Möntrukórinn

Möntrukórinn Við rýnum í merkingu hennar, tilgang og áhrif, og ef henni fylgir mudra (sérstök lík

Möntrukórinn er opinn öllum sem vilja hittast einu sinni í viku, kyrja saman og syngja söngva og möntrur. Í hverjum tíma er ein mantra í sérstökum fókus, mantra vikunnar.

Við fáum góðan gest í kvöld og ef þú vilt vera gestur hjá okkur þá er hægt að kaupa stakt skipti hér ☺️ https://karmad.i...
07/04/2026

Við fáum góðan gest í kvöld og ef þú vilt vera gestur hjá okkur þá er hægt að kaupa stakt skipti hér ☺️ https://karmad.is/products/montrukor-stakt-skipti

Möntrukórinn samanstendur af hópi fólks sem finnur ánægju og gleði í því að hittast einu sinni í viku og syngja saman 🤍

Gleðilegt nýtt söngár 🌟Síðasta ár var viðburðaríkt hjá okkur í Möntrukórnum. Við gáfum út okkar fyrstu möntru í byrjun h...
07/01/2026

Gleðilegt nýtt söngár 🌟
Síðasta ár var viðburðaríkt hjá okkur í Möntrukórnum. Við gáfum út okkar fyrstu möntru í byrjun hausts. Lagið ferðaðist víða og þegar þetta er skrifað eru spilanir á tónlistarmyndbandinu okkar komnar yfir 53 þúsund! Við vitum að auðveld ekki alltaf blessuð sjálfsástin er, en þessi mantra hjálpar okkur og vonandi fleirum að tengjast sjálfsástinni og dýpka 💓
Þriðjudagskvöldin voru hverju öðru betri, við kynntumst mörgum nýjum möntrum og heilunar söngvum. Sköpuðum rými fyrir kraftinn innra með okkur, vöxt, leikgleði. kyrrð og ró þar sem hver rödd fékk að leika, hljóma og vera eins og hún er. Toppurinn var án efa allir gestakennararnir sem heimsóttu okkur, brutu upp formið okkar og kenndu okkur eitthvað nýtt, veittu innblástur og dýpri skilning. Takk innilega fyrir okkur Saraswati Om, Adi og Molicka Ævintýri, Svenni og Ágústa Kolbrún 🙏

Ný önn hefst næstkomandi þriðjudag, 13. janúar með nýjum möntrum, nýjum tónum og nýjum verkefnum í bland við það besta sem við höfum verið að leika okkur með áður og virkilega spennandi gestakennurum sem ætla að heimsækja okkur. Við bjóðum nýja meðlimi hjartanlega velkomna, engar kröfur um söngkunnáttu eða hæfileika. Hafðu samband í skilaboðum eða með tölvupósti á [email protected] ef þú hefur spurningar eða áhuga á að koma og prófa að syngja með okkur á þriðjudagskvöldum frá kl 20 - 21:30.

Tökum á móti 2026 með gleði og söng 💓

Address

Laugarvegur 175
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Möntrukórinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Möntrukórinn:

Featured

Share

Category