Gallery Port

Gallery Port Gallery Port er listamannarekið gallerí og vinnustofa sem einblínir á unga og upprennandi listamenn.
(1)

Gallery Port fagnar í dag, 26. mars, 10 ára starfssafmæli. Eftir 10 ár af samfelldu sýningastússi og brasi víðvegar um b...
26/03/2026

Gallery Port fagnar í dag, 26. mars, 10 ára starfssafmæli. Eftir 10 ár af samfelldu sýningastússi og brasi víðvegar um bæinn notum við þessi tímamót til að tilkynna að nú setur Gallery Port upp tærnar.

Til minningar höfum gefið út prentverkt í upplagi af 101; til minningar um það fjörlega listalíf sem myndlistarfólk hefur skapað með Gallery Port á þessum 10 árum og þeim ólíku stöðum, kennileitum, sem Port hefur sett sig niður á þessum árum.

Öllum vinum og velunnurum er boðið til kveðjuhófs Gallery Port í Gallery Port næstkomandi laugardag milli kl. 16–18 á Kirkjusandi. Þið ættuð að vera farin að rata!

Bestu kveðjur

Fjölbreytt og framsækin listaverk eftir ýmsa listamenn í Gallery Port. Hér má sjá verk eftir Viktor Weisshappel, Búa Bja...
26/02/2026

Fjölbreytt og framsækin listaverk eftir ýmsa listamenn í Gallery Port. Hér má sjá verk eftir Viktor Weisshappel, Búa Bjarmar Aðalsteinsson, Halldór Sturluson, Baldur Helgason, Helgu Páley og verk úr samstarfi OrType og Péturs Geirs.

Allar nánari upplýsingar um einstök verk má nálgast í einkaskilaboðum og hjá [email protected]

Myndir af samsýningunni THROUPLE, sem opnaði síðasta laugardag. Á sýningunni koma saman listamennirnir Frosti Gnarr, Unn...
20/02/2026

Myndir af samsýningunni THROUPLE, sem opnaði síðasta laugardag. Á sýningunni koma saman listamennirnir Frosti Gnarr, Unnar Ari og tvíeykið Comfortable Universe.

“THROUPLE: Þegar þrjú eru komin í eina sæng og eiga í innilegu sambandi, með breiðri skírskotun, sem jafnast út á milli allra skyldra aðila.”
— — —

Sýningin stendur yfir til 7. mars.

Allar nánari upplýsingar um einstök verk og verkaskrá má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected]

Myndir af sýningu Búra, Shadow Self, sem nú stendur yfir í Gallery Port. Þetta er fyrsta einkasýning Búra, sem hefur sta...
28/01/2026

Myndir af sýningu Búra, Shadow Self, sem nú stendur yfir í Gallery Port. Þetta er fyrsta einkasýning Búra, sem hefur starfað sem húðflúrari um árabil. Hann lærði við Swedish Academy of Realist Art og var svo um tveggja ára skeið nemandi Samuel Järnegård Fogelvik.

Sýningin stendur yfir til 5. febrúar. Allar nánari upplýsingar um einstök verk og verkaskrá sýningarinnar má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected]

Myndir af sýningu Búra, Shadow Self, sem nú stendur yfir í Gallery Port. Hann hefur starfað sem tattúlistamaður um áratu...
17/01/2026

Myndir af sýningu Búra, Shadow Self, sem nú stendur yfir í Gallery Port. Hann hefur starfað sem tattúlistamaður um áratugaskeið og rekið Íslensku Húðflúrstofuna. Hann lærði við Stockholm Academy of Realist Art og var svo um tveggja ára skeið nemandi í einkatímum hjá einum kennara skólans, Samuel Järnegård Fogelvik.

Shadow Self er hans fyrsta einkasýning.

Eitt umfangsmesta verk sýningarinnar samanstendur af 576 smærri einingum og myndar pixlaða heildarmynd af Markúsi Árelíusi. Verkið er unnið eftir málverki sem einnig er til sýnis. Hver eining er 10 x 10 cm plata í flötum lit og verður verkið selt í stökum plötum á hófsömu verði. Þannig verður verkið einungis sýnilegt í öllu sínu veldi við upphaf sýningarinnar. Verkið er óður til óvaranleikans, leikur að upplausn og jafnframt tilraun til að gera list aðgengilegri með upplagi og verðlagningu. Þessi verk eru afhent við kaup.

Sýningin stendur yfir til 7. febrúar og er opið miðviku- til föstudags milli 12–17 og laugardaga frá 12–16. Einnig eftir samkomulagi. Allar nánari upplýsingar um sýninguna og verkaskrá hennar má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected]

Laugardaginn 10. janúar opnar myndlistarmaðurinn Búri sína fyrstu einkasýningu, Shadow Self, í Gallery Port. Opnunin ste...
10/01/2026

Laugardaginn 10. janúar opnar myndlistarmaðurinn Búri sína fyrstu einkasýningu, Shadow Self, í Gallery Port. Opnunin stendur yfir milli klukkan 15–17 og eru allir velkomnir.

Á sýningunni eru fígúratíf málverk með ríka áherslu á andlitsmyndir, verkin eru unnin með olíulitum á striga. Verkin eiga rætur sínar í fjölbreyttum heimildum, meðal annars bókmenntum — einkum sjálfsævisögum og endurminningum — sem og rómverskri goðafræði, sögu, heimspeki, sálfræði og listasögu. Þótt klassísk áhrif séu greinileg í verkunum, er unnið frjálslega með viðfangsefnið og samtímaleg nálgun ríkjandi.

Sterkir litir gegna lykilhlutverki í sýningunni og vísar bæði til bernsku á níunda og tíunda áratugnum og til myrkari hliða mannlegrar tilveru.

Búri (1982) hefur starfað sem tattúlistamaður um áratugaskeið og rekið Íslensku Húðflúrstofuna. Hann lærði við Stockholm Academy of Realist Art og var svo um tveggja ára skeið nemandi í einkatímum hjá einum kennara skólans, Samuel Järnegård Fogelvik.

Eitt umfangsmesta verk sýningarinnar samanstendur af 576 smærri einingum og myndar pixlaða heildarmynd af Markúsi Árelíusi. Verkið er unnið eftir málverki sem einnig er til sýnis. Hver eining er 10 x 10 cm plata í flötum lit og verður verkið selt í stökum plötum á hófsömu verði. Þannig verður verkið einungis sýnilegt í öllu sínu veldi við upphaf sýningarinnar.

Verkið er óður til óvaranleikans, leikur að upplausn og jafnframt tilraun til að gera list aðgengilegri með upplagi og verðlagningu. Þessi verk eru afhent við kaup.

Sýningin stendur yfir til 5. febrúar.

Gallery Port er opið miðviku- til föstudags milli 12–17 og laugardaga frá 12–16. Einnig eftir samkomulagi.

Allar nánari upplýsingar um sýninguna og verkaksrá hennar má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected]

Hér má sjá brot af þeim verkum sem við erum með á Jólagestum Gallery Port í Rammagerðinni, Laugavegi 31, sem nú stendur ...
22/12/2025

Hér má sjá brot af þeim verkum sem við erum með á Jólagestum Gallery Port í Rammagerðinni, Laugavegi 31, sem nú stendur yfir.

Opið er hjá okkur í Rammagerðinni á opnunartíma verslunarinnar.

Allar nánari upplýsingar um sýningarnar og verkaskrá má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected].

Jólagestir Gallery Port standa nú með fullum krafti, bæði á Hallgerðargötu og í útibúinu í Rammagerðinni á Laugavegi 31....
21/12/2025

Jólagestir Gallery Port standa nú með fullum krafti, bæði á Hallgerðargötu og í útibúinu í Rammagerðinni á Laugavegi 31. Á báðum stöðum má finna mikið úrval listaverka af fjölbreyttum toga.

Opið 21. des milli 12-19 og 22-23. des opið frá 12—20 og í Rammagerðinni á opnunartíma búðarinnar.

Allar nánari upplýsingar um sýningarnar og verkaskrá má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected]

Nokkur verk af Jólagestum Gallery Port sem nú er í fullum gangi. Á sýningunni má finna fjölbreytt úrval verka, af öllum ...
12/12/2025

Nokkur verk af Jólagestum Gallery Port sem nú er í fullum gangi.

Á sýningunni má finna fjölbreytt úrval verka, af öllum stærðum og gerðum, málverk, prent og skúlptúra.

Þetta eru níundu jólin sem Gallery Port stendur fyrir stórsýningu af þessu tagi og að venju gefst hér frábært tækifæri til að þefa upp og nálgast ný og fersk listaverk af ýmsum toga.

Jólagestir Gallery Port eru opnir alla daga til jóla og eykst opnunartíminn eftir því sem nær dregur jólunum og verður kynnt nánar.

Nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast í skilaboðum og hjá [email protected]

Lokað í dag vegna óviðráðanlegra aðstæðna í Gallery Port, opnum aftur á morgun föstudag kl. 12. - - - Gallery Port will ...
11/12/2025

Lokað í dag vegna óviðráðanlegra aðstæðna í Gallery Port, opnum aftur á morgun föstudag kl. 12.

- - -

Gallery Port will be closed today due to unforeseen circunstances. We open again tomorrow, Friday at 12.

Myndir af sýningu Skarphéðins Bergþórusonar, „Gripið úr gömlu“, sem nú stendur yfir  í Gallery Port og lýkur laugardagin...
29/10/2025

Myndir af sýningu Skarphéðins Bergþórusonar, „Gripið úr gömlu“, sem nú stendur yfir í Gallery Port og lýkur laugardaginn 1. nóvember. Á sýningunni lendir hinni og þessari sagnfræði saman við skrásetningar-æði, neftóbaks uppruna-raninn útfylltur: Gripið úr gömlu.

Allar nánari upplýsingar um sýninguna og verkaskrá hennar má nálgast í einkaskilaboðum og hjá [email protected]

Sýningin er opin miðvikudaga til föstudags milli 12-17 og laugardaga frá 12-16 og einnig eftir samkomulagi.

Address

Hallgerðargata 19-23
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 12:00 - 20:00
Tuesday 12:00 - 20:00
Wednesday 12:00 - 18:00
Thursday 12:00 - 18:00
Friday 12:00 - 19:00
Saturday 12:00 - 19:00
Sunday 12:00 - 19:00

Telephone

+3548477573

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gallery Port posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share

Category