að Austur Meðalholtum í Flóahreppi. Hér er í senn um að ræða heimildaöflun um einstakan arf, skemmtun, upplifun og smökkun. Við nánari skoðun er ekki langt á milli þess að rífa þorskhaus og rista torf, enda samhljómur og skyldleiki með hnaus og sniddu, torfsnepli, dæludúllu, mýrarkóng, bjöllu, bóg og kodda, af sömu djúpu rótunum runnið og hluti af sömu sviðsmyndinni.
Á borðum verður kaffi og grasate, kleinur, súkkulaðifuglar, torfsúkkulaði, langspilsleikur, ljóðalestur, leirmótun og teikning; og þann 30. ágúst, 2025 mun torffuglinn koma út úr eggingu og taka flugið í fyrst skipti.