Aldrei óstelandi

Aldrei óstelandi Aldrei óstelandi er atvinnuleikhópur sem var stofnaður árið 2010 af þeim Mörtu Nordal og Eddu Björgu Eyjólfsdóttur.

28/10/2017

Silja Aðalsteins skrifar um NATAN -

Í gær frumsýndi leikhópurinn Aldrei óstelandi leikverkið Natan eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikhópinn á Litla sviði Borgarleikhússins; stjórnandi var sem fyrr Marta Nordal og meðal leikenda voru bæði klassískar stjörnur hópsins og spennandi nýliðar. Efnið er líka klassískt í íslenskri sögu: morðið...

Sýningar í fullum gangi - www.borgarleikhus.is/syningar/natan/Morðið á Natani Ketilssyni og Pétri Jónsyni á Illugastöðum...
28/10/2017

Sýningar í fullum gangi - www.borgarleikhus.is/syningar/natan/

Morðið á Natani Ketilssyni og Pétri Jónsyni á Illugastöðum í Húnavatnssýslu í mars árið 1828 er eitt þekktasta og umtalaðasta sakamál Íslandssögunnar og leiddi til síðustu aftökunnar hér á landi. Þau Agnes Magnúsdóttir vinnukona og Friðrik Sigurðsson bóndasonur voru hálshöggvin á Þrístöpum 12. janúar 1830, en bústýran Sigríður Guðmundsdóttir var send til fangelsisvistar í Kaupmannahöfn fyrir aðild sína að málinu og lést þar. Atburðir þessir tóku snemma á sig goðsagnakenndan blæ og sögusagnir fóru á kreik um ástir og afbrýði þeirra sem hlut áttu að máli og hefur saga þeirra verið endalaus uppspretta skáldsagna, leikrita, kvikmynda og fræðigreina.

Leikhópurinn Aldrei óstelandi leggur hér út í rannsókn á tildrögum morðsins og leitar meðal annars fanga í dómsskjölum og þeim fjölmörgu fræðigreinum, bókum, kvikmyndum og sjónvarpsefni sem komið hafa út um þetta efni. Hvað varð til þess að þessar venjulegu manneskjur frömdu svo hryllilegan glæp? Er nokkurn tíma hægt að komast að sannleikanum í svo gömlu sakamáli?

03/06/2015

Sýningin okkar Ofsi var í dag tilnefnd til 6 Grímuverðlauna: Leikrit, Tónlist, Hljóðmynd, Besti leikari og leikkona í aukahlutverki og Sprotasýning ársins. Við sýnum Ofsa á föstudag og laugardag. Ekki missa af henni ... aftur.

Haldið ykkur fast!  Ofsi snýr aftur 5. og 6. júní.  Ekki missa af honum ... aftur!
18/05/2015

Haldið ykkur fast! Ofsi snýr aftur 5. og 6. júní. Ekki missa af honum ... aftur!

12/05/2015

Ofsi er ein af fimm bestu sýningum leikársins að mati Djöflaeyjunnar á RÚV.

Í dag hlaut Marta Nordal Menningarverðlaun DV fyrir Ofsa!
24/03/2015

Í dag hlaut Marta Nordal Menningarverðlaun DV fyrir Ofsa!

Menningarverðlaun DV voru afhent í 36. skipti í Iðnó í dag. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðastliðnu ári. Verðlaunin voru veitt í níu flokkum: bókmenntum, fræðum, byggingarlist, danslist, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist, auk þess sem val les…

10/02/2015

Þeir sem eiga eftir að sjá Ofsa verða að drífa sig því að þær eru að klárast! Næsta sýning er annað kvöld klukkan 19.30.

06/02/2015

Aðeins 3 sýningar eftir. Sýning í kvöld, laus sæti!

04/02/2015

Trailer úr OFSA. (Myndataka og öll úrvinnsla: Ragnar Hansson) Aðeins nokkrar sýningar eftir.

Aðeins örfá ... og þá meinum við örfá ... sæti laus í kvöld, föstudag og laugardag.    Höfum bætt við þremur aukasýningu...
29/01/2015

Aðeins örfá ... og þá meinum við örfá ... sæti laus í kvöld, föstudag og laugardag. Höfum bætt við þremur aukasýningum í febrúar. Ekki missa af Ofsa.

Marta Nordal, Edda Björg og Stefán Hallur mæta í Leikhúskaffi í Gerðubergi í kvöld. Þau munu segja frá verkinu, vinnuaðf...
28/01/2015

Marta Nordal, Edda Björg og Stefán Hallur mæta í Leikhúskaffi í Gerðubergi í kvöld. Þau munu segja frá verkinu, vinnuaðferðum og ferlinu frá skáldsögu til uppsetningar á leiksviði. Þá gefst áhorfendum kostur á að bera upp spurningar.

Leikhúskaffi er ný dagskrárröð í Gerðubergi og er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Þjóðleikhússins. Fjögur verk, sem sýnd eru á fjölum Þjóðleikhússins, verða tekin fyrir í Leikhúskaffi en þau eru: Ofsi, Sjálfstætt fólk, Segulsvið og Fjalla-Eyvindur.

Address

Reykjavík
103

Telephone

5688000

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Aldrei óstelandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share