02/08/2016
Draggkeppni Íslands vill þakka fyrir sýndan áhuga á keppninni í ár en eins sárt og það er að segja það þá höfum við ákveðið að keppnin fái frí í ár. Við komum sterk og fersk aftur til leiks á næsta ári á 20 ára afmæli keppninnar.
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna í ár hefur keppnin ákveðið að taka sér frí þetta árið en keppnin er ekki hætt og mætir aftur til leiks að liðnu ári til að fagna 20 ára afmæli keppninnar. Keppnin átti að fara fram miðvikudaginn 3. Ágúst en hefur verið slegið á frest.
Við viljum þakka ykkur fyrir allan þann stuðning sem þið hafið sýnt keppninni og sjáumst hýr á næsta ári. Eigiði gleðilega Reykjavík Daga.
Georg Erlingsson Merritt