Mótettukórinn

Mótettukórinn MÓTETTUKÓRINN - THE MOTET CHOIR

Mótettukórinn var stofnaður 1982 af Herði Áskelssyni sem stjórnaði kórnum í 4 áratugi. Mizerna cicha - úts.

Núverandi stjórnandi kórsins er Stefan Sand. Marcin Cieslinski:
http://www.youtube.com/watch?v=zLLl07RIMew
Jólanótt - Halldór Hauksson:
https://www.youtube.com/watch?v=SprReVAH-n4
Kvöldvers - Tryggvi M Baldvinsson:
http://www.youtube.com/watch?v=8v6GK0Uo524
Passía- Hafliði Hallgrímsson:
http://www.youtube.com/watch?v=lOMwitgoSj4

Concert videos:
http://www.youtube.com/watch?v=irZxCtmwSbs
http:

//www.youtube.com/watch?v=iHexZwEAFbY
http://www.youtube.com/watch?v=htw-SffOdeI

Jólalag Ríkisútvarpsins 2010:
http://www.youtube.com/watch?v=RFtc-CzrlDg

Um mánaðamótin mars og apríl fluttum við Mótettur Bachs á tvennum tónleikum, í Langholtskirkju og í Hallgrímskirkju í Sa...
22/04/2026

Um mánaðamótin mars og apríl fluttum við Mótettur Bachs á tvennum tónleikum, í Langholtskirkju og í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þessir tveir tónleikar voru lokakafli mjög langs ferlis þar sem þrír kórstjórar komu að því að móta túlkun mótettanna. Sá fyrsti þeirra var Hörður Áskelsson, stofnandi kórsins. Mótetturnar gáfu kórnum nafn sitt og staða þeirra í efnisskrá kórsins var sérstök. Kórinn hefur margoft sungið mótettur Bachs undir stjórn Harðar, síðast á Kirkjulistahátíð 2019 og á tónleikum í Langholtskirkju árið 2021.

Hugmyndin um að flytja allar mótettur Bachs á einum tónleikum kom upp á þeim tíma sem kórinn vann með Bjarna Frímanni Bjarnasyni sem nálgaðist mótetturnar af eldmóði og sköpunargáfu (eins og þegar hann fékk hugmyndina að nota harmonikku í stað óbós í hljóðfæraleik). Á þessu tímabili vann kórinn einnig með Benedikti Kristjánssyni sem veitti ómetanleg ráð varðandi túlkun á Bach. Kórinn flutti síðan þrjár mótettur undir stjórn Bjarna á Sumartónleikum í Skálholti 2024. Tónleikunum sem fyrirhugaðir voru haustið það ár varð þó að fresta vegna ófyrirséðra aðstæðna. Æfingar hófust aftur í desember 2025 undir stjórn núverandi kórstjóra okkar, Stefans Sand, sem nálgaðist verkefnið af einbeitingu og hollustu. Mótetturnar voru loksins fluttar undir hans stjórn í lok mars 2026.

Við viljum þakka öllum sem tóku þátt í þessu langa og gefandi ferli. Kórstjórum okkar sem mótuðu túlkunina hver á sinn hátt, ráðgjöfum okkar Benedikti Kristjánssyni og Herdísi Önnu Jónasdóttur fyrir ráðleggingar og innsýn, öllum frábæru hljóðfæraleikurunum okkar og síðast en ekki síst áhorfendum okkar sem börðu sér leið á tónleikana í gegnum snjóbylinn. Þökkum ykkur öllum!

Lobet den Herrn, BWV 230Mótettan Lobet den Herrn (Lofið Drottin), sem er samin við 117. Davíðssálm, hefur lengi verið ol...
27/03/2026

Lobet den Herrn, BWV 230

Mótettan Lobet den Herrn (Lofið Drottin), sem er samin við 117. Davíðssálm, hefur lengi verið olnbogabarn í verkasafni Bachs – tónlistarfræðingar hafa rökrætt og rifist um það í áratugi hvort verkið sé í raun og veru eftir Bach. Þegar mótettan var fyrst gefin út á prenti árið 1821 fullyrti útgefandinn að hann væri með handrit Bachs í fórum sínum. Síðan hefur ekki fundist tangur né tetur af þessu handriti. Mótettukórinn vill þó alls ekki skilja út undan, hvorki menn né mótettur, og syngur verkið hiklaust á tónleikum sínum í Langholtskirkju, enda erfitt að ímynda sér að einhver annar en Bach hefði getað sett þennan snarpa og snilldarlega lofsöng á blað.

Mótettukórinn syngur hinar óviðjafnanlegu mótettur Johanns Sebastians Bachs í Langholtskirkju laugardaginn 28. mars kl. 17. Miðasala á https://tix.is/event/20945/motettukorinn-flytur-motettur-bachs

Fürchte dich nicht, BWV 228Var mótettan Fürchte dich nicht (Óttastu ekki) eftir Bach frumflutt í útför frú Súsönnu Soffí...
26/03/2026

Fürchte dich nicht, BWV 228

Var mótettan Fürchte dich nicht (Óttastu ekki) eftir Bach frumflutt í útför frú Súsönnu Soffíu Winckler í Nikulásarkirkjunni í Leipzig þann 4. febrúar 1726? Því getur enginn svarað með vissu nema þau sem voru viðstödd útförina og eru sjálf öll löngu komin undir græna torfu. Ekki verður þó efast um hughreystandi áhrif þessa tveggja kóra tónverks. Kórarnir kasta á milli sín huggunarorðum úr spádómsbók Jesaja: „Óttastu ekki, ég styrki þig, ég hjálpa þér“ þangað til neðri raddirnar henda í dáleiðandi fallega fúgu sem undirspil við söng sópransins um „uppsprettu allrar gleði“.

Mótettukórinn syngur hinar óviðjafnanlegu mótettur Johanns Sebastians Bachs í Langholtskirkju laugardaginn 28. mars kl. 17. Miðasala á https://tix.is/event/20945/motettukorinn-flytur-motettur-bachs

Með glæsilegum tónleikum þarf að fylgja glæsileg efnisskrá - og þessi fór í prent rétt í þessu. Í henni er að finna marg...
24/03/2026

Með glæsilegum tónleikum þarf að fylgja glæsileg efnisskrá - og þessi fór í prent rétt í þessu.
Í henni er að finna margskonar fróðleik um mótetturnar, auk þýðinga á textum þeirra úr frummálinu þýsku.

Það er ennþá eitthvað laust í forsölu - um að gera að næla sér í miða og einfalda lífið á tónleikadag. Linkur á miðasölu er í fyrstu athugasemd.

Check out this Booklet (Small) designed by ingimar.

Komm, Jesu, komm, BWV 229Í tvö þúsund ár hefur endurkomu Jesú Krists verið beðið með eftirvæntingu. Einhverju sinni var ...
24/03/2026

Komm, Jesu, komm, BWV 229

Í tvö þúsund ár hefur endurkomu Jesú Krists verið beðið með eftirvæntingu. Einhverju sinni var sagt að mótetta Bachs Komm, Jesu, komm (Kom, Jesú, kom) væri áhrifamesta ákall mannkyns til Krists um að flýta för sinni. Verkið er ferð úr myrkri og bölsýni („líkaminn er þreyttur, krafturinn þverr æ meir“) yfir í vonarbirtu („andinn svífur til skaparans“) og hápunkturinn er hrífandi túlkun Bachs á hinum fleygu orðum úr Jóhannesarguðspjalli um „veginn, sannleikann og lífið“.

Mótettukórinn syngur hinar óviðjafnanlegu mótettur Johanns Sebastians Bachs í Langholtskirkju laugardaginn 28. mars kl. 17. Miðasala á tix:

Langholtskirkja • 28. mars

Jesu, meine Freude, BWV 227 💜❤️‍🩹🫂Fimm radda mótettan Jesu, meine Freude (Jesús er gleði mín) eftir Bach er líklega samh...
21/03/2026

Jesu, meine Freude, BWV 227 💜❤️‍🩹🫂

Fimm radda mótettan Jesu, meine Freude (Jesús er gleði mín) eftir Bach er líklega samhverfasta tónverk tónlistarsögunnar. Báðum megin við lauflétta fúgu í miðju verksins standa fimm kaflar sem kallast á þannig að fyrsti kafli verksins og sá síðasti eru samhljóma, kafli nr. 2 og 10 deila tónefni, o.s.frv. Það er þó ekki hið hugvitsamlega form verksins sem hefur hrifið áheyrendur í meira en 300 ár, heldur hvernig Bach tekst að glæða texta verksins lífi og mála hann í tónum. Ógleymanleg er hin svíðandi fallega vögguvísa þar sem söngvararnir bjóða „glysi og glaumi heimsins“ góða nótt, og þegar „ofsa og bræði Satans“ ber á góma mega áheyrendur á fremstu bekkjum vara sig!

Mótettukórinn syngur hinar óviðjafnanlegu mótettur Johanns Sebastians Bachs í Langholtskirkju laugardaginn 28. mars kl. 17. Miðasala á https://tix.is/event/20945/motettukorinn-flytur-motettur-bachs

Til hamingju með daginn elsku Johann Sebastian! 🎂💐🎉
21/03/2026

Til hamingju með daginn elsku Johann Sebastian! 🎂💐🎉

We're staying out of this one.

22/12/2025

Um leið og Mótettukórinn óskar ykkur gleðilegra jóla viljum við minna á þessa dásamlegu tónleika sem sýndir verða á Rúv annan í jólum. Kærar þakkir Listvinafélagið í Reykjavík og Benedikt Kristjánsson fyrir gjöfult og gefandi samstarf - þetta var ógleymanlegt kvöld!

Address

Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mótettukórinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Mótettukórinn:

Featured

Share

Category