Vísur og veislugrín

Vísur og veislugrín Vantar þig afmælisljóð, brúðkaupsljóð, grín og glens fyrir árshátíðina eða jafnvel veislustjóra?

Hafðu samband og ég bjarga málinu. Áratugareynsla og ótal ánægðir viðskiptavinir.

20/02/2025

Grímur í Bláa lóninu varð sjötugur um daginn. Hann fékk vísur.

Grímur Sæm. á glæstan feril,
gengur honum flest í vil.
Gegnum lífsins önn og eril,
elskar hann að vera til.

Frumkvöðull af festu tekur,
því fári sem að höndum ber.
Aðdáun hjá öllum vekur,
hve æðrulaus hann Grímur er.

Framsýnn ætíð vísar veginn,
víst er stefnan rétt og klár.
Sæll og glaður sólarmegin,
hann sjálfsagt lifir hundrað ár.

03/05/2017

það er alltaf gaman að hafa tilefni til að yrkja. Tvær sænskar konur voru hér á hótelinu í nokkra daga að halda upp á 60 ára afmælin sín. Þær fengu náttla freyðivín í boði hússins, en ég snaraði saman smá drápu á sænsku og lagði á morgunverðarborðið, það vakti lukku.

04/02/2017

ég á fallegasta og besta mann í heimi. Einu sinni orti ég um hann.
Sitthvað hefur guð nú gjört
sem gagnast í lífsins puði.
En þegar hann var að hanna Hjört
var hann heldur betur í stuði.

elska hann mikið og mest

07/01/2017

greinilega stemming fyrir fjöldasöng með frumsömdum textum í afmælum þessa vikuna, ég heppin að vinna á næturvöktum og get raulað meðan ég brýt saman handklæðin

04/01/2017

Nóg að gera í yrkingunum, þrjú fimmtugsafmæli, eitt sextugs afmæli, ein varð níræð og svo orti ég vísur í myndskreytt fjölskyldualbúm, alltaf nóg af rímorðum

09/02/2016

Togarinn Sirrý kominn til hafnar í Bolungarvík 27.janúar 2016
lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína.

Í Bolungarvíkinni brosa þeir núna,
við bryggjuna togari liggur á ný.
Á endureisn staðarins öðlast menn trúna,
og ekki er vandi að botna í því.
Með öflugu skipi á sjó verður sótt,
og sægullið streymir í vinnsluna skjótt.

Trilluna Sirrý þeir áður hér áttu
eftir ömmunni góðu var fleytan sú skírð.
Nafnið á togarann nýta þeir máttu,
og nátt´lega fylgir því máttur og dýrð.
Af himnum hún langamma lítur svo glöð
nú er lið hennar komið í alfremstu röð.

Skipstjórinn Geiri mun skipinu stýra,
hann skelfist ei brimsjó né öldunnar rót.
Hjá Guðbjarti framleiðslu fátt mun því rýra
hann fagnandi taka mun þorskinum mót.
Hjá Jakobi allt kemst á fljúgandi ferð
og fljótt mun hann Þorláki koma í verð.

Í vestfirskum genum er kyngi og kraftur,
þó kreppi að stundum er seiglan enn nóg.
Hérna það sannast mun aftur og aftur,
að enn finnast drengir sem kunna á sjó.
Með bjartsýni að vopni og sólskin í sál
er sjómennska og útgerð hið albesta mál.

29/01/2016

Jæj, ekki er næu hægt að segja að ég sé virk á þessari síðu, en ekki er ég dauð úr öllum æðum. Þessa vikuna hef ég ort vísur fyrir fertugsafmæli, samið ræðu fyrir fimmtugafmæli og ´nú í nótt samið gjafaljóð fyrir sjávarútvegsprins, á svo einhvern þátt í gamanmálum sem verða á þorrablóti í kvöld, bara gaman

12/12/2013

það er upplagt að gefa ömmu sinni og afa sérsmíðaðar vísur í jólagjöf, t.d. um öll börnin og barnabörnin, nú eða gefa einhverjum gjöf í ljóðabréfi, hérna er sýnishorn af gjafabréfi sem ég sendi honum pápa mínum um árið

Jólagjafabréf 2011

Forðum daga á jólum fengu allir vísur,
Þá fögnuðu nú barnabörn, peyjarnir og skvísur
Jólakort frá afa glöddu litlu greyin
og gjöfin,sænskur hundrað kall, þá voru þau fegin.

Já, hefðina í fjölskyldunni hefur þú jú skapað
Þó hafir kannski núna andríkinu tapað.
Ég tek bara upp merkið, meitla orð í ljóði,
meðan nokkur glæta finnst í andans sjóði.

Áhugi á sporti ennþá með þér blundar
öflugur þú gönguna að sjónvarpstæki stundar
Horfir þar á boltann, golfið gleður líka
Já, gott er nú að hafa afþreyingu slíka

Á heimaleik með Arsenal best væri að bjóða
en brugg af orkudrykkjum yrðum þá að sjóða
eða hella í þig víski og ferja þig i flugi
nei, fráleitt er að svoleiðis aðferðir nú dugi.

Því færðu bara skruddu, þú skoðar hana nánar
þar skráðar eru hetjur og flinkir boltaslánar.
Enda sér og skilur sérhver hraustur halur
að heimsins besta félag að sjálfsögðu er Valur.

Gleðileg jól, elsku pabbi

05/11/2013

Ég orti nýlega fyrir eiginmann sem vildi koma spúsu sinni á óvart. Hann fékk fyrriparta og sendi þá út í boðsbréfinu, með beiðni um að væntanlegir gestir myndu botna vísurnar,. Svo fékk hann ljóð um frúna fyrir sig og annað fyrir börnin.
Hann sendi mér þetta eftir afmælið:
„ Við fengum 28 botna senda og eitt nýtt erindi, það voru sungin 6 erindi en allir botnar hafðir með á bakhlið, síðan skál og afmælissöngur.
Strax eftir það las ég textann okkar í stað ræðu og þegar ég lauk lestrinum byrjaði Garðar Thor að syngja lagið (án þess að nokkur tæki eftir honum)og kom til okkar og söng lagið við undirleik tengdasonar okkar. (þarna var mér sagt að "sverustu" karlar hefðu tárast).
Eftir matinn, ræður ofl, sungu siðan börnin með aðstoð gesta, textann við lagið Lítill fugl.
Þetta var í einu orði fábært og langar mig að þakka þér sérstaklega fyrir frábæra aðstoð.

15/10/2013

alltaf eitthvað að gerast í yrkingum. 80 ára afmæli merkismanns, frúin hans ætlar að lesa upp í afmælinu. Fyrripartar ortir til að setja á boðskort i afmæli einnar skvísunnar. Gerði tvo texta um sömu konuna um daginn, fyrra lagið var Gordjöss og þær sem ætluðu að syngja treystu sér ekki í það, þá var snarað í " súmjólk í hádeginu"

Address

Prestastíg 11
Reykjavík
113

Telephone

+3548666858

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vísur og veislugrín posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Vísur og veislugrín:

Featured

Share