12/06/2021
KRASS útgáfa kynnir nýja Hljóðbók á Storytel.
Eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur er komin út framhald bókarinnar Söngur Súlu.
Sagan fjallar nú um líf ungu stúlkunnar, Súlu í höfuðborginni á árunum 1964-´66.
Súla kynnist heimi bókanna og Eins og í fyrri bókinni koma ýmsar aðrar persónur við sögu ásamt skrautlegum ástarmálum þeirra. Rithöfundurinn Benjamín býr í sama húsi og er að leggja lokahönd á mikla og merkilega bók. Súla tekur að sumu leyti þátt í baráttu Benjamíns við bókina og kynnist þá um leið sjálfri sér. En hún þráir að sameinast fjölskyldu sinni á ný og þar gengur á ýmsu.