Artótek

Artótek Artótek leigir og selur myndlist eftir íslenska myndlistarmenn. Artótekið er í Borgarbókasafni Reykjavíkur í Tryggvagötu 15.

Í Artóteki Borgarbókasafns er hægt að leigja og/eða kaupa listaverk eftir íslenska myndlistarmenn sem eru félagsmenn í Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Greiðsla á mánuði er 2.000 – 10.000 kr. Listaverkin má leigja þar til þau eru að fullu greidd eða ljúka greiðslu fyrr og dregst þá frá áður greidd leiga. Hægt er að skila listaverkunum hvenær sem er á leigutímanum. Myndir og upplýsingar eru á www.artotek.is

10/05/2024
Nýtt listaverk er nú til sýnis á Naglanum á Borgarbókasafninu í Sólheimum og mun það fá að hanga fram í byrjun janúar. V...
13/11/2023

Nýtt listaverk er nú til sýnis á Naglanum á Borgarbókasafninu í Sólheimum og mun það fá að hanga fram í byrjun janúar. Verkið er eftir Ólöfu Björgu Björnsdóttur, en það ber heitið Gagnsæi og er málað með olíu á striga. Naglinn er heitið á sýningaröð í Borgarbókasafninu Sólheimum, þar sem hver sýning samanstendur af einu listaverki sem eru öll fengin að láni úr Artótekinu.

Ólöf hefur numið list víða, meðal annars í Granada á Spáni og hjá meistara An Ho Bum í Seoul í Suður-Kóreu þar sem hún dvaldi á textílverkstæði Ami Ann. Myndir hennar hafa verið til sýnis víða bæði á einka- og samsýningum.

Kynnið ykkur Artótekið nánar á www.artotek.is
Hér má skoða öll verk Ólafar í Artótekinu www.artotek.is/olof-bjorg-bjornsdottir

Það er alltaf gaman að fá ný listaverk í Artótekið og eru hér myndir af nokkrum sem hafa bæst við að undanförnu. Sjón er...
21/07/2023

Það er alltaf gaman að fá ný listaverk í Artótekið og eru hér myndir af nokkrum sem hafa bæst við að undanförnu. Sjón er þó sögu ríkari en hægt er að skoða listaverkin með eigin augum í Artótekinu, Borgarbókasafni Grófinni, Tryggvagötu 15. Heimasíðan er www.artotek.is

Nýtt verk á Naglanum 🎨Verkið Með Djúpum tón eftir Rut Rebekku Sigurjónsdóttur er komið upp á Naglann á Borgarbókasafninu...
07/06/2023

Nýtt verk á Naglanum 🎨

Verkið Með Djúpum tón eftir Rut Rebekku Sigurjónsdóttur er komið upp á Naglann á Borgarbókasafninu Sólheimum og mun vera þar fram í byrjun ágúst. Í verkum sínum vinnur Rut með línuna til móts við litaflötinn og er manneskjan sem skapar, í gegnum tónlist, dans, eða hljóðfæraleik áberandi í verkum hennar. Verkið er fengið að láni frá Artótekinu og geta áhugasamir keypt það eða leigt á kaupleigu.

Nánari upplýsingar um Naglann má finna hér:
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/syningar/naglinn-med-djupum-ton

Einnig má finna fleiri verk eftir Rut og aðra listamenn á www.artotek.is

Nýtt verk á Naglanum!Listaverk án titils eftir Sigurborgu Stefánsdóttur verður til sýnis á Naglanum í Borgarbókasafninu ...
03/05/2023

Nýtt verk á Naglanum!

Listaverk án titils eftir Sigurborgu Stefánsdóttur verður til sýnis á Naglanum í Borgarbókasafninu Sólheimum, frá 24. apríl og út maí. Naglinn er heitið á sýningaröð í Borgarbókasafninu Sólheimum og er þetta 15. sýningin í röðinni. Hver sýning samanstendur af einu listaverki og sem eru öll fengin að láni úr Artótekinu, sem er til húsa í Borgarbókasafninu Grófinni.

Sjá nánar hér:

Mynd án titils verður til sýnis á Naglanum í Sólheimasafni út Maí

Nýtt verk á Naglanum! Listaverk án titils eftir Sigurborgu Stefánsdóttur er til sýnis á Naglanum í Sólheimasafni. Verkið...
21/03/2023

Nýtt verk á Naglanum!

Listaverk án titils eftir Sigurborgu Stefánsdóttur er til sýnis á Naglanum í Sólheimasafni. Verkið er fengið að láni úr Artóteki Borgarbókasafnsins í Grófinni.

Sigurborg nýtir ýmsa tækni í listsköpun sinni til að mynda málun, teikningu, grafík, ljósmyndir eða klippimyndir eins og í þessu verki, einnig hefur hún fengist við myndskreytingar, bókagerð og kennt meðal annars við Listaháskóla Íslands. Verk Sigurborgar hafa til sýnis víða, bæði hér á landi og erlendis.
Verið velkomin á Borgarbókasafnið Sólheimum og kíkið á Naglann 😊

Á vekið heima upp á vegg hjá þér? Kynntu þér hvernig þú getur fengið lánaða eða keypt myndlist á www.artotek.is

Aron Leví Beck 🎨 var listhneigður og skapandi í æsku. Það var þó ekki fyrr en fyrir um það bil fimm árum sem hann fór að...
26/09/2022

Aron Leví Beck 🎨 var listhneigður og skapandi í æsku. Það var þó ekki fyrr en fyrir um það bil fimm árum sem hann fór að fást við myndlist af einhverri alvöru, „þegar óbilandi sköpunarþörfin læddist upp að honum“. Síðan þá hefur hann haldið fjölda sýninga og vakið töluverða athygli fyrir verk sín. Við hittum Aron að máli á vinnustofunni og ræddum ferilinn, listina og verkin, sem sum hver er nú hægt að nálgast í gegnum Artótekið, listlánadeild Borgarbókasafnsins.

Nú er hægt er að nálgast úrval mynda eftir listamanninn Aron Leví Beck í Artótekinu.

Address

Tryggvagata 15
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00
Saturday 13:00 - 17:00
Sunday 13:00 - 17:00

Telephone

4116100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Artótek posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Artótek:

Shortcuts

Featured

Share

Category