Menningarnótt

Menningarnótt Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og verður haldin 23. ágúst 2025

26/08/2025

Það var líf og fjör á Menningarnótt, afmælishátíð Reykjavíkur.
Tónlist, söngur, dans og gleði á hverju götuhorni.✨ 🎶🎨🎭

Menningarnótt gekk vel á laugardaginn, miðborgin iðaði af lífi. Dagskráin var fjölbreytt söngur, tónlist, myndlist, dans...
25/08/2025

Menningarnótt gekk vel á laugardaginn, miðborgin iðaði af lífi. Dagskráin var fjölbreytt söngur, tónlist, myndlist, dans og vöfflukaffi.

🙏Takk allir sem tóku þátt í dagskránni á Menningarnótt ykkar framlag er mjög mikilvægt.

🫶Við þökkum gestum fyrir komuna, takk fyrir að taka þátt í gleðinni.

Þakkir til samstarfs- og viðbragðsaðila sem komu að framkvæmd hátíðarinnar.

🥳Hlökkum til að að ári!

📸Myndirnar tala sínu máli. Ljósmyndararnir Róbert Reynisson og Ragnar Th. Sigurðsson eiga heiðurinn að þeim.

🙏🏻Takk fyrir komuna á Menningarnótt! Sjáumst aftur á næsta ári ❤️
24/08/2025

🙏🏻Takk fyrir komuna á Menningarnótt! Sjáumst aftur á næsta ári ❤️

🧇Í dag komu gestgjafar vöfflukaffisins til okkar að sækja aðföng fyrir vöfflukaffið á Menningarnótt.☕Sú skemmtilega hefð...
22/08/2025

🧇Í dag komu gestgjafar vöfflukaffisins til okkar að sækja aðföng fyrir vöfflukaffið á Menningarnótt.

☕Sú skemmtilega hefð hefur lengi verið við lýði að íbúar í Þingholtunum bjóði gestum og gangandi heim til sín, eða í garða sína, í vöfflur og kaffi á milli klukkan 14.00 og 16.00 á Menningarnótt.
Margir gestgjafar hafi boðið í vöfflukaffi í mörg ár, sumir síðan 2010!

Við erum þakklát fyrir gjafirnar sem við fengum frá íslenska fyrirtækinu Good Good sem styrkti vöfflukaffið með allskonar góðgæti.

❤️Eftirfarandi staðir bjóða ykkur velkomin í ár:

Klapparstígur 40
Grundarstígur 5b
Grettisgata 26 (30)
Bjargarstígur 17
Hellusund 3

🙏Takk fyrir að gestrisnina og þátttökuna í vöfflukaffinu!

🥳Þér er boðið á setningu Menningarnætur!🥳👉Hvar: Fyrir framan Þjóðleikhúsið👉Klukkan: 12:30
22/08/2025

🥳Þér er boðið á setningu Menningarnætur!🥳

👉Hvar: Fyrir framan Þjóðleikhúsið
👉Klukkan: 12:30

✨Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar en í ár er hún 239 ára!🎡Dagskráin í ár er mjög fjölbreytt liðlega 400 v...
21/08/2025

✨Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar en í ár er hún 239 ára!

🎡Dagskráin í ár er mjög fjölbreytt liðlega 400 viðburðir. Dans, tónlist, lúðrablástur, vöfflukaffi, söngur og listsýningar.
Menningarnótt verður sett við hátíðlega og skemmtilega athöfn klukkan 12.30 á tröppum Þjóðleikhússins sem fagnar 75 ára afmæli í ár. Bæjarfógetinn Bastían í Kardemommubæ stígur fyrstur á svið, að því loknu mun Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri setja hátíðina formlega. Frægar persónur úr vinsælustu leikritum sögunnar bregða svo á leik.

Heiðursgestir Menningarnætur í ár eru Færeyingar sem ætla að sjá um menningar- og skemmtidagskrá í Ráðhúsinu.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á Listasafni Reykjavíkur og Borgarsögusafni og er ókeypis aðgangur.

🎹Tónlistin skipar stóran sess, Tónaflóð Rásar 2 verða á Arnarhóli og Bylgjan verður á sínum stað í Hljómskálagarðinum. Moment DJ Margeirs verður svo á Klapparstíg þar sem boðið verður upp á dynjandi tónlist og stuð.
🩷Í lok hátíðarinnar verður Bryndísar Klöru Birgisdóttur minnst með einnar mínútu þögn á Arnarhóli í samstarfi við RÚV. Að lokinni minningastund verður svo flugeldasýning sem tileinkuð er Bryndísi Klöru og öllum þeim ungmennum sem orðið hafa fyrir ofbeldi.

⭐️Menningarnótt verður haldin í 28. sinn þann 23. ágúst næstkomandi.📸Blaðamannafundur var haldinn á Ingólfstorgi í blíðs...
20/08/2025

⭐️Menningarnótt verður haldin í 28. sinn þann 23. ágúst næstkomandi.
📸Blaðamannafundur var haldinn á Ingólfstorgi í blíðskaparveðri í morgun. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, fór yfir helstu atriði hátíðarinnar. Fulltrúar frá lögreglunni, slökkviliðinu, strætó, forvarnarsamtökum og frístundamiðstöðvum voru á staðnum, til að fara yfir öryggis- og aðgengismál.

⭐️Dagskrá Menningarnætur verður stytt, hefst klukkan 12.30 og lýkur klukkan 22.00.

❤️Menningarnótt er fjölskylduhátíð og er mælst til þess að fjölskyldan komi saman í miðborgina og fari saman heim.
🩷Í lok tónleika RÚV á Arnarhóli verður einnar mínútu þögn til að minnast Bryndísar Klöru Birgisdóttur. Að lokinni minningarstund verður flugeldasýning sem tileinkuð er Bryndísi Klöru og öllum ungmennum sem orðið hafa fyrir ofbeldi.🩷

Menningarnótt nálgast óðum og undirbúningur er í fullum gangi. Viðbragðsaðilar hittust á fundi í síðustu viku og fóru yf...
20/08/2025

Menningarnótt nálgast óðum og undirbúningur er í fullum gangi. Viðbragðsaðilar hittust á fundi í síðustu viku og fóru yfir ýmis atriði sem tengjast þessari stærstu hátíð landsins.

20/08/2025

Það verður frítt í parísarhjólið við Miðbakka á Menningarnótt 🎡
Tilvalið að mæta með fjölskyldu og vinum 🎉
Hvern ætlar þú að taka með þér?

Parísarhjólið verður svo áfram opið til 7. september.
Verum klár á Menningarnótt 💙💚

19/08/2025

Á Menningarnótt verður keppt í Steinn, skæri, blað við White Lotus á Bankastræti. 🤜✌️🫱
Fyrir mót verður farið yfir söguna með fræðslu um þennan skemmtilega og spennandi leik.
Það er til mikils að vinna á Menningarnótt

Heldur þú að þú getir unnið? 🏆 🎉
Viðburðurinn fer fram á ensku.

Address

Tjarnargata 11
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 20:00 - 16:15
Tuesday 20:00 - 16:15
Wednesday 20:00 - 16:15
Thursday 20:00 - 16:15
Friday 20:00 - 16:15

Telephone

+3544116000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningarnótt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Menningarnótt:

Featured

Share

Category