Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Barnamenningarhátíð í Reykjavík ✨🩵🦢 Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2026 fer fram 20. - 26. apríl. 🦢🩵✨ Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 8. - 13. apríl 2025.

Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menningu barna, með börnum og fyrir börn. Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og fara fjölbreyttir viðburðir fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum og listaskólum. Jafnframt er boðið upp á dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur, Hörpu og lista- og menningarstofnunum borgarinnar. Hátíðin rúmar allar listgreinar sem börn og fullorðnir geta notið sér að kostnaðarlausu.

11/05/2026

Takk fyrir komuna á Barnamenningarhátíð 2026 🥳❤

Barnamenningarhátíð í Reykjavík fór fram um alla borg í lok apríl og gekk sérlega vel fyrir sig. Viðburðir á hátíðinni voru vel sóttar og börnin nutu þess að sýna og njóta alls þess sem í boði var 💃🎶🎨

Fjöldi fólks vann að undirbúningi og skipulagningu Barnamenningarhátíðar, starfsfólk Reykjavíkurborgar á leikskólum, í grunnskólum, hjá frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum og einstaklingar. Takk fyrir ykkar framlag!

Sjáumst á Barnamenningarhátíð 2027 dagana 19. - 25. apríl 💚💜

🎶✨Unghljómsveitirnar Espólín, Spothlight, Krass og Blys komu fram í Ráðhúsi Reykjavíkur á Barnamenningarhátíð í samstarf...
29/04/2026

🎶✨Unghljómsveitirnar Espólín, Spothlight, Krass og Blys komu fram í Ráðhúsi Reykjavíkur á Barnamenningarhátíð í samstarfi við Miðstöðina. Ungmennin buðu upp á glæsilegan viðburð og ljóst að þau eiga framtíðina fyrir sér!🎤😍

28/04/2026

Krakkar teikna!

Hér má sjá afrakstur úr hreyfimyndasmiðjunni Krakkar teikna sem skapandi framleiðslustofan Verbúð 53 hélt utan um og skipulagði.
✨✏️🖍️✨
Hugmynd þeirra var að búa til skemmtilegan og aðgengilegan viðburð fyrir börn og ungmenni þar sem þau taka þátt í gerð hreyfimyndar. Hver þátttakandi teiknaði mynd og hver mynd varð svo einn rammi í teiknimyndinni.
✨✏️
Markmið þeirra var að vekja áhuga barna og ungmenna á myndlist og gefa þeim vettvang til að kynnast ólíkum hugmyndum, teiknistílum og sjónarhornum. Þeir vilja sýna hvernig fjölbreytt framlög geta myndað eina heild og að hvert framlag skiptir máli, óháð færni eða reynslu. Með þessu var lögð áhersla á samkennd, virðingu og skilning í gegnum skapandi samvinnu.

🎭Ævintýrahöllin í Gerðubergi setti punktinn yfir i-ið á Barnamenningarhátíð 2026.Börn og fjölskyldur nutu skemmtilegrar ...
28/04/2026

🎭Ævintýrahöllin í Gerðubergi setti punktinn yfir i-ið á Barnamenningarhátíð 2026.
Börn og fjölskyldur nutu skemmtilegrar dagskrár og stemningin var frábær báða dagana þessa síðustu helgi aprílmánaðar💜
✨Takk fyrir að taka þátt og takk fyrir komuna á Barnamenningarhátíð!

🌟🌟Unghljómsveitir munu koma fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, föstudag, kl. 17.00. 🌟🌟Hljómsveitirnar sem koma fram eru E...
24/04/2026

🌟🌟Unghljómsveitir munu koma fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, föstudag, kl. 17.00. 🌟🌟

Hljómsveitirnar sem koma fram eru Espólín, Spotlight, Krass og Blys.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Miðstöðin.

Öll velkomin og frítt inn 🎤

🌞Börn og fjölskyldur þeirra heimsóttu Big bang tónlistarhátíðina í Gerðubergi á sumardaginn fyrsta, sem fór fram í Reykj...
24/04/2026

🌞Börn og fjölskyldur þeirra heimsóttu Big bang tónlistarhátíðina í Gerðubergi á sumardaginn fyrsta, sem fór fram í Reykjavík í fimmta sinn.
🥁🎼Boðið var upp á fjölda tónlistarviðburða, innsetninga og tónlistatengdar smiðjur.
🪇🎷Eins og áður var upplifun barna sett í forgrunn.
🎺🥁Takk öll fyrir komuna!

Leikskólabörn í Breiðholti opnuðu myndlistasýningu í Gerðubergi þar sem unnið var með þema Barnamenningarhátíðar í Reykj...
24/04/2026

Leikskólabörn í Breiðholti opnuðu myndlistasýningu í Gerðubergi þar sem unnið var með þema Barnamenningarhátíðar í Reykjavík, samkennd og samfélag. Við vinnslu á verkunum veltu börnin fyrir sér hvað er samfélag og hvaðan kemur samkenndin, úr hjartanu, líkamanum eða heilanum? Verkin eru til sýning í Borgarbókasafninu í Gerðubergi. 🌏✨🎨

💥Á Sumardaginn fyrsta kemur BIG BANG tónlistarhátíðin með sumarið í Breiðholtið. 🎶Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá...
22/04/2026

💥Á Sumardaginn fyrsta kemur BIG BANG tónlistarhátíðin með sumarið í Breiðholtið.

🎶Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í Borgarbókasafninu Gerðubergi og í Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi frá klukkan 11.00 til 16.00.

🙌Múrbalasláttur, Míní Rave, Gorma kvartett, tónlistarföndur og tónleikhús.

✨Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, því fjölbreytnin er í fyrirrúmi.

🧡Allt frítt og öll velkomin!

Nánar á barnamenningarhatid.is

22/04/2026

Barnamenningarhátíð fer frábærlega af stað ❤🎉

Viðburðir hafa farið fram um alla borg þar sem börn hafa verið í forgrunni. Hér má sjá brot af því besta sem fór fram í Hörpu á opnun Barnamenningarhátíðar á mánudag og á Söngvavori í gær 🥳💃

Barnamenningarhátíð heldur áfram út sunnudag með fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum eins og Big Bang tónlistarhátíðinni á sumardaginn fyrsta og Ævintýrahöllinni um helgina 🎶💚

Dagskrá Barnamenningarhátíðar má finna á
https://reykjavik.is/barnamenningarhatid/dagskra

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Barnamenningarhátíð í Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Barnamenningarhátíð í Reykjavík:

Featured

Share