Bókmenntahátíð í Reykjavík / The Reykjavik International Literary Festival

  • Home
  • Iceland
  • Reykjavík
  • Bókmenntahátíð í Reykjavík / The Reykjavik International Literary Festival

Bókmenntahátíð í Reykjavík / The Reykjavik International Literary Festival Bókmenntahátíð í Reykjavík, haldin annað hvert ár, er hátíð lesenda og höfunda. Events are open and admission is free.

Bókmenntahátíð í Reykjavík er helsti viðburðurinn í íslensku bókmenntalífi og hefur verið síðan árið 1985. Hátíðin þykir á meðal merkustu bókmenntahátíða í Evrópu og er eftirsótt heim að sækja. Hún er haldin annað hvert ár.

Á Bókmenntahátíð í Reykjavík koma innlendir og erlendir rithöfundar saman, kynna verk sín og ræða um líf sitt og störf, auk þess sem erlendir útgefendur og blaðamenn taka þát

t. Nálægð við lesendur er aðalsmerki hátíðarinnar, en atburðir hátíðarinnar eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um dagskrá og annað má finna á www.bokmenntahatid.is

//

Reykjavik International Literary Festival has since its beginning in 1985 established itself as the main literary event in Iceland. The festival is considered to be one of the most important literary festivals in Europe and is popular among authors and publishers. Events, such as interviews and seminars, are conducted in English, and an English translations is available at readings. Program and all further information can be found at www.bokmenntahatid.is.

Af hverju þurfum við á bókmenntahátíðum að halda? Julie Finch, framkvæmdastjóri bókmennta- og listahátíðarinnar Hay Fest...
25/03/2026

Af hverju þurfum við á bókmenntahátíðum að halda?

Julie Finch, framkvæmdastjóri bókmennta- og listahátíðarinnar Hay Festival, ræddi þessa spurningu í áhrifamikilli ræðu á bókamessunni í London fyrr í mánuðinum.

Þar sagði hún meðal annars:
"But festivals also do something else. They create spaces for conversation across difference. We are living in a time of increasing polarisation. Public debate is often fragmented and reactive. Social media rewards outrage more than nuance. Festivals can offer something different.

They bring together writers, thinkers and audiences from different perspectives and allow them to speak to one another—thoughtfully, publicly, and in good faith.“

The health of a society can often be measured by the freedom of its books. Every society that has tried to control its people has started by controlling its books. And every society that has expand…

Við óskum verðlaunahöfum Fjöruverðlaunanna í ár hjartanlega til hamingju 🌷
06/03/2026

Við óskum verðlaunahöfum Fjöruverðlaunanna í ár hjartanlega til hamingju 🌷

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, voru afhent í Höfða rétt í þessu. Innilegar hamingjuóskir til höfunda og útgefenda!

Í flokki fagurbókmennta hlaut Maó Alheimsdóttir verðlaunin fyrir ljóðabókina Hvalbak.

Í flokki barna- og unglingabókmennta hreppti Brynhildur Þórarinsdóttir verðlaunin fyrir Silfurgengið.

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis voru það þær Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir sem voru verðlaunaðar fyrir bókina Drífa Viðar.

Hægt er að lesa umsagnir í athugasemdum

Við óskum Unu Björk Kjerúlf innilega til hamingju með Ljóðstaf Jóns úr Vör 2026! 💐
21/01/2026

Við óskum Unu Björk Kjerúlf innilega til hamingju með Ljóðstaf Jóns úr Vör 2026! 💐

Ljóðið Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra ljóða eftir Unu Björk Kjerúlf hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör í kvöld. Alls bárust 305 áður óbirt ljóð í keppnina. Einnig voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla bæjarins.

Kæru vinir nær og fjær, við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða. Gleðileg bókaj...
23/12/2025

Kæru vinir nær og fjær, við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða. Gleðileg bókajól! 🎄🌟

// Dear friends far and near, we wish you all a very merry Christmas and a happy new year! Thank you all for a wonderful festival this year - we're already looking forward to the next one. 🎄🌟

Rithöfundurinn Boualem Sansal hefur verið náðaður vegna alþjóðlegs þrýstings, eftir tæpt ár í fangelsi. Sansal, sem er 8...
13/11/2025

Rithöfundurinn Boualem Sansal hefur verið náðaður vegna alþjóðlegs þrýstings, eftir tæpt ár í fangelsi. Sansal, sem er 81 árs, var fangelsaður í Alsír 16. nóvember 2024 vegna pólitískra skoðana sinna og dæmdur í fimm ára fangelsi.

Á Bókmenntahátíð í Reykjavík í vor var fjallað um verk hans á viðburðinum Fjarstaddi höfundurinn, sem haldinn var í samstarfi við Íslandsdeild PEN. Rithöfundurinn Sjón stýrði þar viðburði ásamt þýðandanum Helgu Soffíu Einarsdóttur sem ræddi við Sansal þegar hann var gestur hátíðarinnar árið 2023. Þar skrifaði fjöldi gesta undir áskorun um að Sansal yrði látinn laus.

Handtaka Sansals hafði vakið víðtæka alþjóðlega athygli og þrýstingur á yfirvöld í Alsír jókst á síðustu vikum. Nú hefur hann loks fengið frelsi sitt á ný.

Þórdís Dröfn Andrésdóttir er handhafi bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar í ár. Við óskum henni innilega til haming...
27/10/2025

Þórdís Dröfn Andrésdóttir er handhafi bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar í ár. Við óskum henni innilega til hamingju! 💐

Þórdís Dröfn Andrésdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2025 fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins. Bókin kemur út í dag, Benedikt bókaútgáfa gefur út.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenti Þórdísi Dröfn verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða.

🌟Við óskum Þórdísi Dröfn til hamingju!🌟

Norski rithöfundurinn Roy Jacobsen lést í gær sjötugur að aldri. Hann var mikill Íslandsvinur og við hjá Bókmenntahátíð ...
19/10/2025

Norski rithöfundurinn Roy Jacobsen lést í gær sjötugur að aldri. Hann var mikill Íslandsvinur og við hjá Bókmenntahátíð í Reykjavík minnumst hans með mikilli hlýju. Gjarnan kallaður "íslenskastur" erlendra skálda, las bækur á íslensku og þýddi fornbókmenntirnar yfir á norsku, frábær sögumaður og félagi. Hann naut þess að sækja landið heim og átti hér fjölda vina sem við vottum innilega samúð okkar. Við minnumst margra góða stunda frá þátttöku hans á Bókmenntahátíð í Reykjavík í gegnum árin.

Det var trist å lese at forfatter Roy Jacobsen er gått bort💔
Flere av bøkene hans er oversatt til islandsk og Jacobsen hadde stor innsikt i den islandske sagalitteraturen.
I 2019 deltok han på litteraturfestivalen, Bókmenntahátíð í Reykjavík / The Reykjavik International Literary Festival sammen med gode islandske og norske kolleger.
Her med Mímir Kristjánsson og Einar Már Guðmundsson.

Í viðtali við La Repubblica lýsir rithöfundurinn David Grossman aðgerðum Ísraels í Gasa sem þjóðarmorði. Grossman, sem k...
06/08/2025

Í viðtali við La Repubblica lýsir rithöfundurinn David Grossman aðgerðum Ísraels í Gasa sem þjóðarmorði. Grossman, sem kom á Bókmenntahátíð í Reykjavík árið 2003, hefur lengi verið þekktur friðarsinni og gagnrýnt stefnu Ísraels gagnvart Palestínu.

David Grossman, widely considered to be Israel’s most prominent novelist, has described his country’s campaign in Gaza as a genocide. Speaking to Italian daily La Repubblica, in an inte…

Address

Norræna Húsinu
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bókmenntahátíð í Reykjavík / The Reykjavik International Literary Festival posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Bókmenntahátíð í Reykjavík / The Reykjavik International Literary Festival:

Featured

Share