08/01/2022
kynnir áhöfnina til leiks um þessar mundir með þvílíkt skemmtilegu og persónulegu koncepti! Stay tuned 🙏🏽 | Myndir & texti eru af IG síðu
María Thelma Smáradóttir, leikkona. 🎭
María Thelma vinnur nú að nýrri leikgerð að Íslandsklukkunni sem sýnd verður í Þjóðleikhúsinu í haust. Samhliða því er hún í undirbúningsvinnu fyrir spennandi verkefni sem of snemmt er að greina frá. Nýlega fór María Thelma með eitt af aðalhlutverkunum í Hver drap Friðrik Dór? og hlutverk Elísabetar í Ófærð 3.
“Sem barn var ég …framsækin, forvitin, skapandi, harðákveðin en þögul.”
“Ætli uppáhalds staðurinn minn í heiminum sé ekki heimilið mitt í Laugardalnum. Flutti þangað fyrir um það bil ári og mér hefur hvergi liðið betur en í Austurbrúninni. Blokkin er staðsett á einum af hæstu punktum Reykjavíkur þannig að útsýnið nær langt út á Akranes. Í hverfinu mínu er allt sem ég þarf- langar órofnar hlaupaleiðir, sund, bíó, kaffihús og það er stutt í allar búðir og í miðbæinn. Annars líður mér líka mjög vel þegar ég er einhversstaðar á flandri á vegum vinnunar með lífið mitt í ferðatösku- úti á landi eða erlendis.”
“Ef ég væri ekki leikari væri ég ljósmóðir, ljósmyndari, geðlæknir, sálfræðingur eða mannréttindalögfræðingur.”