24/08/2022
Úthlutun ársins er nú lokið - bæði almennri og Úrvalspottinum.
Allir þeir sem fengu úthlutað listaverki geta skoðað það inn á sínum síðum á www.safnarinn.is.
Verkin í Úrvalspottinum voru til sýnis á Menningarnótt en eru nú einnig tilbúin til afhendingar.
Öll verkin eru afhent í Gallerí Fold við Rauðarárstíg.
Við þökkum öllum sem voru með okkur á þessu tímabili en nýtt tímabil hefst núna í september.
Hvað er Safnarinn Safnarinn er frábær leið til að eignast eigulega myndlist. Þú leggur inn 1.000 kr. eða meira mánaðarlega í safnarasjóðinn og færð í staðinn eigulegt listaverk sem er að minnsta kosti virði þess sem lagt hefur verið inn á tímabilinu. Lesa meira