Klassík í Salnum

Klassík í Salnum Klassík í Salnum er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deil Til ánægjuauka fjalla flytjendur um efnisskrána á tónleikunum.

Klassík í Salnum er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Salinn í Kópavogi með okkar fremstu listamönnum. Markmiðið með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á "einleikarann" annars vegar og "kammertónlist" hins vegar.

Tónleikagestir voru ekki sviknir af magnaðri efnisskrá dagsins sem fór um allan tilfinningaskalann. Frumflutt var frábær...
19/04/2026

Tónleikagestir voru ekki sviknir af magnaðri efnisskrá dagsins sem fór um allan tilfinningaskalann. Frumflutt var frábært verk eftir Elinu Gunnlaugsdóttur “Ég hugsa til þín með lokuð augun” , léku flytjendur á alls oddi og framkölluðu sannkallaða töfrastund. Takk fyrir elsku Ingunn Hildur og Gunnhildur.

Þökkum þríeykinu fyrir dásamlega stund og það má með sanni segja að það hafi verið ástríðufullt í Salnum í gær. Flutt vo...
09/03/2026

Þökkum þríeykinu fyrir dásamlega stund og það má með sanni segja að það hafi verið ástríðufullt í Salnum í gær. Flutt voru lög á brasilísku, aldagamalli spænsku og íslensku. Flautan og gítarinn fluttu líka einkar munúðarfulla tangóa Piazzolla sem mun halda á hlustendum hita fram á vor.

Fyrstu tónleikar þetta misseri voru á allan hátt stórfenglegir og má segja að Salurinn í Kópavogi hafi skartað sínu fegu...
02/03/2026

Fyrstu tónleikar þetta misseri voru á allan hátt stórfenglegir og má segja að Salurinn í Kópavogi hafi skartað sínu fegursta þegar tvær hörpur ásamt fremstu hörpuleikurum landsins stigu þar á stokk. Takk fyrir skemmtilega og virkilega metnaðarfulla efnisskrá sem töfraði alla uppúr skónum Mátti heyra allt frá Bach yfir í tangóa og glæsilegan gjörning að lokum þar sem Frank Aarnink kom við sögu.

Fernir tónleikar á vormisseri, fylgist með!
20/01/2026

Fernir tónleikar á vormisseri, fylgist með!

Það voru yndislegir tónleikar í gær og þökkum þeim stöllum fyrir ótrúlega skemmtilega efnisskrá og magnaða stemmningu.
22/09/2025

Það voru yndislegir tónleikar í gær og þökkum þeim stöllum fyrir ótrúlega skemmtilega efnisskrá og magnaða stemmningu.

Það var sannkölluð spilagleði og mússíserað á heimsklassa í Salnum í dag. Tónleikagestir gengu glaðari og ríkari út efti...
25/05/2025

Það var sannkölluð spilagleði og mússíserað á heimsklassa í Salnum í dag. Tónleikagestir gengu glaðari og ríkari út eftir þessa dásamlega vel fluttu tónlist eftir Schubert og Clöru Schumann. Einnig harmóneraði frumflutningurinn á verki Liams Kaplan einstaklega vel innan um stóru tríó verkin. Þökkum þeim Liam Kaplan, Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur og Herdísi Mjöll Guðmundsdóttur fyrir frábæra tónleika, hér er á ferð tríó til að fylgjast með í framtíðinni.

Það var vel sótt á tónleikana í dag þar sem Hallveig og Hrönn kitluðu allan tilfinningaskalann og leiddu áheyrendur í ge...
09/02/2025

Það var vel sótt á tónleikana í dag þar sem Hallveig og Hrönn kitluðu allan tilfinningaskalann og leiddu áheyrendur í gegnum gamlar og góðar minningar úr leikhúsinu með dásamlegum lögum! Eftir ma Gunnar Reyni Sveinsson, Atla Heimi og Jónas og Jón Múla Árnasyni. Einnig frumfluttu þær útsetningar eftir Þórð Magnússon á lögum Megasar. Gestasöngvarar voru Bergþór Palsson og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og komu tónleikagestum skemmtilega á óvart! Guðrún Jóhanna leiddu skemmtilegt spjall við þær stöllur um efnisskránna í tónleika spjalli í anddyri Salarins

Address

Reykjavík
102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Klassík í Salnum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Klassík í Salnum:

Featured

Share