Miðnætti / Midnight Theatre Company

Miðnætti / Midnight Theatre Company Miðnætti sérhæfir sig í vönduðu leikhús- og sjónvarpsefni fyrir börn og ungmenni.

Midnight Theatre Company focuses on quality theatre and tv for children and young adults.

💛💛💛
19/05/2026

💛💛💛

Hreiðrið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna í flokknum Barnasýning ársins! Við erum glöð og þakklát og hlökkum til ...
18/05/2026

Hreiðrið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna í flokknum Barnasýning ársins! Við erum glöð og þakklát og hlökkum til að halda áfram að hitta yngsta og besta fólkið okkar í Þjóðleikhúsinu næsta vetur ❤️❤️❤️

P.s. Svo hlaut Lína Langsokkur líka tilnefningu, Agnes tilnefningu fyrir leikstjórn ársins á Línu og Eva Björg tilnefnd fyrir búninga ársins í Línu! 💥

SÍÐUSTU SÝNINGAR UM HELGINA! Við þökkum innilega frábærar viðtökur á ungbarnasýningunni Hreiðrinu í Þjóðleikhúsinu. Síðu...
21/04/2026

SÍÐUSTU SÝNINGAR UM HELGINA!

Við þökkum innilega frábærar viðtökur á ungbarnasýningunni Hreiðrinu í Þjóðleikhúsinu. Síðustu sýningar eru núna um helgina, uppselt er á laugardaginn en það eru lausir miðar á sunnudaginn! Missið ekki af þessum gullmola! 🫶 https://leikhusid.is/syningar/hreidrid/

⭐⭐⭐⭐ ½
„...börnin ljóma í leikhúsinu“ - SJ, Heimildin

⭐⭐⭐⭐ ½
„...eins og opinn faðmur“ - DSJ, Morgunblaðið

„Eins og ævinlega hjá Miðnætti var allt fallegt við þessa sýningu.“ - SA, TMM.is

Annar fallegur fjögurra og hálfrar stjörnu dómur um Hreiðrið ⭐⭐⭐⭐1/2 „Hreiðrið tekur hlýlega utan um áhorfendur og býður...
08/04/2026

Annar fallegur fjögurra og hálfrar stjörnu dómur um Hreiðrið ⭐⭐⭐⭐1/2

„Hreiðrið tekur hlýlega utan um áhorfendur og býður upp á einstaklega notalega og afslappandi leikhúsupplifun með áherslu á að virkja hin ýmsu skynfæri. Sagan er falleg og vel skrifuð í hugljúfum einfaldleika sínum.“ - DSJ, Morgunblaðinu

Og nú eru SÍÐUSTU SÝNINGAR KOMNAR Í SÖLU!
Missið ekki af dásamlegri perlu. Sýningum líkur í lok apríl!

Inni á milli mjúkra þúfna og glitrandi stráa hefur lítill fugl búið sér hreiður. Þar liggur hann fullur eftirvæntingar og bíður þess að litlu undrin hans, eggin, klekist út. Hreiðrið er heillandi upplifunarleikhús fyrir börn frá þriggja mánaða til þriggja ára og fólkið ....

Foreldrar í fæðingarorlofi takið eftir!N.k. fimmtudagsmorgunn verður sýning á Hreiðrinu!
21/03/2026

Foreldrar í fæðingarorlofi takið eftir!
N.k. fimmtudagsmorgunn verður sýning á Hreiðrinu!

👉 Foreldrar í fæðingarorlofi – þetta er fyrir ykkur!🌟 FIMMTUDAGINN 26. mars kl. 10:30 🌟 (virkur morgunn!!)verður sérstök...
21/03/2026

👉 Foreldrar í fæðingarorlofi – þetta er fyrir ykkur!

🌟 FIMMTUDAGINN 26. mars kl. 10:30 🌟 (virkur morgunn!!)

verður sérstök sýning fyrir foreldra í fæðingarorlofi og ungana þeirra. 💛

Hreiðrið er dásamleg ungbarnasýning sem hefur slegið í gegn – fyrir börn frá 3 mánaða aldri 💛

Litir, ljúfir tónar, snerting og nálægð.
💫 Hlý og falleg upplifun fyrir bæði börn og foreldra.

Fullkominn morgunn í fæðingarorlofinu!

🎟️ Tryggið ykkur miða:
https://leikhusid.is/syningar/hreidrid/

Hreiðrið er einstök leikhúsupplifun fyrir þau allra yngstuVerkið er úr smiðju listafólksins í Miðnætti, leikhóps sem hef...
19/03/2026

Hreiðrið er einstök leikhúsupplifun fyrir þau allra yngstu
Verkið er úr smiðju listafólksins í Miðnætti, leikhóps sem hefur skapað sér nafn fyrir frumlegar og vandaðar sýningar fyrir yngstu áhorfendurna, svo sem Tjaldið, Á eigin fótum og Geim-mér-ei. Einnig sköpuðu þær Agnes, Eva Björg og Sigrún hina dásamlegu sýningu Blómin á þakinu fyrir Þjóðleikhúsið.

🌟🌟🌟🌟1/2!!“Jóhann Axel Ingólfsson og Ylfa Marín Haraldsdóttir leika fuglana tvo af mikilli ljúfmennsku, leiða börnin af ö...
16/03/2026

🌟🌟🌟🌟1/2!!

“Jóhann Axel Ingólfsson og Ylfa Marín Haraldsdóttir leika fuglana tvo af mikilli ljúfmennsku, leiða börnin af öryggi um þennan smáa töfraheim og taka inn hvert barn, öll fá að vera með. Sérstaka lagni þarf til að missa ekki þessa áhorfendur úr hendi sér en bæði tóku fallega utan um hópinn, sýndu þeim þolinmæði og lipurð.” -SJ, Heimildinni

06/03/2026

Vegna mikillar eftirspurnar höfum við bætt við enn fleiri sýningum! Athugið takmarkaðan sýningartíma.
Hlökkum til að hitta litlu ungana í leikhúsinu! 🥰

💛 Hjartans þakkir fyrir frábærar viðtökur á HREIÐRINU, glænýrri og töfrandi leikhúsupplifun fyrir yngstu áhorfendurna.Sý...
04/03/2026

💛 Hjartans þakkir fyrir frábærar viðtökur á HREIÐRINU, glænýrri og töfrandi leikhúsupplifun fyrir yngstu áhorfendurna.

Sýningin er úr smiðju leikhópsins Miðnætti í samstarfi við Þjóðleikhúsið og var frumsýnd um síðustu helgi. Eins og sjá má á myndunum ríkti sannkölluð hátíðarstemning og frumsýningargestir voru kampakátir.

Vegna mikillar eftirspurnar höfum við bætt við aukasýningum!
Tryggið ykkur miða hér:
https://leikhusid.is/hreidrid

24/02/2026

Hlökkum svo til að taka á móti minnstu molunum okkar á Litla svið Þjóðleikhússins sem við höfum umbylt í mjúkt og litríkt hreiður! 😍💛

Miðarnir rjúka út! 💕
Hreiðrið er leikhúsupplifun fyrir þriggja mánaða til þriggja ára börn og fólkið þeirra. Sýningin er úr smiðju Miðnættis í samstarfi við Þjóðleikhúsið og með stuðningi frá Sviðslistasjóði.

Address

Tjarnargata 12
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Miðnætti / Midnight Theatre Company posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Miðnætti / Midnight Theatre Company:

Featured

Share