Handverkskúnst

Handverkskúnst Garnverslun í Árbæ með góða þjónustu og þekkingu. Erum með gæða garn frá Drops, Scheepjes, Dottir Dyeworks, Onion Knit og Permin

Handverkskúnst samanstendur af mæðgunum Elínu "Handóð" Kristínu og Guðrúnu Maríu. Ásamt því að reka garnverslunina erum við með á veturna prjóna- og heklnámskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna. Námskeiðin verða jafnt fyrir konur sem karla og örvhentir eru velkomnir. Handverkskúnst
Hraunbæ 102a, 110 Reykjavík
www.garn.is
[email protected]

30/08/2026

DROPS september afslátturinn er byrjaður 🥳🥳🥳




27/08/2026

Kristín prjónaði sér þessa fallegu Happy peysu 😍 og við bara urðum að skella í eitt mátulega miðaldra reel af Kristínu í peysunni 😅
Kid-Silk er tilvalið í Happy peysuna oooog er á 30% afslætti út ágúst - sem er frekar Happy díll 👌

Nýlega komu nokkrir nýir sjálfmynstrandi litir í DROPS Snow. Sumir fallegri en aðrir en allir samt fallegir. Við erum bú...
24/08/2026

Nýlega komu nokkrir nýir sjálfmynstrandi litir í DROPS Snow. Sumir fallegri en aðrir en allir samt fallegir. Við erum búnar að prjóna og hekla prufur úr flestum litunum ef þið viljið koma og sjá hvernig þeir koma út 😃




DROPS sendingin er komin í hús. Búið að telja og setja inn í kerfið. Svo í dag fer garnið upp í hillur 💪
20/08/2026

DROPS sendingin er komin í hús. Búið að telja og setja inn í kerfið. Svo í dag fer garnið upp í hillur 💪




Við urðum fyrir því óhappi snemma í morgun að það var brotist inn í búðina. Einhver ógæfumaður náði að brjóta rúðuna með...
16/08/2026

Við urðum fyrir því óhappi snemma í morgun að það var brotist inn í búðina. Einhver ógæfumaður náði að brjóta rúðuna með því að kasta í hana stóru grjóti og skríða svo inn um gatið.

Hann var ekki að falast eftir garni heldur skiptimyntinni í kassanum. Hann hafði ekki mikið upp úr krafsinu því kassinn er tæmdur daglega.

Öryggismiðstöðin var fljót á staðinn og hringdi á lögguna. Löggan var líka fljót á staðinn og handtók ógæfumanninn sem var enn á staðnum.

Mamma, Guðrún, var vöknuð snemma og svaraði Öryggismiðstöðinni þegar þeir hringdu. Hún reyndi að hringja í mig, Elínu, en ég steinsvaf í gegnum þetta allt saman. Guðmunda systir vaknaði hins vegar og var svo yndisleg að mæta á staðinn og ganga frá öllu.

Systursynir mínir höfðu miklar áhyggjur af því hvað hefði orðið um stóra steininn og fór Petrea systir með þá í vettvangsferð í dag til að skoða grjótið "góða".

Við fengum þessa fínu viðarplötu í staðinn fyrir rúðuna en vonum að henni verði skipt út sem fyrst. Sem betur fer urðu ekki aðrar skemmdir á búðinni en það.

Annars er það bara business as usual og við mæðgur opnum kl. 11 á morgun 😊

Við ætlum að loka snemma á morgun, miðvikudaginn 12. ágúst, svo við séum örugglega komnar á réttan stað til að fylgjast ...
11/08/2026

Við ætlum að loka snemma á morgun, miðvikudaginn 12. ágúst, svo við séum örugglega komnar á réttan stað til að fylgjast með sólmyrkvanum.

Eigum við að ræða hversu geggjaðir litirnir í þessu teppi eru 😍 DROPS Karisma er tilvalið í teppi. Fallegir litir, mjúkt...
10/08/2026

Eigum við að ræða hversu geggjaðir litirnir í þessu teppi eru 😍 DROPS Karisma er tilvalið í teppi. Fallegir litir, mjúkt, þvælist vel og fer beint í þvottavélina 👌 Guðmunda systir/dóttir heklaði þetta gullfallega teppi og gaf svo til Hringsins 🙏 Sofia frænka valdi litina 🙌





Address

Hraunbær 102a
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 11:00 - 17:00
Tuesday 11:00 - 17:00
Wednesday 11:00 - 17:00
Thursday 11:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00
Saturday 11:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Handverkskúnst posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Handverkskúnst:

Shortcuts

Featured

Share