Íslenska óperan / The Icelandic Opera

Íslenska óperan / The Icelandic Opera www.opera.is Íslenska óperan skipar mikilvægan sess í menningarlífi þjóðarinnar.

Hún hefur áunnið sér gott orðspor fyrir vandaða viðburði sem standast alþjóðlegan samanburð og hafa fengið frábæra dóma og fjölmörg verðlaun.

Íslenska óperan var stofnuð 3. október 1980 og hafði lengi aðsetur sitt í Gamla bíói, en flutti inn í Hörpu 2011. Á þeim 40 árum sem liðin eru frá stofnun hennar hafa verið settar upp 90 óperusýningar, allt frá hinum vel þekktu óperum Mozarts og Verdis til

nýrra verka íslenskra samtímatónskálda s.s. Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Brothers eftir Daníel Bjarnason o.fl.

Íslenska óperan leggur áherslu á íslenska listamenn, en alþjóðlegir listamenn hafa verið reglulegir gestir. Flestir af fremstu söngvurum landsins hafa tekið þátt í uppfærslunum og hafa margir þeirra sem stigið hafa sín fyrstu skref hjá Íslensku óperunni síðar orðið þekktir og eftirsóttir söngvarar erlendis.

Address

Harpa Tónlistarhús, Austurbakka 2
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íslenska óperan / The Icelandic Opera posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share