Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum

Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum Listasafn Reykjavíkur er á þremur stöðum í Reykjavík: Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni. Listasafn Reykjavíkur er opið nær alla daga ársins.
(436)

Reykjavík Art Museum is open almost every day of the year.

Veistu hvar í Reykjavík þetta er?Skrifaðu þína tilgátu í athugasemd hér fyrir neðan. Við drögum úr réttum svörum mánudag...
19/06/2026

Veistu hvar í Reykjavík þetta er?
Skrifaðu þína tilgátu í athugasemd hér fyrir neðan. Við drögum úr réttum svörum mánudaginn 22. júní og heppinn þátttakandi fær árskort Listasafns Reykjavíkur.
Myndin er úr seríu eftir Halldór Pétursson sem hann gerði fyrir forsíður tímaritsins Úrval á árunum 1965-1968 og verður hún til sýnis á sýningunni Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd sem verður opnuð á Kjarvalsstöðum 20. júní.

SMÁBORG, HÁBORG – REYKJAVÍK Í MYND | Sýningin er nú óðum að taka á sig mynd og við hlökkum til að sjá þig á opnuninni la...
18/06/2026

SMÁBORG, HÁBORG – REYKJAVÍK Í MYND | Sýningin er nú óðum að taka á sig mynd og við hlökkum til að sjá þig á opnuninni laugardaginn 20. júní kl. 15.00 á Kjarvalsstöðum.
//
BIG LITTLE CITY – IMAGES OF REYKJAVÍK | The exhibition is is about to be ready and we look forward to seeing you at the opening on Saturday, 20 June 15h00 at Kjarvalsstaðir.

Sýningarstjórar/Curators: Markús Þór Andrésson, Sigurður Trausti Traustason & Sunna Ástþórsdóttir.

📷 Hildur Inga Björnsdóttir

Veistu hvar í Reykjavík þetta er?Skrifaðu þína tilgátu í athugasemd hér fyrir neðan. Við drögum úr réttum svörum mánudag...
18/06/2026

Veistu hvar í Reykjavík þetta er?

Skrifaðu þína tilgátu í athugasemd hér fyrir neðan. Við drögum úr réttum svörum mánudaginn 22. júní og heppinn þátttakandi fær árskort Listasafns Reykjavíkur.

Myndin er úr seríu eftir Halldór Pétursson sem hann gerði fyrir forsíður tímaritsins Úrval á árunum 1965-1968 og verður hún til sýnis á sýningunni Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd sem verður opnuð á Kjarvalsstöðum 20. júní.

Gleðilega þjóðhátíð! 🇮🇸Í tilefni 17. júní minnum við á að Listasafn Reykjavíkur er opið til kl. 17:00 í dag í öllum safn...
17/06/2026

Gleðilega þjóðhátíð! 🇮🇸

Í tilefni 17. júní minnum við á að Listasafn Reykjavíkur er opið til kl. 17:00 í dag í öllum safnhúsum – Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.

Á myndinni er verkið 17. júní eftir Gylfa Gíslason frá árinu 1973. Verkið verður hægt að sjá á sýningunni Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd, sem verður opnuð laugardaginn 20.júní kl. 15.00 á Kjarvalsstöðum.
Happy Icelandic National Day! 🇮🇸

On the occasion of June 17, we would like to remind you that the Reykjavík Art Museum is open until 5:00 PM today at all three of its venues – Hafnarhús, Kjarvalsstaðir, and Ásmundarsafn.

The artwork pictured is 17 June by Gylfi Gíslason, created in 1973. The work will be on view in the exhibition Small City, Big City – Reykjavík in Pictures, opening at Kjarvalsstaðir on Saturday, June 20 at 3:00 PM.

We look forward to welcoming you.

17/06/2026

1957–2057 | Nytjamyndir frá 2025–2026 eftir Karin Sander voru gerðar allt síðastliðið ár í tilefni sýningarinnar 1957–2057 í Hafnarhúsi. Hvítum, grunnuðum málarastrigum af ýmsum stærðum var komið fyrir víða um land, bæði í byggð og ósnortinni náttúru, og þeir látnir veðrast um nokkurn tíma.

Málverkin eru mótuð af umhverfi sínu og aðstæðum, veðri og vindum eða inngripi dýra og manna sem áttu leið hjá. Tilviljun og tími vinna þannig að sköpun listaverkanna án afskipta listamannsins. Málverkin sem sýnd eru í Hafnarhúsi bera með sér spor eftir loftslag, veðurfar, raka, seltu og mengun í formi aðskotahluta, litbrigða, áferðar og jafnvel lyktar.
//
1957–2057 | Patina Paintings from 2025–2026 by Karin Sander were created over the past year specifically for this exhibition. Primed white canvases of different sizes were placed at various locations across Iceland, both in inhabited areas and in untouched natural environments, and left to weather for a period of time.

The paintings are shaped by their surroundings and conditions, by weather and wind, as well as by the interventions of animals and passersby. Chance and time thus become active agents in the creation of the works, without the direct involvement of the artist. The paintings presented in Hafnarhús bear traces of climate, weather, humidity, salinity, and pollution in the form of debree, tonal variations, textures, and even scent.

🎨Leggið við hlustir á Rás 1 kl. 16.05 þar sem sýningarstjóratríóið okkar segir Víðsjá frá sýningunni Smáborg, háborg - R...
16/06/2026

🎨Leggið við hlustir á Rás 1 kl. 16.05 þar sem sýningarstjóratríóið okkar segir Víðsjá frá sýningunni Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd - en hún verður opnuð með pomp og prakt á Kjarvalsstöðum um helgina!

Um næstu helgi verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum; Smáborg, háborg –Reykjavík í mynd. Þetta er yfirlitssýning á verkum sem endurspegla Reykjavíkurborg frá sjónarhorni listamanna á því 240 ára tímabili sem hún hefur verið til sem kauptún. Við gerum okkur ferð á Kjarvalsstaði í þættinum og náum tali af sýningarstjórunum þeim Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttur.

Einnig heyrum við pistil frá Freyja Þórsdóttur og kynnum okkur sýninguna Endurlit sem er sýning á ævistarfi Hallsteins Sigurðssonar á vinnustofu hans í Ystaseli 37.

13/06/2026

1957–2057 | Verkið Hljóðverk (goshver) frá 2026 eftir Karen Sander er handgert silkiþrykk áritað af listakonunni og til sölu í safnverslun Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi og í vefverslun.

👀 Í verkinu er íslenskum bókstöfum raðað saman í myndræna heild sem kallar fram hljóðið í goshver.

Verð: 25.000 kr.
Einstakt tækifæri til að eignast verk eftir Karin Sander.
Vefverslun: https://listasafnreykjavikur.is/verslun/flokkur/editions
//
1957–2057 | The work (Geyser) from 2026 by Karen Sander is a handmade silkscreen edition, signed by the artist, and on sale in Reykjavík Art Museum Shop at Hafnarhús and in our web shop.

👉 In the work, Icelandic letters are arranged together into a graphic representation that evokes the sound of a geyser.

Price: ISK 25.000
Web Shop: https://listasafnreykjavikur.is/verslun/flokkur/editions

1957–2057 | Samtal Karinar Sander við sýningarstjóra um sýninguna 1957-2057 í Hafnarhúsi fór fram 31. maí 2026. Sýningar...
12/06/2026

1957–2057 | Samtal Karinar Sander við sýningarstjóra um sýninguna 1957-2057 í Hafnarhúsi fór fram 31. maí 2026. Sýningarstjórar eru Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Markús Þór Andrésson.

Samtalið er 49 mín. (á ensku).
//
1957–2057 | Karin Sander's conversation with the curators about her exhibition 1957–2057 at Hafnarhús took place on 31 May 2026. Curators are Ólöf Kristín Sigurðardóttir and Markús Þór Andrésson.

The conversion takes 49 min. (in English).

Karin Sander's conversation with the curators about her exhibition 1957–2057 at Hafnarhús took place on 31 May 2026. The conversion was in English. Karin Sander is a celebrated German artist who has cultivated a long-standing relationship with Iceland since her first visit thirty years ago. Many ...

1957–2057 | Leið­sögn á íslensku tákn­máli um sýninguna Karin Sander: 1957–2057 sunnudaginn 14. júní kl. 14.00 í Hafnarh...
10/06/2026

1957–2057 | Leið­sögn á íslensku tákn­máli um sýninguna Karin Sander: 1957–2057 sunnudaginn 14. júní kl. 14.00 í Hafnarhúsi. Frítt er á leiðsögnina.

Sýningin var opnuð á Listahátíð í Reykjavík.

Bryn Nóel Francis, táknmáls- og listfræðingur verður með leiðsögn á íslensku táknmáli um sýningu Karin Sander: 1957–2057 í Hafnarhúsi, sunnudag 14. júní kl. 14.00.

Karin Sander 1957-2057 er yfirgripsmikil sýning á verkum þýsku listakonunnar Karin Sander, sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókn fyrir þrjátíu árum.

Í kjölfar leiðsagnarinnar verður farið á Ilmheim Listahátíðar, sýningu eftir Fischersund, í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi.
//
1957–2057 | Guided Tour in Icelandic Sign Language through the exhibition Karin Sander: 1957–2057 on Sunday, 14 June 14h00 at Hafnarhús. Free entry.

The exhibition was opened at Reykjavik Arts Festival.

Bryn Nóel Francis, a sign language specialist and art historian, will lead a guided tour in Icelandic Sign Language of Karin Sanders exhibition: 1957–2057 in Hafnarhús, Sunday, June 14 at 2:00 PM.

Karin Sander: 1957–2057 is a comprehensive exhibition of works by German artist Karin Sander, who has maintained connections with Iceland since her first visit thirty years ago.

Following the tour, visitors will head to Fragrance of Reykjavík Arts Festival, an installation by Fischersund, located in the Greenhouse at Lækjartorg.

Address

Tryggvagata 17
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 22:00
Friday 10:00 - 17:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 10:00 - 17:00

Telephone

+3544116400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share

Category