Íþróttabandalag Reykjavíkur

Íþróttabandalag Reykjavíkur Heildarsamtök íþróttafélaganna í Reykjavík. Hér verður aðallega komið áleiðis fréttum af gengi Reykjavíkurúrvalsliða.

Almennar fyrirspurnin óskast sendar á [email protected]. ÍBR, eða Íþróttabandalag Reykjavíkur eru heildarsamtök íþróttafélaganna í Reykjavík og var stofnað 31. ágúst árið 1944. ÍBR er aðili að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og er tengiliður íþróttafélaganna við Reykjavíkurborg. ÍBR gætir hagsmuna íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík gagnvart opinberum aðilum og vinnur að eflingu og skipulagningu íþróttastarfsemi í Reykjavík.

Göngufótbolti hjá Knattspyrnufélaginu Þrótti, í samstarfi við ÍBR, býður ykkur til kynningar á göngufótbolta mánudaginn ...
04/09/2026

Göngufótbolti hjá Knattspyrnufélaginu Þrótti, í samstarfi við ÍBR, býður ykkur til kynningar á göngufótbolta mánudaginn 7. september kl. 19:45 á Sundavelli Þróttar í Laugardalnum, við hliðina á Laugardalsvellinum. Þar verður stillt upp völlum með sérhönnuðum mörkum fyrir þessa skemmtilegu íþrótt.

Göngufótbolti er fyrir alla sem vilja stunda skemmtilega og hollvænlega hreyfingu á rólegum nótum þar sem félagslegi þátturinn er í fyrirrúmi.

Hverjir hafa sérstakt gagn af göngufótbolta?

· Eldra fólk sem vill hreyfa sig og hafa gaman.

· Fatlaða einstaklinga sem leita að aðgengilegu íþróttastarfi.

· Fólk í endurhæfingu eftir meiðsli.

· Afreksfólk með skaddaða liði sem getur ekki stundað hefðbundinn fótbolta.

· Vinahópa og vinnustaðahópa sem vilja hittast og hreyfa sig saman.

Rúnar Már Sverrisson, umsjónarmaður göngufótboltans hjá Þrótti og fulltrúi í grasrótarnefnd KSÍ, sér um kynninguna. Hann fer yfir helstu atriði, stýrir upphitun og skiptir í lið. Spilað verður til kl. 21:00 – þetta verður skemmtilegt kvöld.

Íþróttafélög í Reykjavík sem hafa áhuga á að mæta – hvort sem það eru 1, 2 eða 10 leikmenn – eru beðin um að senda póst á [email protected] fyrir kl. 16:00 mánudaginn 7. september, svo hægt sé að undirbúa æfinguna með boltum, vestum og völlum.

Göngufótbolti er í hraðri þróun um allan heim enda er hann skemmtilegur, allir geta verið með og hreyfingin er holl svo um munar.

Sláið til – þið sjáið ekki eftir því.

Laugardaginn 5. september fer fram íþrótta og frístunda hátíð frá kl.9-13 🎊Það verður verður fullt af skemmtilegri dagks...
03/09/2026

Laugardaginn 5. september fer fram íþrótta og frístunda hátíð frá kl.9-13 🎊

Það verður verður fullt af skemmtilegri dagksrá en hátíðin fer fram í íþróttahúsinu í Austurbergi 1 og 3 og í íþróttahúsinu við Skógarsel 12.

Það verður grillveisla kl.12 þar sem boðið verður upp á fría drykki og veitingar 👏

Ekki láta þig vanta!

---------------------

🎊 Sports and youth leisure festival, Saturday, September 5th!

Join us on Saturday, September 5, from 9:00 AM–1:00 PM for a fun-filled sports & recreation Festival!

There will be plenty of exciting activities throughout the morning. The festival will take place at Austurberg 1 & 3 and Skógarsel 12.

At 12:00 PM, we’ll fire up the grill and offer free drinks and refreshments to everyone! 👏

Don’t miss out, we’d love to see you there!

Í gær fagnaði Þór Björnsson, íþróttastjóri Fram, merkum tímamótum en þá voru liðin 25 ár frá því að hann hóf störf hjá f...
02/09/2026

Í gær fagnaði Þór Björnsson, íþróttastjóri Fram, merkum tímamótum en þá voru liðin 25 ár frá því að hann hóf störf hjá félaginu.

Á þessum aldarfjórðungi hefur Þór orðið órjúfanlegur hluti af starfi Fram. Hann gengur í öll þau fjölbreyttu verkefni sem falla til hjá félaginu og fáir þekkja starfsemi þess, sögu og fólk betur en hann. Það má því með sanni segja að Þór sé hafsjór af fróðleik þegar kemur að Fram.

Á árum áður var hann leikmaður félagsins og stóð þá á milli stanganna sem markvörður í handbolta. Síðar tók hann að sér þjálfun meistaraflokka og yngri flokka félagsins.

Knattspyrnufélagið Fram óskar Þór innilega til hamingju með 25 ára starfsafmælið og þakkar honum fyrir allt sem hann hefur lagt af mörkum fyrir félagið á þessum aldarfjórðungi.

Til hamingju með þennan merka áfanga!

Myndasöfnun: Jóhann G. Kristinsson.

Við eigum afmæli í dag 🎊ÍBR á sér langa og farsæla sögu og hefur í gegnum árin gegnt mikilvægu hlutverki í íþróttalífi b...
31/08/2026

Við eigum afmæli í dag 🎊

ÍBR á sér langa og farsæla sögu og hefur í gegnum árin gegnt mikilvægu hlutverki í íþróttalífi borgarinnar. Starfið hefur frá upphafi snúist um að styðja við íþróttafélögin í Reykjavík, skapa tækifæri fyrir fólk til að stunda íþróttir og stuðla að öflugu og fjölbreyttu íþróttastarfi fyrir alla.

Í dag starfar ÍBR með fjölmörgum íþróttafélögum og kemur að fjölbreyttum verkefnum og viðburðum , allt frá barna- og unglingastarfi til stórra íþróttaviðburða sem draga að sér þátttakendur og gesti alls staðar að úr heiminum. 🏃‍♀️🏃‍♂️

Til hamingju með afmælið, ÍBR og og takk fyrir öll árin! 🎂🎈

Opið er fyrir umsóknir í styrktarstjóð ÍBR 🤝Það er hægt að leggja inn umsókn til 15 apríl!Frekari upplýsingar 👉 https://...
15/03/2026

Opið er fyrir umsóknir í styrktarstjóð ÍBR 🤝

Það er hægt að leggja inn umsókn til 15 apríl!

Frekari upplýsingar 👉 https://www.ibr.is/styrktarsjoduribr

17/02/2026

Þakkarmyndband Norðurljósahlaups ON 2026 💥

Þessa snilld gerðu .is fyrir okkur og þetta heldur betur nær þeirri frábæru stemningu sem var í hlaupinu í ár 🙌

Gleðilega hátíð 🎄Við þökkum fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða og sjáumst hress á þeim fjölmörgu íþróttaviðburðum ...
24/12/2025

Gleðilega hátíð 🎄

Við þökkum fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða og sjáumst hress á þeim fjölmörgu íþróttaviðburðum sem eru á döfinni á nýju ári 👏

----------------------------------------------------
Happy holidays 🎄

We thank you for your participation this year and see you at one of our many sporting evens in the new year 👏

Eygló Fanndal Sturludóttir er Íþróttastjarna árins 2025 🙌Eygló átti stórkostlegt ár þar sem Evrópumeistaratitill fullorð...
17/12/2025

Eygló Fanndal Sturludóttir er Íþróttastjarna árins 2025 🙌

Eygló átti stórkostlegt ár þar sem Evrópumeistaratitill fullorðinna er sá árangur sem hæst ber að nefna. Þar kom hún, sá og sigraði og fyrir þann árangur var hún líka valin önnur besta er kemur að heildarstigum óháð þyngdarflokki. Hún er fyrsti íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í ólympískum lyftingum fullorðinna. Fyrr á árinu varð hún Íslandsmeistari í 5. sinn í röð og svo tryggði hún sér einnig 1. sæti á Smáþjóðamótinu.

Við óskum Eygló innilega til hamingju með frábæran árangur 🫶

Íþróttalið ársins 2025 🙌Meistaraflokkur kvenna Vals í handknattleik!Valur átti frábært tímabil og eru Íslandsmeistarar 2...
17/12/2025

Íþróttalið ársins 2025 🙌

Meistaraflokkur kvenna Vals í handknattleik!

Valur átti frábært tímabil og eru Íslandsmeistarar 2025. Hápunktur tímabilsins verður að teljast frábær sigur Vals í Evrópubikarkeppni kvenna en þar sigraði liðið sterkt lið Porrino frá Spáni í úrslitum keppninnar. Valur er fyrsta íslenska kvennaliðið í handknattleik til að vinna Evróputitil.

Við óskum Val og öllum liðunum sem tilnefnd voru til hamingju með árangurinn 👏

Veitt verða verðlaun fyrir íþróttastjörnu og íþróttalið ársins 2025 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur, miðvikud...
12/12/2025

Veitt verða verðlaun fyrir íþróttastjörnu og íþróttalið ársins 2025 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur, miðvikudaginn 17. desember.

Þetta er í fyrsta sinn sem veitt eru verðlaun fyrir íþróttastjörnu ársins. Breytingarnar eru í megindráttum þannig að tilnefningarnar eru ekki kynjaskiptar. Að vanda eru veitt verðlaun fyrir íþróttalið ársins en hér að neðan má sjá tilnefningarnar í ár.

Address

Engjavegur 6
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

535 3700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþróttabandalag Reykjavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Íþróttabandalag Reykjavíkur:

Shortcuts

Featured

Share