12/06/2025
Paulina Brzuskiewicz-Kuhn er sýningarstjóri TORG Listamessu 2025.
Paulina Kuhn er reyndur sýningarstjóri með sterkan bakgrunn í stjórnun myndlistarsýninga og verkefna. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Nicolaus Copernicus háskólans í Toruń og starfar nú sem sýningarstjóri við Center of Polish Sculpture í Orońsko í Póllandi.
Hún hefur víðtæka reynslu af því að vinna með alþjóðlegum listamönnum og galleríum, meðal annars Tony Cragg, Sean Scully og Marina Abramović. Hún hefur á undanförnum árum þróað með sér brennandi áhuga á íslenskri list og menningu og hefur meðal annars unnið með íslenskum listamönnum bæði á Íslandi og í Póllandi.
Þetta er í annað sinn sem að hún sýningarstýrir TORG Listamessu sem fer fram í sjöunda sinn 3.-12. október 2025 á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum.