Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO

Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO Reykjavík var útnefnd Bókmenntaborg UNESCO í ágúst 2011. Titillinn er varanlegur / The City of Bókmenntaborgirnar eru hluti af stærra neti Skapandi borga UNESCO.

Reykjavík var útnefnd Bókmenntaborg UNESCO í ágúst 2011, en hún var fimmta borgin í heiminum til að hljóta þennan heiður og sú fyrsta utan ensks málsvæðis. Fyrir voru í samtökum Bókmenntaborga UNESCO borgirnar Edinborg í Skotlandi, Iowa City í Bandaríkjunum, Melbourne í Ástralíu og Dublin á Írlandi en síðan hefur netið farið ört stækkandi. The City of Reykjavik was designated as a UNESCO City of L

iterature in August 2011, the fifth city in the world and the first non-native English speaking city to receive the honorary title. Reykjavik joined four other UNESCO Cities of Literature: Edinburgh in Scotland, Melbourne in Australia, Iowa City in the USA and Dublin in Ireland. The network has since continued to grow. The UNESCO Cities of Literature are part of the larger UNESCO Creative Cities Network. Starfsfólk Bókmenntaborgarinnar: Kristín Ingu Viðarsdóttir og Kjartan Már Ómarsson. Staff: Kristín Ingu Viðarsdóttir and Kjartan Már Ómarsson.

Dvalarstyrkur í Lettlandi fyrir höfunda frá  bókmenntaborgum UNESCOTukums bókmenntaborg UNESCO hefur opnað fyrir umsókni...
14/06/2026

Dvalarstyrkur í Lettlandi fyrir höfunda frá bókmenntaborgum UNESCO

Tukums bókmenntaborg UNESCO hefur opnað fyrir umsóknir um ritlistardvöl í Jaunpils í október 2026.

Dvölin fer fram í 700 ára gömlum miðaldakastala þar sem höfundum gefst tækifæri til að vinna að verkefnum sínum í friðsælu og söguríku umhverfi. Dvalartími er 14–28 dagar og aðstaðan er sérhönnuð fyrir skapandi störf.

Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar má finna hér:

https://jaunpilspils.lv/en/jaunpils-rakstnieku-pils/

12/06/2026
🎉
28/05/2026

🎉

Arnór Steinn Ívarsson og Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir hljóta Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2026!
Þetta er í nítjánda sinn sem styrkirnir sem eru veittir.
Við óskum þeim Arnóri og Steinunni innilega til hamingju og óskum þeim alls góðs á ritvellinum! 🥰🥰

Ert þú með bók, kvikmynd, sjónvarpsefni, vefsíðu eða aðra miðlun í undirbúningi sem tengist sögu Reykjavíkur? ⬇️⬇️⬇️
28/05/2026

Ert þú með bók, kvikmynd, sjónvarpsefni, vefsíðu eða aðra miðlun í undirbúningi sem tengist sögu Reykjavíkur? ⬇️⬇️⬇️

📣Ert þú með bók, kvikmynd, sjónvarpsefni, vefsíðu eða aðra miðlun í undirbúningi sem tengist sögu Reykjavíkur og hyggst nota ljósmyndir Ljósmyndasafns Reykjavíkur í verkefninu?

📸Þá getur þú sótt um styrk til Reykjavíkurborgar vegna kaupanna. Styrkurinn felst í niðurgreiðslu á kostnaði vegna myndbirtinga.

Þú sækir um á: https://reykjavik.is/minar-sidur

📷Ljósmynd frá Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography: Aðalheiður Jóhannesdóttir býður upp á konfekt í sælgætisgerð Nóa hf. í desember 1963. Bragi Guðmundsson / Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography

28/05/2026
Dagana 11.–15. maí fór ársfundur bókmenntaborga UNESCO fram í Tartu, Eistlandi, þar sem 66 fulltrúar frá 42 bókmenntabor...
20/05/2026

Dagana 11.–15. maí fór ársfundur bókmenntaborga UNESCO fram í Tartu, Eistlandi, þar sem 66 fulltrúar frá 42 bókmenntaborgum víðs vegar að úr heiminum komu saman. Á dagskrá voru vinnufundir, heimsóknir í bókmenntastofnanir borgarinnar, fundir með rithöfundum og öðru bókmenntafólki, auk þátttöku í alþjóðlegu bókmenntahátíðinni Prima Vista.

Reykjavík hefur undanfarin ár gegnt leiðandi hlutverki innan samstarfsnets bókmenntaborga UNESCO, sem hefur aukið sýnileika bókmennta frá Reykjavík og skapað fjölmörg alþjóðleg tækifæri fyrir reykvíska höfunda.

Að þessu sinni tóku tveir höfundar frá Reykjavík þátt í samstarfsverkefnum tengdum ráðstefnunni. María Elísabet Bragadóttir, sem dvelur nú í höfundadvöl í Literaturstadt Heidelberg, lagði til texta í verkefnið TOPONYMY. TOPONYMY er farandsýning sem færist milli bókmenntaborga og tekur á sig nýja mynd í hverri gestaborg.

Sýningin var þróuð af Québec, ville de littérature Unesco og var fyrst sett upp árið 2023 á ársfundi bókmenntaborga þar í borg. Síðan hefur hún verið sýnd í Jakarta og Heidelberg og er nú komin til Tartu. Sýningin varpar ljósi á uppruna örnefna bókmenntaborga með nútímalegri túlkun.

Þá tók Ingólfur Eiríksson, sem áður hefur dvalið sem gestahöfundur í Tartu, þátt í verkefninu Bus Poetry, þar sem ljóð birtast í strætisvögnum borgarinnar. Verkefnið hefur verið starfrækt frá árinu 2015 og eru ný ljóð valin ár hvert. Ljóð Ingólfs birtist jafnframt í sérstöku safnriti sem gefið var út í tengslum við ráðstefnuna.

Address

Borgartún 12-14
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO:

Featured

Share