Leikfélag Selfoss

Leikfélag Selfoss Leikfélag Selfoss er áhugaleikfélag og hefur verið starfandi á Selfossi frá árinu 1958.

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Skilaboðskjóðuna, því nú eru allar sýningar vorsins komnar í sölu og ekki verður bæ...
09/04/2026

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Skilaboðskjóðuna, því nú eru allar sýningar vorsins komnar í sölu og ekki verður bætt við fleiri sýningum í Maí :) Við bættum við aukasýningu 12. apríl kl 16:30 og það eru enn lausir miðar á hana og eitthvað smotterí af miðum hefur einnig losnað á aðrar sýningar. Hlökkum til að sjá ykkur í Litla leikhúsinu við Sigtún. Miðasala er á tix.is og nánari upplýsingar á [email protected].

Fyrstu fimm sýningum á Skilaboðaskjóðunni er nú lokið við mikla ánægju smárra og stærri áhorfenda og eru fleiri sýningar...
10/03/2026

Fyrstu fimm sýningum á Skilaboðaskjóðunni er nú lokið við mikla ánægju smárra og stærri áhorfenda og eru fleiri sýningar í mars og apríl nú komnar í sölu :) og vek ég sérstaka athygli á aukasýningu miðvikudaginn 25. mars kl 19:30 fyrir þá sem eiga erfitt með að komast um helgar!

Leikfélag Selfoss sýnir Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar. Frumsýnt...
05/03/2026

Leikfélag Selfoss sýnir Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar. Frumsýnt var 27. febrúar við mikinn fögnuð áhorfenda.
Sýningar verða um helgar í mars og apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Í Skilaboðaskjóðunni segir frá Putta og Möddumömmu sem búa í Ævintýraskóginum, þar sem öll ævintýrin gerast og dvergarnir sinna mikilvægum störfum. Þegar Nátttröllið rænir Putta til að breyta honum í tröllastrák, sameinast allir íbúar skógarins um að bjarga honum áður en sólin sest á bakvið sólarlagsfjall. En nornin, úlfurinn og stjúpan vilja ekki vera með og þá eru góð ráð dýr.

Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í nóvember árið 1993 í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur og sló í gegn. Jóhann G. Jóhannsson, tónlistarstjóri Þjóðleikhússins, samdi tónlist fyrir verkið við texta Þorvaldar og vorið 1994 kom út geisladiskur með tónlistinni í flutningi leikara og hljómsveitar leikhússins.

Skilaboðaskjóðan er ævintýri fyrir börn á öllum aldri (5-103 ára) og við hlökkum til að sjá ykkur öll í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Sýningin er 2 tímar með hléi. Húsið opnar 30 mínútum fyrir sýningu.

Alltaf gaman að fá skemmtilega umfjöllun ✨❤️
03/03/2026

Alltaf gaman að fá skemmtilega umfjöllun ✨❤️

Leikfélag Selfoss hefur hafið sýningar á leiksýningunni Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar í Litla leikhúsinu við Sigtún. Skilaboðaskjóðan segir frá henni Möddumömmu og syni hennar, honum Putta litla, sem búa í Ævintýraskó...

Við vorum í fréttunum ✨❤️
02/03/2026

Við vorum í fréttunum ✨❤️

Leikhúsið á Selfossi iðar allt af lífi þessa dagana því þar er verið að sýna barnaleikritið Skilaboðaskjóðuna sem fyrst var sýnt árið 1986 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Sautján leikarar taka þátt í sýningunni en alls koma um þrjátíu manns að henni með einum ...

Við segjum toj toj við Leikfélag Selfoss sem frumsýnir Skilaboðaskjóðuna í kvöld og hvetjum íbúa til þess að ná sér í mi...
27/02/2026

Við segjum toj toj við Leikfélag Selfoss sem frumsýnir Skilaboðaskjóðuna í kvöld og hvetjum íbúa til þess að ná sér í miða á þessa ástkæru barnasýningu.

Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar Þorsteinssonar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Þetta er ævintýri fyrir börn á öllum aldri (5-103 ára). Sjáumst í leikhúsinu!

Í dag er hátíðisdagur því í dag frumsýnum við Skilaboðaskjóðuna, ævintýrasöngleik fyrir börn á öllum aldri. Takk Gunni f...
27/02/2026

Í dag er hátíðisdagur því í dag frumsýnum við Skilaboðaskjóðuna, ævintýrasöngleik fyrir börn á öllum aldri. Takk Gunni fyrir sýnina þína og þetta stór skemmtilega ferðalag. Og takk allir sem tóku þátt í að skapa þessa fallegu sýningu sem við erum svo stolt af! 🥰

26/02/2026
Á hádegi í dag 23. febrúar hefst miðasala á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. Sýnt verður á laugardögum og sunnu...
23/02/2026

Á hádegi í dag 23. febrúar hefst miðasala á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. Sýnt verður á laugardögum og sunnudögum í mars og apríl. Fyrir hóptilboð vinsamlegast hafið samband á [email protected]. Hlökkum til að sjá ykkur í Litla leikhúsinu!

https://tix.is/event/21083/skilabodaskjodan

Address

Sigtún 1
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikfélag Selfoss posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share