Félagsmiðstöðin Bústaðir

  • Home
  • Félagsmiðstöðin Bústaðir

Félagsmiðstöðin Bústaðir Bústaðir er félagsmiðstöð sem þjónustar börn og unglinga í 5. - 10. bekk í Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla og Réttarholtsskóla. bekk. Fyrir 5.

Bústaðir er félagsmiðstöð á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn eru börn og unglingar í 6. - 10. bekk í Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla og Réttarholtsskóla.

Áhersla er lögð á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga í 8. - 10. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja gesti félagsmiðstöðvarinnar í að hrin

da hugmyndum sínum í framkvæmd. Boðið er upp á opið starf og ýmiskonar klúbbar eru starfandi eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þá eru haldnar ýmsar uppákomur og verkefni í samstafi við börn, foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila í hverfinu. Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu um ýmis málefni tengdum lífsleikni og má þar nefna fræslu gegn fordómum, forvarnir gegn vímuefnum, stuðningur við jákvæða sjálfsmynd og margt fleira.

Í Bústöðum er einnig boðið upp á starfsemi fyrir 5.-7. bekk úr Breiðagerðis- og Fossvogsskóla. Einu sinni í viku er boðið uppá opið hús fyrir börn í 7. bekk á mánudögum frá 15.00 til 17.00. bekk á miðvikudögum frá 15.00 til 16.30 og 6. bekk á miðvikudögum frá 17.00 til 18.30. Félagsmiðstöðin er þátttakandi í samstarfi í hverfinu og hefur m.a haldið utan um og komið að skipulagingu hverfishátíðar á sumardaginn fyrsta og einnig vegna hátíðahalda á öskudaginn. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra/forráðamenn og alla þá aðila sem koma að uppeldismálum í hverfinu. Lögð er mikil áhersla á að félagsmiðstöðin sé sýnileg og opin þeim sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemina.

Í félagsmiðstöðinni Bústöðum er starfandi forstöðumaður, aðstoðarforstöðumaður og 3 frístundaleiðbeinendur í hlutastarfi. Starfandi skólaárið 2014-2015 eru eftirfarandi. Birna Aðalheiður Árdal Birgisdóttir - Forstöðumaður
[email protected] - gsm; 6955047
Vinnutími: Alla daga, mánudags- og annað hvert föstudagskvöld.


Ívar Orri Aronsson - Aðstoðarforstöðumaður
[email protected] - gsm; 6955119
Vinnutími: Alla daga, miðvikudags- og annað hvert föstudagskvöld. Indíana Björk Birgisdóttir - frístundaleiðbeinandi
Vinnutími: Mánudags-, miðvikudags- og annað hvert föstudagskvöld. Sif Ragnarsóttir - frístundaráðgjafi
Vinnutími: Mánudags-, miðvikudags- og annað hvert föstudagskvöld


Guðmundur Reynir Gunnarsson - frístundaráðgjafi
Vinnutími: Mánudags-, miðvikudags- og annað hvert föstudagskvöld

Address


108

Opening Hours

Monday 15:00 - 22:00
Tuesday 14:00 - 16:30
Wednesday 15:00 - 22:00
Thursday 14:00 - 16:30
Friday 17:00 - 22:00

Telephone

4115420

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsmiðstöðin Bústaðir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Félagsmiðstöðin Bústaðir:

  • Want your establishment to be the top-listed Arts & Entertainment?

Share