Músík í Mývatnssveit

Músík í Mývatnssveit Árleg tónlistarhátíð á páskum, haldin í einstöku umhverfi. Stórbrotin náttúra í fagurri sveit og góðar aðstæður til tónlistarflutnings.

Music in Mývatn County is an annual music festival held over Easter weekend in a unique setting.

Þökkum hjartanlega frábærar móttökur í Skjólbrekku í gærkvöldi‼️  Minnum á sýninguna í kvöld, sama stað, sama tíma, kl. ...
03/04/2026

Þökkum hjartanlega frábærar móttökur í Skjólbrekku í gærkvöldi‼️

Minnum á sýninguna í kvöld, sama stað, sama tíma, kl. 20.

Myndin er tekin á æfingu.

Sjáumst !
[email protected]

Ópera Mozarts, Viðburðarstjórinn,  í Skjólbrekku í kvöld kl. 20. Sprúðlandi skemmtun.Myndir teknar á æfingu í gær.Sjáums...
02/04/2026

Ópera Mozarts, Viðburðarstjórinn, í Skjólbrekku í kvöld kl. 20.
Sprúðlandi skemmtun.
Myndir teknar á æfingu í gær.
Sjáumst !

RÚV heimsótti okkur á æfingu í Skjólbrekku í dag. Ævintýralega skemmtilegt.Sjáumst á morgun og / eða föstudag í Skjólbre...
01/04/2026

RÚV heimsótti okkur á æfingu í Skjólbrekku í dag.
Ævintýralega skemmtilegt.
Sjáumst á morgun og / eða föstudag í Skjólbrekku kl.20.

Tvær óperusöngkonur, umboðsmaður popphljómsveitar og jarðarfararsönghópur takast á í uppsetningu á Viðburðarstjóranum eftir Mozart, sem settur verður á svið í Mývatnssveit í lok dymbilviku.

Viðburðastjórinn (Der Schauspieldirektor) er ópera í einum þætti samin árið 1786 að beiðni keisarans fyrir hátíð í hölli...
30/03/2026

Viðburðastjórinn (Der Schauspieldirektor) er ópera í einum þætti samin árið 1786 að beiðni keisarans fyrir hátíð í höllinni Schönbrunn frumflutt 7. febrúar sama ár. Verkið fjallar um leikhússtjóra sem ræður til sín söngvara og leikara. Tvær sópransöngkonur vilja báðar fá aðalhlutverkið, deilur magnast svo óvíst er hvort af sýningu geti orðið. Allir sættast þó að lokum og sýningin ratar á sviðið.
Hefð er fyrir því að endurskrifa taltextann í kringum kjarna verksins sem er tónlistin sjálf. Í þessari uppfærslu er sögusviðið fært í Skjólbrekku og söngkonurnar vilja báðar komast að hjá umboðsmanni úr poppinu. Inn í þetta blandast síðan jarðarfararsönghópur úr sveitinni sem óvart hefur verið bókaður í salinn á sama tíma.

Tvær sýningar í Skjólbrekku á skírdag 2.apríl og föstudaginn langa 3.apríl kl. 20 báða dagana.

Tryggið ykkur miða á [email protected]

Velkomin !

---

Wolfgang Amadeus Mozart
Viðburðastjórinn
(Der Schauspieldirektor)

Upprunalegt libretto: Gottlieb Stephanie
Íslensk þýðing og leikgerð: Bjarni Thor Kristinsson

Hljómsveitarstjórn: Elena Postumi
Leikstjórn: Bjarni Thor Kristinsson
Umsjón með búningum og útliti: Þórunn María Jónsdóttir

Hlutverk:
Madame Herz: Lilja Guðmundsdóttir
Mademoiselle Silberklang: Fjóla Kristín Nikulásdóttir
Viðburðastjórinn: Egill Árni Pálsson
Buff (Jens): Bjarni Thor Kristinsson

Hljómsveit:
Laufey Sigurðardóttir fiðla
Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðla
Anna Elísabet Sigurðardóttir víóla
Hjörtur Eggertsson selló
Hávarður Tryggvason kontrabassi
Össur Ingi Jónsson óbó
Steinunn Vala Pálsdóttir flauta
Einar Jóhannesson klarinett
Dagbjört Ingólfsdóttir fagott
Kjartan Ólafsson horn
.. og syngjandi heimamenn:
Örnólfur J. Ólafsson, Sigurður Á. Þórarinsson, Magnús Þorvaldsson, Böðvar Jónsson, Einir V. Björnsson, Ólafur T. Ásgeirsson, Einar V. Björnsson, Jóhann Böðvarsson og Ásgeir Böðvarsson.

Hlökkum til að sjá ykkur !Gamanópera eftir W.A. Mozart Sýningar verða tvær í félagsheimilinu Skjólbrekku skírdag 2.apríl...
04/03/2026

Hlökkum til að sjá ykkur !

Gamanópera eftir W.A. Mozart
Sýningar verða tvær í félagsheimilinu Skjólbrekku skírdag 2.apríl og föstudaginn langa 3.apríl kl. 20 bæði kvöldin.

www.musikimyv.is

Miðaverð 6000 kr.
Pantanir á netfanginu: [email protected]

Kærar þakkir og kveðjur fyrir frábærar móttökur í dymbilviku 2025 !    Músík í Mývatnssveitwww.musikimyv.is
07/06/2025

Kærar þakkir og kveðjur fyrir frábærar móttökur í dymbilviku 2025 !

Músík í Mývatnssveit
www.musikimyv.is

Hlökkum til að sjá ykkur í kvöld  kl. 20 í Reykjahlíðarkirkju !Miðasala við innganginn.
18/04/2025

Hlökkum til að sjá ykkur í kvöld kl. 20 í Reykjahlíðarkirkju !

Miðasala við innganginn.

Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit 2025.Á morgun skírdag í Skjólbrekku verður áhersla á tónlist eftir Schubert, íslen...
16/04/2025

Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit 2025.

Á morgun skírdag í Skjólbrekku verður áhersla á tónlist eftir Schubert, íslenska tónlist og sjóðheitar suðrænar aríur.

Á föstudaginn langa í Reykjahlíðarkirkju þann 18.apríl, verður flutt tónlist sem tekur mið af deginum og kirkjunni.
---

Á hátíðinni í dymbilviku 2025 koma fram sópransöngkonan Laetitia Grimaldi, bassasöngvarinn Kristinn Sigmundsson, fiðluleikarinn Laufey Sigurðardóttir og píanóleikarinn Ammiel Bushakevitz.

Miðaverð 3.500 kr. - 6.000 kr. fyrir bæði kvöldin.

Miðasala við innganginn.

Hlökkum til að sjá ykkur !

13/04/2025
Við þökkum ykkur öllum af alhug sem komuð á tónleikana í Skjólbrekku og í Reykjahlíðarkirkju í dymbilviku og gerðuð hátí...
19/04/2024

Við þökkum ykkur öllum af alhug sem komuð á tónleikana í Skjólbrekku og í Reykjahlíðarkirkju í dymbilviku og gerðuð hátíðina ógleymanlega og skemmtilega.

Sjáumst að ári !

Address

Smáragata 2
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Músík í Mývatnssveit posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Músík í Mývatnssveit:

Featured

Share