Möguleikhúsið Ferðaleikhús

Möguleikhúsið Ferðaleikhús Möguleikhúsið hefur starfað frá árinu 1990 að leiksýningum og öðrum verkefnum fyrir börn og fullorðna

Hið vinsæla jólaleikrit Möguleikhússins, Smiður jólasveinanna er komið á Spotify!
07/12/2025

Hið vinsæla jólaleikrit Möguleikhússins, Smiður jólasveinanna er komið á Spotify!

Möguleikhúsið · album · 1993 · 15 songs

Hér má sjá þau Grýlu og Leppalúða ásamt dætrum sínum, jólaskellunum Tösku, Flotsokku og Leppatusku, skömmu áður en þau h...
10/12/2024

Hér má sjá þau Grýlu og Leppalúða ásamt dætrum sínum, jólaskellunum Tösku, Flotsokku og Leppatusku, skömmu áður en þau héldu í Þjóðminjasafn Íslands/ að gleðja gesti og gangandi. Nú styttist í að synir skötuhjúanna komi til byggða og munu þeir að sjálfsögðu kíkja við í Þjóðminjasafninu eins og þeir hafa gert síðustu þrjá áratugina og hver veit nema systur þeirra láti einnig sjá sig.

Kertasníkir og bræður hans senda öllum bestu óskir um gleðileg jól og þakka sérlega þeim sem lögðu leið sína í Þjóðminja...
24/12/2023

Kertasníkir og bræður hans senda öllum bestu óskir um gleðileg jól og þakka sérlega þeim sem lögðu leið sína í Þjóðminjasafnið að hitta sveinana, systur þeirra jólaskellurnar og hina öldruðu skapstyggu foreldra, Grýlu og Leppalúða. Sjáumst aftur fyrir næstu jól!

Ketkrókur fékk óvæntan stuðning frá Tösku systur sinni þegar hann mætti í Þjóðminjasafnið í morgun. Í fyrramálið kl. 11 ...
23/12/2023

Ketkrókur fékk óvæntan stuðning frá Tösku systur sinni þegar hann mætti í Þjóðminjasafnið í morgun. Í fyrramálið kl. 11 er svo von á Kertasníki, þeim síðasta af bræðrunum þrettán.

Gáttaþefur var ekki lengi að þefa uppi barnaskarann sem beið hans í Þjóðminjasafninu í morgun. Hann rak þar inn nefið og...
22/12/2023

Gáttaþefur var ekki lengi að þefa uppi barnaskarann sem beið hans í Þjóðminjasafninu í morgun. Hann rak þar inn nefið og gladdist mjög að fá að launum girnilegt laufabrauð!

Það var fullur salur af kátum krökkum sem tók á móti Gluggagægi þegar hann gægðist inn í Þjóðminjasafnið í morgun. Á lei...
21/12/2023

Það var fullur salur af kátum krökkum sem tók á móti Gluggagægi þegar hann gægðist inn í Þjóðminjasafnið í morgun. Á leið sinni gegnum safnið fann hann þennan forláta gamla glugga til að kíkja gegnum.

Möguleikhúsið hefur verið þess heiðurs aðnjótandi að fá að aðstoða Þjóðminjasafnið við að taka á móti íslensku jólasvein...
20/12/2023

Möguleikhúsið hefur verið þess heiðurs aðnjótandi að fá að aðstoða Þjóðminjasafnið við að taka á móti íslensku jólasveinunum frá árinu 1995 og þangað streyma þeir þessa dagana hver á fætur öðrum. Nú geta þeir sem ekki komast til að hitta þá á safninu skellt sér inn á Storytel og hlustað á diskinn Jólasveinar ganga um gátt þar sem sveinarnir 13 koma allir við sögu ásamt þeim Grýlu og Leppalúða.

Þrettán stuttir leikþættir um íslensku jólasveinana, þar sem einnig koma við sögu foreldrar þeirra, þau Grýla og Leppalúði, auk jólakattarins.

Bjúgnakrækir var himinlifandi að fá norðlenska sperðla að bíta í á Þjóðminjasafninu í morgun, en sem kunnugt er þá er ha...
20/12/2023

Bjúgnakrækir var himinlifandi að fá norðlenska sperðla að bíta í á Þjóðminjasafninu í morgun, en sem kunnugt er þá er hann sérfræðingur í öllum gerðum íslenskra bjúgna.

Hvorki eldgos né vetrarfærð koma í veg fyrir að jólasveinarnir komi á hverjum degi til jóla kl.11 í Þjóðminjasafnið og h...
19/12/2023

Hvorki eldgos né vetrarfærð koma í veg fyrir að jólasveinarnir komi á hverjum degi til jóla kl.11 í Þjóðminjasafnið og heilsi upp á gesti og gangandi. Skyrgámur var í banstuði þegar hann mætti í morgun.

Enn gengur Möguleikhúsið til liðs við Þjóðminjasafn Íslands/ við að taka á móti íslensku jólasveinunum. Nú hefur þeim br...
18/12/2023

Enn gengur Möguleikhúsið til liðs við Þjóðminjasafn Íslands/ við að taka á móti íslensku jólasveinunum. Nú hefur þeim bræðrum bæst góður liðsauki því þrjár systur þeirra, jólaskellurnar Flotsokka, Taska og Leppatuska heimsækja nú safnið með þeim í fyrsta sinn.

Address

Keilufell 47
Reykjavík
111

Telephone

+3548971813

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Möguleikhúsið Ferðaleikhús posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Möguleikhúsið Ferðaleikhús:

Featured

Share