Miðstöðin

Miðstöðin MIÐSTÖÐIN er sameiginleg rytmadeild Nýja tónlistarskólans og Tónmenntaskóla Reykjavík

Þetta verður eitthvað!
09/06/2026

Þetta verður eitthvað!

Við hljómsveitin Dóra & Döðlurnar ætlum að ferðast um land allt í sumar og spila á alls 8 tónleikum, 13.-21. júní.
Tónleikaferðalagið byrjar á Kirkjubæjarklaustri með garðtónleikum 13. júní. Skellum okkur síðan á Svínafell 14. júní og höldum tónleika á tjaldsvæðinu þar. Þá heldur ferðin áfram á Nestkaupstað þar sem við komum fram á listahátíð 15. júní. Í Bragganum við sláturhúsið á Egilsstöðum verða síðan klikkaðir Braggatónleikar með heimamönnunum úr hljómsveitinni Ovium 16. júní. Spilum síðan á bæjarhátíð á Seyðisfirði 17. júní um hábjartan dag! Fimmtudagskvöldið 18. júní höldum við til Akureyrar og verðum með tónleika á Græna Hattinum! Því næst spilum við á sviðinu hjá Húsafelli Bistro 19. júní. Tónleikaferðalaginu líkur svo með stæl á Bárunni Brugghús sunnudagskvöld 21. júní. Með okkur ferðast bandið Espolín sem er ung og upprennandi ábreiðusveit! Markmið tónleikaferðarinnar er að spila á sem mest fjölbreyttum og skemmtilegum stöðum, uppgvötva nýja menningarheima og hafa gaman saman. Taktu þátt í þessu ævintýri með okkur og mættu á tónleika í þínu nærumhverfi!

08/06/2026

Notuðum þessa fjóra tíma sem ekki rigndi í vikunni til að halda tvenna tónleika á Óðinstorgi núna á laugardaginn i samvinnu við "Sumarborgin Reykjavík"😀
Hljómsveitirnar Espólín og 5K.
Við verðum aftur á fimmtudaginn 11. júní kl: 16:00 og á föstudaginn kl: 18:00. Allir velkomnir.

08/06/2026

We had a special guest from Scotland this weekend to play with 5K and do some recordings. Anna Fettes!

Heilmikil umfjöllun um Miðstöðina í Rokklandi. Leikin tónlist með 4 böndum frá okkur og viðtal sem byrjar 55:30.https://...
06/06/2026

Heilmikil umfjöllun um Miðstöðina í Rokklandi. Leikin tónlist með 4 böndum frá okkur og viðtal sem byrjar 55:30.
https://www.ruv.is/utvarp/spila/rokkland/23842/bj2m84?fbclid=IwY2xjawSRB-tleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEevYQF_AmM3R8ztF8tENzKGrHVGV8-rj3TL9cE2eCjvwKuJKg1NeEDMldHZGY_aem_UU_J0PwdN7IlSgFHghTCmg

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.Umsjó...

Allt að gerast hjá böndunum okkar þessa dagana.Nýtt lag og myndband með Dóru & Döðlunum:
29/05/2026

Allt að gerast hjá böndunum okkar þessa dagana.
Nýtt lag og myndband með Dóru & Döðlunum:

Dóra & Döðlurnar:Auður ÁrnadóttirBára Katrín JóhannsdóttirGuðrún...

12/05/2026

Allt á fullu hjá 5K. Annað nýtt lag sem kemur út í sumar!

09/05/2026

"Gríptu mig" Algerlega brjálað lag á leiðinni frá Dóru & Döðlunum!

05/05/2026

"Heartbeat" Nýr hittari á leiðinni frá stelpunum í 5K.

04/05/2026

Guðrún í Dóru & Döðlunum að heyra fyrsta mix af "Gríptu mig"...😊Stutt í að það komi út.

Address

Gylfaflöt 2
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 14:30 - 22:30
Tuesday 14:30 - 22:30
Wednesday 14:30 - 22:30
Thursday 14:30 - 22:30
Friday 14:30 - 23:00
Saturday 14:30 - 23:00
Sunday 14:30 - 21:30

Telephone

+3546982004

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Miðstöðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share