Marginalia

Marginalia Marginalia is a Design and Publishing House SMALL, CHARMING, AND CURIOUS,
MARGINALIA IS THE PERFECT NAME FOR OUR TINY DESIGN AND PUBLISHING HOUSE IN ICELAND.

THE WORD MARGINALIA DERIVES FROM MEDIEVAL LATIN AND REFERS TO ORNAMENTS, SCRIBBLES AND OFTEN HUMOROUS ILLUMINATIONS ON THE MARGINS OF MANUSCRIPTS, USUALLY LEFT THERE BY THEIR SCRIBES. Check out our stuff on
www.facebook/marginalia
our website
www.marginalia.is
or give us a call on
+(354) 697 5808

Til hamingju elsku Víkingur 🚀🚀🚀 Heiður að vinna að hugmyndavinnu og hönnun fyrir þig ❤️❤️❤️
03/02/2025

Til hamingju elsku Víkingur 🚀🚀🚀 Heiður að vinna að hugmyndavinnu og hönnun fyrir þig ❤️❤️❤️

Congratulations to Víkingur Ólafsson for his Grammy win! 🏆 🤩
___
First-time GRAMMY® nominee Víkingur Ólafsson had dreamed of recording J.S. Bach’s monumental Goldberg Variations for 25 years before the time felt right to him to go into the studio. The Icelandic pianist then devoted the entire 2023-24 season to a six-continent tour of the work. On its release, his album was met with widespread critical acclaim, with The Sunday Times noting, “In [Ólafsson’s] hands, Bach’s progression through aria and 30 variations becomes a metaphor for human experience. Personal yet universal, faithful yet radical, technically scintillating and emotionally uplifting, it’s a journey to the centre of the soul”.
___
💿 Rediscover the album now: dg.lnk.to/vikingur-goldberg

💙🤍❤️ Kosningadagur langt genginn og margir enn í vafa um hvað skuli kjósa. Það gleður hönnuð, stílista, propsara og meðh...
30/11/2024

💙🤍❤️ Kosningadagur langt genginn og margir enn í vafa um hvað skuli kjósa. Það gleður hönnuð, stílista, propsara og meðhöfund þessarar bókar að fólk er hins vegar ekki í nokkrum vafa með brauðtertuna og vinsældir hennar og þessarar bókar ganga þvert á flokka og deilumál. Það var sannur heiður og mikil ánægja að taka þátt í að skapa þetta verk sem virðist fanga þjóðarsálina og gleðja landsmenn. Ég segi því bara á þessum kosningadegi - húrra fyrir brauðtertunni, sameiningartákni þjóðar 💙🤍❤️

Loksins, loksins segja brauðtertuelskendur því nú er komin út íslensk brauðtertubók. Þó svo að Stóra brauðtertubókin komi ekki formlega út fyrr en nk. miðvikudag, sem er jafnframt Dagur íslensku brauðtertunnar, þá ríkir svo mikil eftirvænting fyrir bókinni að henni hefur verið dreift í verslanir um allt land. Í Stóru brauðtertubókinni má finna uppskriftir sem koma víða að, sígildar brauðtertur jafnt sem nýstárlegar, ásamt fróðleik og alls konar skemmtilegheitum.

Margir lögðu hönd á plóg við gerð bókarinnar, fyrst ber að nefna þau fjölmörgu sem deildu með okkur uppskriftum og einstakri ástríðu og svo eiga þau Erla Hlynsdóttir formaður Brauðtertufélags Erlu og Erlu, Friðrik V Hraunfjörð yfirkokkur, HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir hönnuður og Karl Petersson matarljósmyndari mikinn heiður skilinn fyrir að skila svo fallegri brauðtertubiblíu. Til hamingju öll ❤️

Nánar um bókina og útgáfutilboð hér:
https://sogurutgafa.is/vara/stora-braudtertubokin/

Þessa bók hannaði ég í afar gefandi samstarfi við Margréti Eggertsdóttur, Svanhildi Óskarsdóttur, Hallgrímskirkju og Ská...
29/11/2024

Þessa bók hannaði ég í afar gefandi samstarfi við Margréti Eggertsdóttur, Svanhildi Óskarsdóttur, Hallgrímskirkju og Skálholtsútgáfuna. Þakka traustið 🥰

https://www.facebook.com/share/p/17zXpVAFCy/?mibextid=WC7FNe

HVAÐ VERÐUR FEGRA FUNDIÐ? What Can Be More Perfect?
Úrval úr sálmum og kvæðum sr. Hallgríms Péturssonar með enskum þýðingum

Hvað verður fegra fundið er úrval þess fjölbreytta kveðskapar sem liggur eftir sr. Hallgrím Pétursson (1614–1674), helsta skáld 17. aldar á Íslandi. Um er að ræða tvímálaútgáfu þar sem allir textarnir eru bæði á íslensku og í enskri þýðingu. Hallgrímur Pétursson er þekktastur fyrir Passíusálmana en hann orti kvæði og sálma af öllu tagi. Bókinni er ætlað að endurspegla það og má hér til dæmis finna heilræði, bænavers, ferðaljóð, ádeilu og náttúrulýsingar, auk þekktra erinda úr Passíusálmunum. Þegar Hallgrímur hafði lokið við Passíusálmana sendi hann þá fjórum konum sem tengdar voru háttsettum embættismönnum og óskaði þess að þær kæmu sálmunum á framfæri. Með þetta í huga voru fjórar konur fengnar til að velja sálma og kvæði í þessa bók. Það eru þær sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir sem jafnframt er ritstjóri. Reynt var að hafa úrvalið sem fjölbreyttast og velja yfirleitt stök erindi og vers fremur en heil kvæði. Passíusálmarnir (ýmist í heild eða hluti þeirra) hafa fimm sinnum verið þýddir á ensku og var hér farin sú leið að velja milli þessara þýðinga í hverju tilfelli fyrir sig. Annan kveðskap Hallgríms hefur Andrew Wawn, prófessor emeritus við háskólann í Leeds, þýtt með fáeinum undantekningum. Hönnun bókar: Helga Gerður Magnúsdóttir. Bókin fæst í Hallgrímskirkju, í verslunum Pennans - Eymundsson og í Kirkjuhúsinu í Bústaðakirkju. Og auðvitað á https://kirkjuhusid.is/collections/nyjar-baekur/products/hvad-verdur-fegra-fundid-urval-kvedskapar-sr-hallgrims-peturssonar

21/08/2024

Kápuna á Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum hannaði ég í gefandi samstarfi við hin frábæru Margrét Eggertsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Jóhannes Bjarna Sigtryggsson, Árni Heimir Ingólfsson hjá Stofnun Árna Magnússonar.

Frábært innslag hjá Guðrún Sóley Gestsdóttirí 🌟🌟🌟🌟🌟 Kastljósi, RUV um pabba gamla.
07/01/2023

Frábært innslag hjá Guðrún Sóley Gestsdóttirí 🌟🌟🌟🌟🌟 Kastljósi, RUV um pabba gamla.

Margir kannast við skúlptúra myndlistarmannsins Magnúsar Tómassonar, svo sem Þotuhreiðrið, risavaxið stálegg við Keflavíkurflugvöll, og Minnisvarða um óþekkta embættismanninn við Tjörnina. Magnús fagnar um þessar mundir 60 ára sýningarafmæli.

✨Það eru svona verkefni sem ylja manni um hjartaræturnar og gera mann þakklátan fyrir að starfa sem hönnuður. Yndislegur...
09/11/2022

✨Það eru svona verkefni sem ylja manni um hjartaræturnar og gera mann þakklátan fyrir að starfa sem hönnuður. Yndislegur texti Önnu Sigríðar Þráinsdóttur og himneskar myndlýsingar Elínar Elísabetar Einarsdóttur tvinnuð saman af undirritaðri og búið um í bók þessari og að lokum gefið út af hinum framúrskarandi Önnu Margréti Marinósdóttur, Tómasi Hermannsyni og Kristjáni Frey hjá Sögum útgáfu ✨

30/07/2022
Dásamlegur nýr diskur frá Víkingi lítur dagsins ljós. Hönnun: HGM / Myndataka: AriMagg
30/07/2022

Dásamlegur nýr diskur frá Víkingi lítur dagsins ljós. Hönnun: HGM / Myndataka: AriMagg

12/05/2022

Nú er þessa blómstrandi fína, fimmhundruð blaðsíðna biblía um pottablóm á leið í verslanir og við erum húrrandi stolt. Í Allt í blóma greinir Hafsteinn Hafliðason, sem er margverðlaunaður fyrir sitt ævistarf í blómarækt og garðyrkju, frá öllu því sem huga ber að í sambýli við pottablómin, svo þau fái að vaxa og dafna. Þessi bók á erindi inn á hvert íslenskt heimili. Við óskum Hafsteini til hamingju með bókina, sem og hönnuðinum hæfileikaríka Helgu Gerði Magnúsdóttur og þökkum þeim fyrir samstarfið og blómlegan afrakstur þess.
Hafsteinn Hafliðason
Helga Gerdur Magnusdottir

Nánar um bókina:
https://sogurutgafa.is/vara/allt-i-bloma-stofublomaraekt-vid-islenskar-adstaedur/

Address

Flókagata 33
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Marginalia posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share