Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hýsir högg­mynd­ir og teikn­ing­ar eftir Sigur­jón Ólafs­ Frá 1.

Safnið var stofnað af Birgittu Spur, ekkju lista­manns­ins 1984 og var rek­ið sem sjálfs­eignar­­stofnun til árs­ins 2012, að það var afhent Íslenska ríkinu og rekið sem safn innan Lista­safns Ís­lands. des­ember 2021 er safnið rekið af rekstrar­félag­inu Grímu ehf, undir for­ystu að­stand­enda Sigur­jóns. Auk þess að kynna list Sigur­jóns býður safn­ið upp á sýn­ing­ar á verk­um annarra lista­manna og yfir sum­artím­ann eru viku­lega haldnir tón­leik­ar sem hafa skipað sér fastan sess í menn­ingar­lífi Reykja­víkur­borg­ar. Sigurjón Ólafsson fæddist á Eyrarbakka árið 1908 og lést í Reykjavík 1982. Hann vann jafnhliða abstrakt- og raunsæis­verk og er talinn einn fremsti portrettlistamaður sinnar sam­tíðar.

----

Sópran, fiðla og píanó.Úkraínska söngkonan Christina Daletska ásamt Hlíf Sigur­jóns­dótt­ur fiðlu­leik­ara og Helgu Bryn...
15/08/2026

Sópran, fiðla og píanó.

Úkraínska söngkonan Christina Daletska ásamt Hlíf Sigur­jóns­dótt­ur fiðlu­leik­ara og Helgu Bryn­dísi Magnús­dótt­ur píanó­leikara í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar næsta þriðjudagskvöld 25. ágúst 2026 klukkan 20.30

Hér gefur ein­stakt tæki­færi til að hlýða á söng hinn­ar þekktu og eftir­sóttu úkra­ínsku söng­konu Christ­ina Dal­etska sem hef­ur kom­ið fram og sung­ið í öll­um helstu tón­leikasöl­um Evrópu. Christ­ina hefur bar­ist mik­ið fyrir mann­rétt­ind­um og er til dæmis opin­ber sendi­herra Sviss hjá Amn­esti Inter­nat­ional. Á tón­leik­um þeirra Christ­ina, Hlíf­ar og Helgu Bryn­dís­ar verða með­al ann­ars flutt­ir þrír brúð­kaups­söngv­ar eft­ir úkra­ínska tón­skáld­ið Myro­slav Skor­yk og verk­ið Vocalise eft­ir Hjálm­ar Helga Ragnars­son.

Rómantískur og impressionískur blær frá meginlandi Evrópu í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar næsta þriðjudagskvöld 14. jú...
09/07/2026

Rómantískur og impressionískur blær frá meginlandi Evrópu í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar næsta þriðjudagskvöld 14. júlí klukkan 20.30

Systkinin Freyr Sigurjónsson flautu­leikari og Hlíf Sigurjóns­dóttir fiðlu­leik­ari ásamt Evu Þyri Hilmars­dóttur píanó­leikara flytja tón­verk eftir tón­skáldin Mel Bonis, Phil­ippe Gaubert og Nino Rota. Ber tón­listin sterk­an blæ róman­tík­ur og im­pression­isma frá því um og eftir alda­mót­in 1900 á megin­landi Evrópu. Einnig mun Freyr leika, ásamt Evu Þyri, annan kafl­ann úr flautu­kon­sert sem Jón Ásgeirs­son samdi fyrir Frey árið 2000. Fæst þessara verka hafa heyrst oft hér á landi.

Aðgangseyrir er 4000kr
Sjá nánar hér: http://www.lso.is/fr-tilk/26-07-14-fr.htm

Elsemarie Christensen LSÓ 200Árið 1936 gerði Sigurjón andlitsmyndir af hjónunum Elsemarie og Haakon Christensen, en Else...
14/03/2026

Elsemarie Christensen LSÓ 200

Árið 1936 gerði Sigurjón andlitsmyndir af hjónunum Elsemarie og Haakon Christensen, en Elsemarie vildi ekki hafa portrett af þeim báðum í stofu sinni og Sigurjón stakk þá upp á að gera lágmynd af henni. Haakon vildi þá fá báða vanga hennar. Ekki er vitað til þess að Sigurjón hafi gert aðrar myndir í líkingu við þessa, þar sem báðir vangar fyrirsætunnar eru sýndir. Um þetta segir gefandinn Elsemarie Christensen í bréfi dagsettu 8/9 1989 til LSÓ:

Varðandi lágmyndina af mér þá gerðist það þannig: maðurinn minn vildi að Sigurjón gerði andlitsmynd (buste) af mér, en ég vildi ekki hafa tvær slíkar andlitsmyndir í stofunni, eina af manninum mínum og aðra af mér. Þá gerði Sigurjón að tillögu sinni að gera lágmynd af mér, en maðurinn minn vildi láta gera báða vanga af mér, og þess vegna varð útkoman tveir prófílar á einni plötu. Sigurjóni fannst þetta góð hugmynd – en fór fram á að myndin yrði steypt í brons, því þá yrði verkið meira lifandi en ef það væri í gipsi. Lágmyndin hefur verið sýnd á Charlottenborg , og margir sýningargestir héldu að hún væri af tveim systrum.

Margarethe Krabbe 1931, LSÓ 204Þegar Sigurjón Ólafsson dvaldi á Íslandi sumarið 1931 vann hann þrjár andlitsmyndir fyrir...
28/02/2026

Margarethe Krabbe 1931, LSÓ 204

Þegar Sigurjón Ólafsson dvaldi á Íslandi sumarið 1931 vann hann þrjár andlitsmyndir fyrir fjölskyldu Thorvalds Krabbe, vitamálastjóra. Dóttir hans Helga Krabbe gaf Listasafni Sigurjóns andlitsmyndina af seinni konu Thorvalds, Magarethe Krabbe, árið 1990.

Á samtímaljósmynd sést Sigurjón vinna að myndinni í leir á heimili Krabbe fjölskyldunnar, Tjarnagötu 40 í Reykjavík – sem er sérstaklega fallegt, rautt timburhús sem er áberandi í götumyndinni enn í dag.

SUMARTÓNLEIKARListasafns Sigurjóns ÓlafssonarTón­leik­ar hafa verið haldn­ir í Lista­safn Sigur­jóns Ólafs­son­ar frá op...
21/02/2026

SUMARTÓNLEIKAR
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar

Tón­leik­ar hafa verið haldn­ir í Lista­safn Sigur­jóns Ólafs­son­ar frá opn­un þess, 21. október 1988, fyrstu árin ekki reglu­lega, en yfir­leitt á þriðju­dags­kvöld­um og nefnd­ust þá „þriðju­dags­tón­leik­ar“. Fljót­lega komst þó á það form sem nú er - að halda röð viku­legra tón­leika yfir há­sumar­ið - og nefna þá Sumar­tón­leika Lista­safns Sigur­jóns Ólafs­sonar. Hér er listi yfir alla tón­leika safns­ins frá upp­hafi og fylgja flest­um þeirra efnis­skrár: lso.is/Sagan_i.htm

Sumar­tónleikar LSÓ hafa þá sér­stöðu með­al ann­arra tón­leika­raða að vand­að um­sóknar­ferl­ið er opið öll­um tón­listar­mönn­um og valið er úr um­sókn­um á fag­leg­um grunni. Efnis­skrá tón­leik­anna er ætíð afar vönd­uð og fjöl­breytt, allt frá endur­reisnar-, barr­okk- og klass­ískri tón­list til nú­tíma­verka. Salur lista­safns­ins hent­ar eink­ar vel fyrir ein­leik, dúó og tríó, enda eru það al­geng­ustu tón­leika­form­in, og fjöldi tón­verka hefur verið frum­fluttur þar. Gert er sam­komu­lag við tón­listar­fólk þar sem með­al annars koma fram greiðsl­ur fyrir þátt­tök­una sem eru óháðar að­sókn að tón­leik­unum.

Styrk­ir frá Tón­listar­sjóði til Sumar­tón­leika LSÓ hafa verið for­senda fyrir því að geta haldið röð­inni úti. Að jafn­aði hefur fram­lag sjóðs­ins jafn­ast á við greiðsl­ur til tón­listar­fólks. Allt annað, skipu­lag, úr­vinnsla um­sókna, vinna við sjálfa tón­leik­ana, hús­næði, kynn­ingar, flygil­still­ing­ar og fleira hefur safnið lagt til.

Á síðasta ári var sótt um til Tón­listar­sjóðs að vanda, en Sjóður­inn sá ekki ástæðu til að styrkja þetta fram­tak, en undir­bún­ingi sumars­ins var að mestu lokið og búið að semja við alla flytj­end­ur þegar það frétt­ist. Var því ekki aftur snúið. Sumar­tónleik­ar Lista­safns Sigur­jóns Ólafs­sonar 2025 voru því haldn­ir með sama brag og fyrri ár, en allur kostn­að­ur féll á safnið. Al­ger óvissa ríkir um fram­lag til næsta sum­ars, en safn­ið hefur ekki bol­magn til að taka þá áhættu að standa undir þeim eitt. Því varð að taka þá erfiðu ákvörð­un að hætta sumar­tón­leik­um LSÓ eftir hátt á fjórða ára­tuga starf. Safnið mun halda áfram að halda staka tónleika og þá í sam­starfi við tón­listar­fólk.

20/02/2026

Myndin mikilvæg viðbót við yfirstandandi portrettsýningu.

Sýningin AUGLITI TIL AUGLITIS í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar opnar aftur á safna­nótt eftir miðs­vetrar­lok­un, föstu...
05/02/2026

Sýningin AUGLITI TIL AUGLITIS í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar opnar aftur á safna­nótt eftir miðs­vetrar­lok­un, föstu­dag­inn 6. febr­úar, klukk­an 18 og verður op­ið til klukk­an 23. Safnið verð­ur síðan opið um helgar fram á vor.

Á safna­nótt mun Birgitta Spur, ekkja og stofnandi Listasafns hans, veita leið­sögn um sýning­una klukk­an 19:30 og aftur klukk­an 21. Segir hún meðal annars frá til­urð portrettanna.

Eftir leiðsagnirnar, um klukkan 20:00 og aftur um 21:30 verður sýnd stutt­mynd­in „TORN“ eftir Simone Hart og Jón H. Geir­finns­son sem fjallar um Birgittu.
Heitt verð­ur á könn­unni í kaffi­stofu safns­ins.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar opnar aftur eftir miðs­vetrar­lok­un á safna­nótt, föstu­dag­inn 6. febr­úar klukk­an 18 ...
28/01/2026

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar opnar aftur eftir miðs­vetrar­lok­un á safna­nótt, föstu­dag­inn 6. febr­úar klukk­an 18 og verður op­ið til klukk­an 23. Safnið verð­ur síðan opið um helgar fram á vor.

Á safna­nótt mun Birgitta Spur veita leið­sögn um sýning­una klukk­an 19:30 og aftur klukk­an 21. Segir hún meðal annars frá til­urð portrettanna. Heitt verð­ur á könn­unni í kaffi­stofu safns­ins.

Address

Laugarnestangi 70
Reykjavík
105

Opening Hours

Tuesday 13:00 - 17:00
Thursday 13:00 - 17:00
Friday 13:00 - 17:00
Saturday 13:00 - 17:00
Sunday 13:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listasafn Sigurjóns Ólafssonar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share

Category