24/10/2017
Ef gert er ráð fyrir munnlegri geymd þekkingar verða tölur, mælistengur og tákn miklu auðveldari tæki til varðveislu hennar bæði fyrir fornmenn og okkur lesendur. Þá virðist sem; Njáll, Gaukur á Stöng, Gunnar á Hlíðarenda, Gissur hvíti, Starkaður á Þríhyrningi og synir hans þrír, og Mörður á Hofi, hafi verið holdgerfingar vætta sólúrs sem snerist um Steinkross á Rangárvöllum. Sögupersónurnar höfðu sennilega verið í munnlegri geymd í margar kynslóðir þegar þær voru skráðar á skinn:
2. Njáll bjó á upphafshvol sem við sólsetur á vetrarsólstöðu táknaði áramót, nýja fæðingu í heiðinni heimsmynd, þar hófst tímatal á sólúri: Því var ábúandin þar, Njáll, vitur og sá framtíðina.
3. Miðja, grafreitur höfðingja í nýju landi.
4. Staður sumarsólstöðu, þar sem sól reis á lengsta degi. Þar reis stöng eða herm mælistika. Þar bjó þekkt kyntákn; Gaukur á Stöng.
5. Staður Sólguðs. Hugsanlega var Gunnar sannur í sagnfræðilegum skilningi. Hann var mikill maður vexti, sterkur og best vígur. Sem goð var hann ranglega staðsettur á bökkum Markarfljóts en ekki á efsta steini Eyjafjallajökuls, Goðasteini, á sólúri. Hús sólguðsins var á röngum stað og í bága við þekkt lögmál. Gunnar sat ekki vel í sér. Hann gaf allt frá sér, hann átti ekki mat handa sínu fólki, fær snýkjur og þýfi og fé frá frændum sínum til að gera upp mál á þingi. Hann grætur þegar honum er ögrað og hestar ærast þegar riðið er hjá húsum hans. Í boga hans var svikastrengur sem ekki lá á að flétta aftur úr hári konu hans.
6. Staður sumarbyrjunar við sólarlag. Þekktur helgistaður, biskupsstóll og höfuðstaður þjóðarinnar.
7, Helgafell staðfesti áttunina norður-suður. Við dauða opnaðist fjallið í norður (til Steinkross), þá gengu menn inn í þau.
8. Staður sólris á degi jafndægra, þar gáfu haust -eða vorjafndægur hina fullkomnu áttun: Austur-vestur ásinn; Þríhyrningur, Helgafell, Hof, ásamt Steinkrossi í norðri. Þar var staður “Efnis” eða “Jarðar”.
9. Hof var hornsteinn heimsmyndar landnema, þessvegna bjó þar lögspeki, og staðfesta og hald; Mörður/Efni/Jörð.