25/06/2026
Þórbergssetur á Hala í Suðursveit fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir.
Margrét Jónsdóttir eiginkona Þórbergs Þórðarsonar var mikil áhugamanneskja um myndlist og átti ágætt safn listaverka sem hún færði Listasafni ASÍ að gjöf 1973. Það er mikil upplifun að koma á Þórbergssetur. Þar mætir manni rödd skáldsins sem berst úr stórum steini sem komið hefur verið fyrir við innganginn. Steinninn, eða bjargið öllu heldur, kom veltandi niður hlíðina fyrir ofan setrið þegar verið var að halda uppá afmæli skáldsins og telja sumir að það hafi ekki verið nein tilviljun. Í veitingasalnum er stórt safn bóka á esperantó, en eins og þeir vita sem þekkja sögu Þórbergs þá var hann mikill áhugamaður um þetta skáldaða tungumál. Ungur nemandi í málvísindum, Davíð að nafni, situr nú við að skrá bækurnar í safninu. Á Þórbergssafni, sem Jón Þórisson hannaði, er m.a. dregin fram stemmningin í stofu Margrétar og Þórbergs að Hringbraut 45 í Reykjavík. Þar má finna sýnishorn af bókum, ljósmyndum, húsgögnum og ýmsum munum þeirra hjóna. Og nú hefur Listasafn ASÍ lánað nokkur af verkunum sem Margrét ánafnaði safninu, og voru í stofunni hjá þeim á sínum tíma, til að auka enn á stemmninguna. Þetta eru m.a. verk eftir Gunnlaug Scheving, Jóhann Briem, Einar G. Baldvinsson, Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Nínu Tryggvadóttur. Þorbjörg Arnórsdóttir framkvæmdastjóri og frumkvöðull aðstoðaði við val á myndum og Jacobo starfsmaður setursins sá um upphengi. Við mælum eindregið með heimsókn á þetta merka safn. Það er hægt að fá gistingu á staðnum og maturinn er góður.