Ella umferðartröll

Ella umferðartröll Ella umferðartröll er leikrit um umferðarreglur og annað skemmtilegt ætlað í forvarnastarf fy Farið er í allar grunnreglur umferðarinnar.

Ella umferðartröll er tuttugu og fimm mínútna langt leikrit sem segir frá honum Benna litla og vinkonu hans Ellu tröllastelpu. Ella kann ekki umferðarreglurnar svo þegar hún villist niður í bæ kemst hún ekki aftur heim til sín. Benni ákveður að hjálpa henni og um leið og hann kennir henni umferðarreglurnar læra áhorfendur með henni. Hvernig á að fara yfir götu, hvernig á að haga sér í bíl og hvað

þarf að passa upp á þegar farið er út að hjóla.

Ævintýrið er fullt af fjöri og skemmtilegum söngvum sem áhorfendur læra og fara því heim sönglandi umferðarreglurnar, svona til að festa þær enn betur í minni.

Ætlunin er að fara með verkið í hvern einasta grunnskóla á landinu og fræða yngstu börnin um helstu hættur umferðarinnar. Eftir hverja sýningu eru umræður milli persóna og áhorfenda, farið yfir það mikilvægasta, umferðarlagið kennt og í lokin fá allir endurskinsmerki og skemmtilegt dreifirit svo hægt sé að kenna mömmu og pabba líka.

Þrír leikarar eru í sýningunni en auk Benna og Ellu kynnumst við pabba Benna, lögregluþjóni, afa Benna og mömmu hennar Ellu. Þau Andrea Ösp Karlsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson fara með hlutverkin en öll eru þau þekkt fyrir hlutverk sín með Leikhópnum Lottu. Anna Bergljót Thorarensen skrfiaði handritin en hún skrifaði meðal annars Stígvélaða Köttinn og Gilitrutt sem Leikhópurinn Lotta setti upp. Gerð var prufa á verkefninu síðasta skólaár þar sem 20 skólar tóku þátt í verkefninu og kennarar þeirra sátu eftir með leikurum og handritshöfundi og komu með hugmyndir að breytingum. Allir voru á einu máli um að verkið ætti fullt erindi við þennan aldurshóp og gerði mikið til að skerpa á þeim áherslum sem hafa verið settar í umferðarfræðslu ungra barna. Umferðarstofa er í samstarfi við verkefnið og var handritið unnið í samvinnu við fagmenn sem þar vinna. Tekið er sérstaklega á þeim málum sem yngsta stig grunnskólanna þarf að kunna og vita þegar þau koma ný inn í umferðina. Sérstakar þakkir fá Sjóvá og N1.

Address

Leifsgara
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ella umferðartröll posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Ella umferðartröll:

Featured

Share