10/04/2026
Yasiin Bey í Gamla Bíó þann 9. maí. Almenn sala er nú hafin á Stubb.is/yasiinbey.
Forsalan fór af stað af miklum krafti og við réðum varla við eftirspurnina, takk fyrir ótrúleg viðbrögð
Þann 9. maí 2026 stígur Yasiin Bey, betur þekktur sem Mos Def, á svið í Gamla Bíó í Reykjavík.
Mos Def er einn áhrifamesti tónlistarmaður sinnar kynslóðar og hornsteinn conscious hip-hop senunnar. Hann sló fyrst í gegn seint á 10. áratugnum sem hluti af hip hop dúóinu Black Star ásamt Talib Kweli. Með tímamótaplötum á borð við Black on Both Sides og The New Danger mótaði Mos Def nýja sýn á það hvað hip-hop gæti verið: hugmyndaríkt, pólitískt og listilega djúpt. Ferill hans spannar samstarf við listamenn á borð við Kanye West, Hi Tek, Madlib og J Dilla.
Listamannsnafnið Yasiin Bey markar ekki endurnýjun ímyndar Mos Def heldur afstöðu. Nafnið endurspeglar þá hugsjón sem hefur alltaf einkennt feril hans: að nota tónlist sem miðil fyrir merkingu, sannleika og menningarlega ábyrgð.
Á sviði er Yasiin Bey þekktur fyrir einstaka nærveru. Flutningurinn er hrár og lifandi og inniheldur ófyrirsjáanlega upplifun þar sem hip-hop, spuni, pólitík og persónuleg tjáning renna saman í eitt.
Miðasala fer fram á Stubb og er takmarkað magn miða í boði.
Menningarhreyfingin Liveproject stendur fyrir tónleikum en hreyfingin stóð einnig fyrir tónleikum Mobb Deep sem fram fóru í KR-heimilinu í mars og vöktu mikla athygli. Þá hefur Liveproject staðið að viðburðum þar sem fram hafa komið stjörnur á borð við The Pharcyde, Booka Shade, DJ Shadow, Carl Craig og Talib Kweli svo eitthvað sé nefnt.