Ozz markaðshús ehf.

Ozz markaðshús ehf. Markaðsstjóri til leigu

01/12/2019

Auglýsing Skoðun Þurfum við að hlaupa hraðar? Lean að­ferðir við styttingu vinnu­vikunnar Guðmundur Ingi Þorsteinsson og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir Guðmundur Ingi Þorsteinsson og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir Föstudagur 29. nóvember 2019 Kl. 07.16 Deila Auglýsing Byggt á ...

Það er fátt skemmtilegra en að sjá viðskiptavini vaxa vel og dafna. Cubus er gott dæmi um það en þeir hafa bætt við sig ...
20/11/2019

Það er fátt skemmtilegra en að sjá viðskiptavini vaxa vel og dafna.

Cubus er gott dæmi um það en þeir hafa bætt við sig þremur nýjum sérfræðingum á mjög skömmum tíma til að anna aukinni eftirspurn hjá fyrirtækinu.

Vel gert Cubus.

Hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtækið Cubus hefur nú ráðið til starfa Sigurð Bjarnason, en hann mun starfa sem ráðgjafi í viðskiptagreind og vöruhúsum gagna.

Flott námskeið fyrir byrjendur í Power BI hjá Cubus fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér það.Ef þig vantar hins vegar ...
30/10/2019

Flott námskeið fyrir byrjendur í Power BI hjá Cubus fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér það.

Ef þig vantar hins vegar aðstoð við markaðssetningu, viðburði, samfélagsmiðla eða gerð markaðsefnis heyrðu í Ozz.

Ozz - markaðsstjóri til leigu
Sími: 7791800, [email protected]

Þann 14. nóvember mun Cubus halda Power BI byrjendanámskeið. Námskeiðið er sérsniðið og tilvalið fyrir þá sem vilja ná tökum á Power BI, tengja gögn, útbúa skýrslur og mælaborð og deila með öðrum. Kennari námskeiðsins er Arngrímur Einarsson, einn af eigendum Cubus, sem he...

Skemmtilegt verkefni með Hringrás Þeir eru fyrstir til þess að bjóða upp á rafræna afskráningu bíla af götunni á nýjum v...
25/10/2019

Skemmtilegt verkefni með Hringrás

Þeir eru fyrstir til þess að bjóða upp á rafræna afskráningu bíla af götunni á nýjum vef og sjá um ferlið frá upphafi til enda:

1. Bíl er komið á móttökustöð eða sóttur
2. Skilavottorð er fyllt út á rafrænan hátt og bíllinn er afskráður.
3. Eigandi bílsins fær greiddar 20.000 kr.

Til að farga bíl:
➡️ hringras.is/bilar/
➡️ Sími: 550 1900, [email protected]

„Með því að nýta sér rafræna afskráningu einföldum við áður flókið ferli þar sem eigandi þurfti að vera á staðnum þegar bíllinn var sóttur, afhenda pappíra og koma númeraplötum á rétta staði. Með rafrænni undirritun á skilavottorði er þetta gert einfaldara í gegnum vefinn“, segir Daði Jóhannesson, framkvæmdastjóri.

Hringrás er stærsti móttakandi bíla til förgunar. Fyrirtækið býður upp á rafræna undirskrift skilavottorða á nýrri vefsíðu til að spara viðskiptavinum sínum sporin, tíma og fyrirhöfn.

Frumsýning á Pabbahelgum í gær með hinni frábæru og stórsnjöllu vinkonu minni, leikkonu, handritshöfundi og leikstjóra N...
03/10/2019

Frumsýning á Pabbahelgum í gær með hinni frábæru og stórsnjöllu vinkonu minni, leikkonu, handritshöfundi og leikstjóra Nanna Kristín Magnúsdóttir 🌹

Þættirnir lofa ótrúlega góðu en ég hef sjaldan verið eins límd við skjáinn eins og í gær. Get ekki beðið eftir að sjá meira.

Rétt þegar ég var að stofna Ozz kom Nanna til mín og bað mig að gera logo fyrir Cubs Productions að eftirmynd teikningar sem Unnur dóttir hennar gerði.

Útkoman var þessi 😘 sjá teikningu meðfylgjandi

Cubus, einn af viðskiptavinum OZZ, sérhæfir sig í ráðgjöf í viðskiptagreind og áætlanagerð.Í Fréttablaði dagsins, þann 2...
21/08/2019

Cubus, einn af viðskiptavinum OZZ, sérhæfir sig í ráðgjöf í viðskiptagreind og áætlanagerð.

Í Fréttablaði dagsins, þann 21. ágúst, er grein um hvernig einfalda má stjórnendum áætlanagerð ásamt kynningu á þeim viðburðum sem framundan eru hjá Cubus.

Greinina í heild má lesa hér að neðan http://www.frettabladid.is/kynningar/vidskiptagreind-og-aaetlanir/

Skráning á viðburði Cubus er frí en sætaframboð er takmarkað.

www.cubus.is/vidburdaskra

Vantar þig aðstoð við markaðsmálin?Kynntu þér markaðsstjóra til leigu.Ráðgjöf í markaðsmálum, gerð kynningarefnis, vefum...
19/08/2019

Vantar þig aðstoð við markaðsmálin?
Kynntu þér markaðsstjóra til leigu.

Ráðgjöf í markaðsmálum, gerð kynningarefnis, vefumsjón eða viðburðastjórnun.

Hafðu samband:
[email protected], sími: 7791800

Ferð þú áhyggjulaus inn í sumarfríið?Við hjá OZZ bjóðum upp á alhliða markaðsráðgjöf og aðstoð við gerð kynningarefnis.S...
02/07/2019

Ferð þú áhyggjulaus inn í sumarfríið?

Við hjá OZZ bjóðum upp á alhliða markaðsráðgjöf og aðstoð við gerð kynningarefnis.

Sumarið er oft góður tími til að gefa sér andrými til að huga að markaðssetningu.

Hafðu samband: [email protected] eða í síma 779 1800

Ozz - markaðsstjóri til leigu

Við hjá Ozz markaðshúsi þökkum kærlega fyrir komuna á morgunverðarfundinn sem haldinn var í samstarfi við Vendum ehf. - ...
06/06/2019

Við hjá Ozz markaðshúsi þökkum kærlega fyrir komuna á morgunverðarfundinn sem haldinn var í samstarfi við Vendum ehf. - Stjórnendaþjálfun á Grand Hotel Reykjavik í morgun fyrir fullum sal af stjórnendum. Við erum hrærðar og fullar af þakklæti.

Viðfangsefni dagsins var hvernig stjórnendur geta aukið virði sitt með stefnumiðuðu innra starfi en ein af áskorunum fyrir stjórnendur í dag er að vera bæði áhrifavaldur og huga að eigin vörumerki í senn.

Alda Sigurdardottir, eigandi Vendum, ræddi af ástríðu um „listina að hafa áhrif“ en Alda hefur skapað sér orðspor sem þaulreyndur stjórnendamarkþjálfi.

Katrín M Guðjónsdóttir, fór yfir hagnýt ráð fyrir stjórnendur og leiðtoga sem vilja auka persónulegt virði sitt og mikilvægi þess að setja sér gildi sem tóni við stefnu fyrirtækisins. Með markvissum hætti er hægt að efla hvern starfsmann og nýta innri markaðssetningu sem lausn í uppbyggingu eigin vörumerkis.

[email protected]

Á 20 ára ferli FKA hefur mikið starf verið unnið af hendi og í kringum það skapast fjöldi nefnda og deilda öflugra félag...
09/04/2019

Á 20 ára ferli FKA hefur mikið starf verið unnið af hendi og í kringum það skapast fjöldi nefnda og deilda öflugra félagskvenna sem leggja sitt af mörkum við að koma okkur lengra í baráttu um sýnileika og jafnrétti kvenna í atvinnulífinu.

Á þessum tímamótum fannst FKA við hæfi að vörumerki FKA fengi uppfærslu og var lagt upp með að halda í grunninn í vörumerkið sem hefur fylgt okkur í gegnum tíðina en þó með nútímalegri blæ.

Var Ozz fengið í verkið.

Fyrir glöggt gestsaugað var vörumerkið frumsýnt á afmælishátíðinni.

Nýtt afmælismerki FKA er hægt að nota með og án texta og mun hver og ein deild eiga einn stoðlit sem nota má í markaðsefni á viðburðum sínum.

Hægt verður að nálgast öll vörumerkin á vefsíðu FKA ásamt hönnunarstaðli von bráðar.

Address

Kalkofnsvegi 2
Reykjavík
101REYKJAVÍK

Telephone

7791800

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ozz markaðshús ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share