19/07/2026
Í Stúlknakór Reykjavíkur 4 fá stúlkur á aldrinum 12 - 16 ára einstakt tækifæri til að vaxa og dafna í hlýju og hvetjandi umhverfi.
Lögð er áhersla á að nemendur fái mikla æfingu í framkomu og taki reglulega þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Staðfest verkefni á næsta skólaári verða meðal annars: Óperudagar 1. nóvember í Norðurljósasal Hörpu, fernir jólatónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk minni viðburða. Stefnt er að SÓL OG SÖNG, æfingabúðum til Ítalíu sumarið 2027.
fyrir 12 - 18 ára!
Gestakennarar koma í heimsókn og halda örnámskeið í leiklist, dansi og raddþjálfun.
Grunnatriði í tónfræði og nótnalestur er kennt á fimmtudögum.
VERTU MEÐ Í VETUR - skráning er inn á abler.
DOMUS VOX, HÚS RADDARINNAR - þar sem röddin þín hljómar!