Núll prósent

Núll prósent Núll prósent er opinn hópur sem býður upp á líflegt og fjölbreytt félagsstarf.

Hreyfingin Núll prósent er fyrir alla á aldrinum 14-30 ára sem vilja skemmta sér án áfengis og vímuefna. Markmið hreyfingarinnar er að stuðla að heilbrigðu líferni með öflugu félagsstarfi þar sem ungt fólk er virkjað til þess að skapa sér vímulausan lífsstíl. Við erum reglulega með kvikmyndakvöld, plöntum trjám, spilum borðspil og gerum alls kyns hluti sem meðlimum okkar dettur í hug. Við förum lí

ka í ferðalög saman og sendum meðlimi okkar í ungmennaskipti jafnt innlendis sem erlendis. Meðlimir okkar fá tækifæri til að kynnast jafnöldrum frá ýmsum löndum, kynnast forvarnarstarfi og uppgötva ný áhugamál.

Þér er velkomið að taka þátt!

Netsala áfengis eins og hún er framkvæmd á Íslandi er ólögleg.
13/05/2026

Netsala áfengis eins og hún er framkvæmd á Íslandi er ólögleg.

Breiðfylking forvarnarsamtaka, félögin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum fagna að í svari ríkisstjórnarinnar við fyrirspurn ESA um um netsölu áfengis, sölu áfengis í fríhöfninni og lögin um sölu áfengis af framleiðslustað kveði ríkisstjórnin afdráttarlaust upp úr um að netsala áfengis eins og hún er framkvæmd á Íslandi er ólögleg. https://forvarnir.is/2026/05/13/forvarnasamtok-fagna-thvi-ad-rikisstjornin-i-svari-sinu-til-esa-kvedi-afdrattarlaust-upp-ur-um-ad-netsala-afengis-eins-og-hun-er-framkvaemd-a-islandi-se-ologleg/

Það er áhyggjuefni að flokkar ætli að vinna gegn forvörnum þó flestir ætli að leggja þeim lið.
12/05/2026

Það er áhyggjuefni að flokkar ætli að vinna gegn forvörnum þó flestir ætli að leggja þeim lið.

    Bindindissamtökin IOGT á Íslandi sendi spurningar til frambjóðenda til sveitastjórnakosninga 2026 IOGT á Íslandi hafa borist svör við fimm spurningum sem sendar voru í lok apríl til framboða til sveitastjórna sem bjóða fram þann 16. maí n.k. Spurningarnar tengjast mikilvægum...

Nokkur pláss voru að losna. Endilega látið berast til unglinga og forráðamanna.
15/04/2026

Nokkur pláss voru að losna. Endilega látið berast til unglinga og forráðamanna.

Address

Hverafold 1-3
Kópavogur
112

Opening Hours

Monday 19:00 - 21:30

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Núll prósent posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Núll prósent:

Shortcuts

Share