12/06/2026
Á morgun, laugardaginn 13. júní, sýnir Leikfélag Húsavíkur tvær sýningar á uppsetningu sinni á Rocky Horror á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Sýningin var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins.
Enn eru örfá sæti laus á fyrri sýninguna kl. 16, en uppselt er á sýninguna kl. 20.
Miðasala á leikhusid.is