Bandalag íslenskra leikfélaga er samtök áhugaleikfélaga á Íslandi, stofnuð árið 1950. Leiklistarvefurinn er þjónustu- og upplýsingavefur Bandalags íslenskra leikfélaga. Vefurinn þjónar öllum þeim sem stunda leiklist á Íslandi í hvaða formi sem það er. Bandalagið rekur einu þjónustumiðstöð leiklistarinnar hérlendis og þjónar ekki einungis áhugaleikfélögum, heldur öllum þeim sem starfa að málefnum l
eiklistar á landinu. Þar eru seldar förðunarvörur og þar er að finna stærsta leikritasafn landsins. Starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar aðstoðar við útvegun sýningarleyfa og sér um innheimtu höfundargreiðslna, auk þess að veita ráðgjöf um ýmislegt sem við kemur leiklist.