15:15 Tónleikasyrpan

15:15 Tónleikasyrpan 15:15 Tónleikasyrpan er tónleikaröð sem heldur utan um sjálfstætt tónleikahald tónlistarfólks á Reykjavíkursvæðinu.

15:15 er tónleikasyrpa þar sem heyra má breidd klassískrar tónlistar. Þar heyrast reglulega frumflutningar nýrra verka og nýjar túlkanir á perlum tónbókmenntanna en einnig upprunahljóðfæraleikur og endurheimtir fjársjóðir úr glatkistunni. Röðin er vettvangur grasrótar í tónlist, þar sem tónlistarmenn geta flutt þá tónlist sem þeim er hugleikin án tillits til markaðshyggju eða skoðanna annara á þei

rra verkefnavali. Tónleikasyrpan hóf göngu sína í Borgarleikhúsinu í feb. 2002, hafði síðar aðsetur sitt í Norræna húsið um árabil en heldur nú tónleika sína í Breiðholtskirkju og Neskirkju. Földi frábærra tónlistarmanna hefur komið fram í 15:15 tónleikasyrpunni og hafa vel yfir hundrað tónverk verið frumflutt á tónleikum syrpunnar. Miðaverð er 4000 kr, en 3000, fyrir eldri borgara, öryrka og námsmenn. Miðasala á https://1515.is/midar og við innganginn.

Eva og María mey eru holdgervingar konunnar og standa fyrir andstæður hins kvenlega tvíeðlis. María er fantasían um hina...
20/08/2026

Eva og María mey eru holdgervingar konunnar og standa fyrir andstæður hins kvenlega tvíeðlis. María er fantasían um hina fullkomnu konu, hún er bæði móðir og hrein mey, en Eva er andstæða hennar, tálkvendi sem veldur falli mannkyns með því að eta og bjóða körlum forboðinn ávöxt. Biblían stillir þeim upp sem andstæðum, þær eru dæmisögur fyrir konur til að læra af og skilja sjálfar sig. Eva, María og örlög þeirra kenna konum hvernig þær eigi að haga sér og hvað séu viðeigandi hlutverk fyrir þær að gegna. Maríu má finna í allskyns tónlist, en mjög lítið er fjallað um Evu.
Á þessum tónleikum verður þetta tvíeðli konunnar skoðað í gegnum ólíkar tónlistarstefnur. Fléttuð verða saman einsöngsverk við kórverk, tónlist þar sem holdgerving Evu birtist annars vegar og holdgerving Maríu hins vegar.
María er hin ósnertanlega kona, hrein mey og móðir í senn, og verður því túlkuð með kór, þar sem engin ein kona getur stigið inn í hlutverk hennar, og verður sungið um hana á latínu til að beina sjónum að þessari fjarlægð okkar frá Maríu. Eva er jarðnesk kona og ímynd hennar lituð af synd, birtingarmynd hennar má sjá í tónlist út um allt og munum við skoða hvernig hún birtist í ólíkum tónlistarstefnum og á ólíkum tungumálum. Við erum allar Eva og allar María.

Sviðslistahópurinn Gjallandi var stofnaður sumarið 2025 og samanstendur af átta söngkonum sem vilja skapa sér og öðrum ungum listamönnum fjölbreytt verkefni á sviði sviðslista. Sem sitt fyrsta verkefni, í júlí 2025, setti Gjallandi upp óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini við góðar undirtektir. Næsta verkefni hópsins voru hátíðartónleikar milli jóla og nýárs 2025 þar sem þær fluttu A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten, í bland við íslensk verk fyrir kvenraddir og hörpu. Síðastliðinn júní endurtóku þær leikinn með Suor Angelica á Sönghátíð í Hafnarborg.

Söngkonurnar sem skipa Gjallanda að þessu sinni eru:

Anna Elísa Axelsdóttir
Anne Keil
Ásta Sigríður Arnardóttir
Bryndís Ásta Magnúsdóttir
Margrét Björk Daðadóttir
Ragnheiður Petra Óladóttir
Snjólaug Vera Jóhannsdóttir
Steinunn María Þormar

Píanóleikari er Ólína Ákadóttir.

13/07/2026

Hér má heyra flutning Clare og Punto á einu verkanna sem flutt verður á tónleikunum!

18 júlí kl. 15:15 í Breiðholtskirjku

Almennt miðaverð er 4000 kr. en 3000 kr. fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja. Frítt er fyrir unglinga og börn í fylgd með fullorðnum. Horfðu á allt myndbandið hér: https://www.youtube.com/watch?v=5Y8di0LlAJY

Here you can hear Clare and Punto's performance of one of the pieces that will be performed at the concert!

Sat. 18th of July, at 15:15 in Breiðholtskirkja

General ticket price is 4000 kr. but 3000 kr. for students, seniors and disabled people. Free for teenagers and children accompanied by an adult. watch the full video here: https://www.youtube.com/watch?v=5Y8di0LlAJY

Frá jarðneskum nautnum til himneskrar dýrðarLaugardagur, 18. júlí, kl. 15:15𝗗𝘂𝗼 𝗣𝗮𝘀𝘀𝗮𝗴𝗶Tvíeykið Passaggi er nýtt samstar...
11/07/2026

Frá jarðneskum nautnum til himneskrar dýrðar

Laugardagur, 18. júlí, kl. 15:15

𝗗𝘂𝗼 𝗣𝗮𝘀𝘀𝗮𝗴𝗶
Tvíeykið Passaggi er nýtt samstarf Clare Beesley endurreisnarþverflautuleikara og Punto Bawono, sem leikur á endurreisnarlútu og vihuelu. Á 17. öld var algengt að tónlistarmenn tækju vinsæl sönglög og byggju til úr þeim nýjar tónsmíðar, þar sem þeir fylltu upp í lagnóturnar með alls kyns skrauti úr styttri nótnagildum. Þessi skreytingatækni nefnist “passaggi”, en þaðan kemur nafn tvíeykisins.
Duo Passaggi gerir sér far um að rannsaka og gera tilraunir með fyrirbærið retórík í tónlist, þar sem retórísk tjáning kemst til skila gegnum fínleg blæbrigði í hljóðstyrk og lit. Raddir hljóðfæranna fléttast saman með ryþmískum sveigjanleika og krafti, en á þann hátt svipar þeim til dansara sem mynda eina heild og eru þó samtímis sjálfstæðir einstaklingar.

Almennt miðaverð er 4000 kr. en er 3000 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. Frítt er fyrir unglinga og börn.

12/06/2026

Komdu á morgun á tónleikana Franck, Schumann, Gunnar og Bach kl.15:15 í Fella-og Hólakirkju.

Fiðlusónata César Franck var saminn sem brúðkaupsgjöf handa fiðluleikaranum Eugène Ysaÿe, árið 1886, og er eitt þekktasta verk sinnar tegundar, en hér heyrist það í útsetningu Jean-Pierre Rampal fyrir flautu og píanó. Verkið er úthugsuð listasmíð, þar sem stefin úr fyrsta kaflanum eru notuð sem efniviður í hinum köflum sónötunnar. Tónlistin er stórbrotin, með háum svífandi línum sem njóta sín vel á flautunni, ásamt ótal bitastæðum einleiksköflum fyrir píanóið.

Franck, Schumann, Gunnar og Bach13 júni, il. 15:15 í Fella- og Hólakirkju Fiðlusónata César Franck var saminn sem brúðka...
12/06/2026

Franck, Schumann, Gunnar og Bach
13 júni, il. 15:15 í Fella- og Hólakirkju

Fiðlusónata César Franck var saminn sem brúðkaupsgjöf handa fiðluleikaranum Eugène Ysaÿe, árið 1886, og er eitt þekktasta verk sinnar tegundar, en hér heyrist það í útsetningu Jean-Pierre Rampal fyrir flautu og píanó. Verkið er úthugsuð listasmíð, þar sem stefin úr fyrsta kaflanum eru notuð sem efniviður í hinum köflum sónötunnar. Tónlistin er stórbrotin, með háum svífandi línum sem njóta sín vel á flautunni, ásamt ótal bitastæðum einleiksköflum fyrir píanóið.
Rómönsurnar þrjár fyrir óbó og píanó, Op. 94 eftir Robert Schumann, samdi hann sem jólagjöf handa eiginkonu sinni, Clöru, árið 1849. Þær eru vafalaust þekktasta kammerverk fyrir óbó frá þessum tíma, en tónlistin er tjáningarík, angurvær og íhugul, og fer tónblæ óbósins afar vel.

Spíra eftir Gunnar Haraldsson var frumflutt á WindWorks hátíðinni á Akureyri síðasta sumar, en heyrist hér í fyrsta skipti á höfuðborgarsvæðinu. Verkið er fyrir englahorn og altþverflautu og kannar hina dökku hljómblæi hljóðfæranna.
Tónleikunum lýkur með samspili allra hljóðfæranna í tríósónötu BWV 1039 eftir Johann Sebastian Bach. Sónatan er samin fyrir tvær þverflautur og basso continuo og þannig þá flutt á Café Zimmerman í Leipzig í kringum árið 1740, en tónlistin smellpassar inn í kaffihúsastemmingu 18. aldar og vel hægt að ímynda sér að einhver hafi tekið snúning á sónötunni á óbói, sem var algengt hljóðfæri á þeim tíma. Hér heyrist hún í útsetningu flytjenda fyrir flautu, óbó og píanó.

Franck, Schumann, Gunnar og BachKatrin Heymann þverflautuleikari, Össur Ingi Jónsson óbóleikari og Jón Sigurðsson píanól...
04/06/2026

Franck, Schumann, Gunnar og Bach

Katrin Heymann þverflautuleikari, Össur Ingi Jónsson óbóleikari og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja fiðlusónötu eftir Cesar Franck, rómönsur eftir Robert Schumann, tríósónötu eftir Johann Sebastian Bach og nýtt verk eftir Gunnar Haraldsson. 

Flutist Katrin Heymann, oboist Össur Ingi Jónsson and pianist Jón Sigurðsson perform a violin sonata by Cesar Franck, romances by Robert Schumann, a trio sonata by Johann Sebastian Bach and a new work by Gunnar Haraldsson.

Almennt miðaverð er 4000 kr. en 3000 kr. fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja. Frítt er fyrir unglinga og börn í fylgd með fullorðnum.

General ticket price is 4000 kr. but 3000 kr. for students, seniors and disabled people. Free for teenagers and children accompanied by an adult.

Address

Þangbakki 5
Reykjavík
109

Opening Hours

15:15 - 16:30

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when 15:15 Tónleikasyrpan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to 15:15 Tónleikasyrpan:

Featured

Share