Aude Busson - works

Aude Busson - works Aude Busson er sviðslistarkona sem hefur áhuga á að skapa sýningar og viðburði sem byggjast á þátttöku áhorfenda. Til… til að fjölga ormunum?

Manndýr er þátttöku sýning um hlutverk mannsins út frá sjónarhorni barna. Í Manndýr er gestum boðið inn í heim þar sem hægt er að upplifa með eyrum, augum og höndum, sjálf eða í samvinnu. Við gefum okkur tíma til að spyrja spurninga sem fá svör eru við og dvelja í heimi þar sem börn segja alla söguna.
Í sýningunni er samband barna og fullorðinna skoðað og spurningunni um hlutverk þeirra á jörðinni

velt upp.

Þegar maður hugsar út í það, þá er maður bara til af því að maður er til...
Eða til, til að gefa dýrunum? Eða erum við til fyrir heiminn? En aftur á móti, þá endist jörðin ekki að eilífu, þannig að ef maður hugsar úti það, þá getur maður ekki bara haldið áfram að fæðast, fæðast og fæðast...

Af hverju er maðurinn til? Af hverju er barn til? Hvað gera þau og til hvers? Sýningin er á mörkum þess að vera leikverk, innsetning og listasmiðja. Í hljóðmyndinni fléttast samræður barnanna við nýja tónlist eftir Borko. Í rýminu er manndýr að tengja saman þræði úr aldalangri sögu sinni á ný.Gestum boðið inn í heim þar sem hægt er að upplifa með eyrum, augum og höndum, sjálf eða í samvinnu. Við gefum okkur tíma til að spyrja spurninga sem fá svör eru við og dvelja í heimi þar sem börn segja alla söguna. Aðstandendur:
Sviðshöfundur, listrænn stjórnandi & flytjandi: Aude Busson
Leikmynda- og búningahönnuður & sviðshöfundur: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Tónlist & hljóðmynd: Björn Kristjánsson
Heimspeki leiðbeinandi: Marion Herrera
Leikmyndagerð: Steinunn Marta Önnudóttir
Búningagerð: Ólöf Ágústína Stefánsdóttir
Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánsson
Framkvæmdastjórar: Ingibjörg Huld Haraldsdóttir & Renaud Durville
Raddir barnanna: Nemendur í Landakotsskóla
Söngur: Jelena Ćirić
Básúna: Ingi Garðar Erlendsson

Sýningin er í samstarfi við Tjarnarbíó. Styrktaraðilar:
Mennta- og menningarmálaráðuneytið: Styrkur fyrir atvinnuleikhópa, Listamannalaun, Vorátak atvinnuleikhópa & Barnamenningarsjóður.

Þakkir:
Fjölskyldurnar okkar, Landakotsskóli, Kristinn Sighvatsson & Ævar í Stáliðjunni.

12/03/2026

Manndýr with showing in Helsinki with a fresh soundtrack in Finnish! Come and check it out at on Saturday and on Sunday, as part of .
Takk og for the support!

29/01/2026

Næstu 2 sýningar á Manndýr eru í Dansverkstæði á sunnudögum kl.11 næstu tvær vikur!

👉 Þátttökusýningar sem henta vel fyrir börn frá um 3 ára aldri og fjölskyldur og taka u.þ.b. 45 mínútur.
Miðasölu hlekk í bio

👾🤖👻
26/01/2026

👾🤖👻

YEY!Takk innilega fyrir traustið og styrkinn frá Sviðslistasjóðs 🙏Hlökkum mikið til að hefjast handa og nú byrjar alvöru...
23/01/2026

YEY!
Takk innilega fyrir traustið og styrkinn frá Sviðslistasjóðs 🙏

Hlökkum mikið til að hefjast handa og nú byrjar alvöru leikurinn með Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Birni Kristjánssyni, Emblu Vigfúsdóttur og MurMur productions!

Takk, elsku samstarfsaðilar, og , fyrir að fylgja okkur í þessu ævintýri!

Og til hamingju þið hinn á myndinni, ég hlakka til að sjá þetta allt saman!

Úthlutun úr Sviðslistasjóði 2026.

Við Snaedis kveðjum BigBang með bros á vör. Yndislegur dagur í heimi Manndýranna og miiiikið leikið ✨
24/04/2025

Við Snaedis kveðjum BigBang með bros á vör. Yndislegur dagur í heimi Manndýranna og miiiikið leikið ✨

23/04/2025

Á morgun munum við setja upp Manndýr sem innsetning í BIG BANG. Við verðum með hljóðmynd á íslensku kl.12, á frönsku kl.13 og á norsku kl.14.

Reykjavík Dance Festival er rétt handana við hornið og það er eitt stykki „Manndýr “sem leynist þarna í dagskrána.... Me...
18/10/2024

Reykjavík Dance Festival er rétt handana við hornið og það er eitt stykki „Manndýr “sem leynist þarna í dagskrána.... Meira að segja ókyeypis og í boði Dansverkstæðissins, en það þarf að panta miða.
Mæli líka með að mæta á ÖLLU sem er í boði í þessu veislu👌

Manndýr er þátttökuverk um hlutverki manneskjunnar í heiminum með augum barna. Verkið og hljóðmynd þess er að miklu leyti byggt á viðtölum við börn. Af hverju er maðurinn til? Af hverju er barn til? Hvað gera þau og til hvers? Þessum spurningum velta börnin í Manndýr fyrir s....

LOKSINS!Now we eventually managed to make it TO and FROM Trondheim to show Manndýr at Rosendal Teater, in collaboration ...
26/09/2023

LOKSINS!
Now we eventually managed to make it TO and FROM Trondheim to show Manndýr at Rosendal Teater, in collaboration with DansiT for the festival „Laeven“.

I was very excited to see how the Norwegian soundscape made with children from Trondheim ( txs to Nilsen 🫶) would be received by the audience. Soooo pleased to see that beyond the cuteness this language inspires me, there were also a lot of very touching thoughts conveyed and a few adults' tears fell on Sunday.
So nice also to propose our relaxed version of the performance which we practiced with best audience last week in Reykjadalur, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 🤩

Superhosts there in Trondheim! our dearest Asgerdur& Alexander Roberts are doing amazing job there.

Thank you Sviðslistamiðstöð Íslands, Nordisk kulturkontakt, Reykjavíkurborg

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Aude Busson - works posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Aude Busson - works:

Featured

Share