Listhópar Hins Hússins

Listhópar Hins Hússins Listhópar Hins Hússins eru skipaðir ungu fólki sem starfar við að útfæra eigin verkefni. Hitt Húsið er miðstöð ungs fólks á aldrinum 16-25 ára.

Hitt Húsið er starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar. Meðal fjölmargra verkefna þar eru Listhópar Hins Hússins sem starfræktir eru yfir sumartímann. Ungu fólki á aldrinum 17-25 ára gefst kostur á að sækja um og koma með hugmyndir að skapandi verkefnum og valdir hópar eða einstaklingar fá síðan tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum í átta vikur.
Þessi verkefni eru afar fjölbreytt, skapandi og skem

mtileg og eru sýnileg vegfarendum Reykjavíkurborgar. Unga fólkið stundar margt hvert nám við Listaháskóla Íslands eða við aðra listaskóla á háskólastigi og má því segja að margir séu komnir vel á veg með að verða fagfólk í listum. Suma hópa skipar enn yngra fólk sem er að feta sig áfram á listbrautinni og eru verkefni þeirra ekki síður hugmyndarík og áhugaverð. Hver hópur er metnaðarfullur og sköpunargleði og kraftur einkennir andann sem ríkir á vinnustöðum þeirra. Listhóparnir gefa okkur tilefni til að líta upp frá amstri hversdagsleikans og Reykjavíkurborg verður staðurinn, þar sem allt getur gerst og von er á óvæntu stefnumóti við listagyðjuna. Hægt er að fylgjast með starfi listhópanna á veraldarvefnum :
www.hitthusid.is
www.facebook.com/listhopar

Nú er tíminn til að gera eina góða umsókn og sækja um besta starf í heimi!
05/03/2026

Nú er tíminn til að gera eina góða umsókn og sækja um besta starf í heimi!

Nú er tíminn til að gera góða umsókn!
05/02/2026

Nú er tíminn til að gera góða umsókn!

Til baka á starfasíðu Listhópar Hins Hússins 2026 - Skapandi sumarstörf Ungu fólki með áhuga á listum gefst kostur á að sækja um og koma með hugmynd að útfærslu á eigin verkefni. Fullt starf Hitt húsið - Listhópar 110 23.03.26 Sækja um Ungu fólki gefst kostur á að sækja um ...

23/07/2025
11/07/2025

Götuleikhúsið sýnir gjörninginn
Í gegn um holt og hæðir á Lækjartorgi milli 14:00-16:00. Hlökkum til að sjá ykkur ❤️

FRÁ KOFA TIL KLUMPSÞróun byggðar í Skerjafirði. Skerjafjörður er staðsettur í Faxaflóa og liggur á milli Seltjarnarness ...
27/06/2025

FRÁ KOFA TIL KLUMPS

Þróun byggðar í Skerjafirði. Skerjafjörður er staðsettur í Faxaflóa og liggur á milli Seltjarnarness og Álftaness. Þar liggur hverfi sem ber sama nafn og tilheyrir póstnúmerinnu 102 Reykjavík.
Í þessu tiltekna hverfi borgarinnar, sem afmarkast annars vegar af Reykjavíkurflugvelli og hins vegar af strandlengjunni, er að finna fjölda ólíkra íbúðahúsa. Hverfið hefur að geyma dýrmætar minningar úr fortíð sem og að sýna þróun húsbygginga í gegnum aldirnar. Í Skerjafirði er að finna merka hornsteina í þróun íslensks arkitektúrs. Verkefnið kortleggur sögu Skerjafjarðar og er unnið af Júlíu Guðmundsdóttur Gähwiller sem hluti af bakkalárnámi hennar í arkitektúr við Listaháskóla Íslands.

ENGLISH:

FROM HUT TO HOUSE

The urban development of the town Skerjafjörður. Skerjafjörður is a coastal neighborhood located within the Faxaflói Bay area, situated between Seltjarnarnes and Álftanes, and falls under the 102 postal code of Reykjavík, Iceland. Bordered by Reykjavík’s domestic airport to the east and the shoreline to the west, Skerjafjörður is home to a diverse range of residential buildings. This architectural variety reflects the broader evolution of residential design in Iceland, making the neighborhood a valuable record of the country’s urban and architectural history.
This project is undertaken by Júlía Guðmundsdóttir Gähwiller as part of her Bachelor of Architecture program at the Iceland University of the Arts, with the aim of documenting and analyzing the architectural development of Skerjafjörður over time.

Sweet Louise 12 Tónar
27/06/2025

Sweet Louise 12 Tónar

Address

Rafstöðvarvegur 7./9
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listhópar Hins Hússins posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Listhópar Hins Hússins:

Featured

Share