Listval

Listval Myndlistargallerí og ráðgjafarþjónusta sem aðstoðar við myndlistarval fyrir heimili, stofnanir og fyrirtæki.

Síðasti dagur sýningarinnar Auðna, með verkum eftir Rebekku Rafnsdóttur er í dag, laugardag. Opið 13-16
05/09/2026

Síðasti dagur sýningarinnar Auðna, með verkum eftir Rebekku Rafnsdóttur er í dag, laugardag.

Opið 13-16

Frá sýningunni Auðna með verkum eftir Rebekka Rafnsdottir ✨
03/09/2026

Frá sýningunni Auðna með verkum eftir Rebekka Rafnsdottir ✨

27/08/2026

Sýning Rebekku Rafnsdóttur, Auðna opnaði síðustu helgi.

Opið á morgun föstudag 13-17 og laugardag 13-16.

Hægt er að nálgast upplýsingar um verk á heimasíðu Listvals: www.listval.is

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Auðna með verkum eftir Rebekku Rafnsdóttur, á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst...
14/08/2026

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Auðna með verkum eftir Rebekku Rafnsdóttur, á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst milli 17-19.

Ný verk eftir Ingunni Fjólu eru komin í Listval. Frekari upplýsingar um verkin eru á listval.is og einnig er hægt að sen...
08/08/2026

Ný verk eftir Ingunni Fjólu eru komin í Listval. Frekari upplýsingar um verkin eru á listval.is og einnig er hægt að senda línu á [email protected]
-
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og BA gráðu í myndlist frá sömu stofnun árið 2007. Hún er einnig með BA gráðu í listasögu frá háskólanum í Árósum frá 2002. Í listsköpun sinni fæst Ingunn við ýmsa miðla eins og málverk, vefnað og innsetningar. Verk hennar fela oft í sér gagnvirkni eða beina þátttöku og teygir hún þannig verkin inn í opið kerfi þar sem þau lifna við fyrir tilstilli áhorfenda og rýmisins.

Gjafabréf frá Listval er hin fullkomna gjöf fyrir brúðkaup eða afmæli. Listval aðstoðar handhafa gjafabréfsins við val á...
17/07/2026

Gjafabréf frá Listval er hin fullkomna gjöf fyrir brúðkaup eða afmæli.
Listval aðstoðar handhafa gjafabréfsins við val á verki sé þess óskað.

Hægt er að panta gjafabréf á ww.listval.is

★★★★ í Morgunblaðinu.Sýning Steingríms Eyfjords, Ósamhverf endurskoðun, í Listasafni Reykjanesbæjar hlýtur fjórar stjörn...
10/07/2026

★★★★ í Morgunblaðinu.

Sýning Steingríms Eyfjords, Ósamhverf endurskoðun, í Listasafni Reykjanesbæjar hlýtur fjórar stjörnur í gagnrýni Hlyns Helgasonar.

„Hér sýnir Steingrímur sterk tengsl sín við heimspekilega gjörningahefð og niðurstaðan er myndheild sem vekur fólk til íhugunar um eðli hugsunar og veruleikans.“ — Hlynur Helgason um verkið Wittgenstein, sem er hluti af sýningunni.

Nú líður að útskriftum og um að gera að skoða úrvalið í Listval. Myndlist gleður, gefur og er fjárfesting til framtíðar....
22/05/2026

Nú líður að útskriftum og um að gera að skoða úrvalið í Listval. Myndlist gleður, gefur og er fjárfesting til framtíðar. Við mælum með myndlist í útskriftarpakkann. Hér má svo sjá enn meira úrval af minni verkum listval.is/utskriftir

Sýning Hildar Elísu Jónsdóttur, Mótun stelpunnar stendur nú yfir í Listval. Hildur Elísa Jónsdóttir (1993) er myndlistar...
13/03/2026

Sýning Hildar Elísu Jónsdóttur, Mótun stelpunnar stendur nú yfir í Listval.

Hildur Elísa Jónsdóttir (1993) er myndlistarmaður og tónskáld búsett í Amsterdam. Hún hefur áhuga á frásagnarhefðum og því að skapa alltumlykjandi upplifanir í rými, sem oft sækja innblástur í hversdagslega hluti og uppákomur og notast við tíma og endurtekningar til þess að sýna viðfangsefni sín í nýju ljósi.

Hildur Elísa hlaut á dögunum hvatningarverðlaun myndlistarráðs sem eru veitt starfandi myndlistarmanni sem nýlega hefur komið fram á sjónarsviðið og vakið athygli með verkum sínum.

Upplýsingar um verkin og viðtal við Hildi má sjá á heimasíðu Listvals
https://listval.is/exhibitions/motun-stelpunnar/

Address

Hólmaslóð 6
Reykjavík
101

Opening Hours

Friday 13:00 - 17:00
Saturday 13:00 - 16:00

Telephone

+3546696760

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listval posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Listval:

Featured

Share